Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Síða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Síða 12
12 LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 Helgarblað Spennandi lokasprettur í þýsku þingkosningunum tekur á sig persónulegan blæ: Erlendar fréttir vikunn. Einvígi Tuma þumals gegn Svarthöfða Um næstu helgi, eða sunnudaginn 22. september, mun um 61 milljón Þjóðverja ganga upp að kjörborðinu í allsherjar þmgkosnmgum, þar sem ráðast mun hverjir fara með stjórnar- taumana i landinu næstu ijögur árin. Að áliti stjórnmálaskýrenda munu kosningarnar fyrst og fremst snúast um efnahagsmál, en þar hefur Schröder kanslari og stjóm hans held- ur betur átt á brattann að sækja, en samkvæmt spám mun þetta stærsta fjármálaveldi Evrópu aðeins skila um 0,1% hagvexti á árinu, sem er það lægsta í álfunni, auk þess sem at- vinnuleysi hefur verið og er gífurlegt. Það virðist þó ekki hafa haft mikil áhrif á hugi kjósenda, þvi samkvæmt nýjustu skoðanakönnunum, sem birt- ar voru í gær, mælist Jafnaðarmanna- flokkur Gerhards Schröders kanslara með þriggja til fjögurra prósenta for- skot á helsta andstæðing sinn, Kristi- lega demókrataflokkinn, þegar aðeins um vika er til kosninga. Það virðist því stefna í harða bar- áttu á lokasprettinum milli Jafnaðar- mannaflokksins, sem stjómað hefur landinu síðustu fjögur árin í sam- vinnu við Græningja, og Kristilega demókrataflokksins, CDU, sem býður fram í bandalagi með tvíburaflokki sínum frá Bæjaralandi, CSU, undir forystu ihaldsmannsins Edmunds Stoiber, forsætisráðherra Bæjara- lands. Stoiber að fatast flugiö Framan af kosningabaráttunni höfðu kristilegir leitt í öllum skoðana- könnunum með afgerandi forystu, en eftir því sem liðið hefur á, hefur Schröder jafnt og þétt sótt í sig veðrið og náði um siðustu helgi í fyrsta skipti forskoti á Stoiber, þó naumt væri. Það gerðist eftir seinni hluta sjónvarpskappræðna milli þeirra keppinautanna, sem send var út í beinni útsendingu um allt Þýskaland á sunnudaginn og er það samdóma álit flestra að þar hafi Schröder skor- að mun fleirri stig. Eftir útsendinguna mældist Schröder með 39% fylgi á meðan Stoi- ber mældist með 38%, en í könnun sem gerð var fyrir útsendinguna mældust þeir hnífjafnir. Það var ekki fyrr en í ágúst, í kjöl- far flóðanna miklu í austur- og norð- urhluta landsins, sem talið er að muni Stoiber grýttur Stoiber var grýttur þegar harin yfirgaf sjónvarpshúsiö eftir kappræöurnar viö Schröder og notuöu lífveröir hans regnhlífina til aö verja hann. Schröder og Stoiber í sjónvarpsslag Baráttuaöferöirnar á lokasprettinum beinast nú frekar að persónum andstæöinganna og hafa íhaldsmenn til dæmis líkt Schröder viö hinn seinheppna Juma þumal“ á nýjustu auglýsingaskiltum sínum. Á móti kalla jafnaöarmenn Stoiber „Hinn bæverska Svart- höföa“, hvaö sem það þýöir, en Stoiber þykir frekar þungur á bárunni og oft utan viö sig. kosta Þjóðverja um fimmtán milljónir evra, að fylgið fór að skríða upp á við hjá jafnaðarmönnum og var það þakk- að skörulegri framgöngu Schröders kanslara í málinu. í byrjun september hægði síðan á sókninni, þegar þýska vinnumálastofnunin birti nýjar tölur um áframhaldandi atvinnuleysi um leið og hrikta fór verulega í stoðum efnahagslífsins eftir flóðaáfóllin. Batnandi atvinnuástand Þrátt fyrir slæma stöðu á vinnu- markaðnum hefur ástandið þó farið batnandi eftir að botninum var náð um áramótin, en þá fór fjöldi atvinnu- lausra í um 4,3 milljónir. Síðan batn- aði ástandið með vorinu og féll fjög- urra milljóna múrinn í maí. Það stóð þó ekki lengi því aftur jókst atvinnu- leysi í júlí og fór þá aftur yfir þrálát- an fjögurra milljóna múr, þar sem það stendur enn þá. Atvinnulausum fækk- aði þó um 28.700 um siðustu mánaða- mót sem þýðir 9,6% atvinnuleysi, sem er síðasta mæling fyrir kosningar. Þrátt fyrir niðurstöðuna rikti bjart- sýni í höfuðstöðvum vinnumálastofn- unarinnar og sagðist forstöðumaður- inn, Florian Gerster, vonast til þess að staðan batnaði enn í næsta mánuöi og að komist yrði niður fyrir fjögurra mifljóna múrinn á næstu tveimur mánuðum. Annað hljóð var í atvinnu- rekendum og sagði Rainer Gunter- mann, einn talsmanna þeirra, að eng- ar líkur væru á því að ástandið myndi batna á næstunni þar sem allar hag- spár stefndu niður á við. Eitt af kosningaloforðum Schröd- ers fyrir síðustu kosningar var að minnka atvinnuleysioð verulega og koma þvi niður 3,5 milljónir og þess vegna áttu andstæðingar Schröders, með Stoiber í broddi fylkingar, ekki von á öðru en þessar nýju tölur í bland við aumt efnahagsástand, myndi slá verulega á fylgi jafnaðar- mannaflokksins en þeim varð þó ekki að ósk sinni eins og útkoman úr síð- ustu skoðanakönnunum, sem birtar voru í gær, sönnuðu. Þar mældust jafnaðarmenn með um 40% fylgi i könnun ERG og 41% í könnun ID á meðan íhaldsmenn mældust með 37% fylgi í báðum könnunum. Nýjar baráttuaðferðir Þar sem ekki þykir sýnt að staðan í efnahagsmálum eða slæm staða í at- vinnumálum muni duga andstæðing- um til að koma Schröder frá völdum, hafa þeir nú tekið upp nýjar baráttu- aðferðir sem beinast nú frekar að per- sónu Schröders. Er honum til dæmis líkt við hinn seinheppna „Tuma þum- al“ á nýjustu auglýsingaskiltum kristilegra, en á móti kalla jafnaðar- menn Stoiber „Hinn bæverska Svart- höfða“, hvað sem það þýðir, en Stoi- ber þykir frekar þungur á bárunni og oft utan við sig. Þetta sýnir að málefnaskjóðan er að tæmast og þegar efnahagsmálin ber á góma virðist aðeins ein laus liggja á borðinu hjá báðum pólum og það er að útvega fleiri störf. íhaldsmenn hafa einnig átt erfitt með að sannfæra hinn stóra her at- vinnulausra um það að þeir séu lík- legri til að bæta ástandið í atvinnu- málum, þvi í sextán ára valdatíð íhaldsmannsins Helmuts Kohl, á átt- unda og níunda áratugnum, var ástandið jafnvel enn verra. Erfiðleikarnir í efnahagsmálum hafa einnig að hluta til verið raktir til stjórnarára Kohls og auðvelt að heim- færa annan vanda á alheimskreppuna í kjölfar 11. september og síðan flóðin miklu í siðasta mánuðl Þess vegna hefur Stoiber reynt að gera sem mest úr góðum árangri sin- um við efnahagsstjórnina heima í Bæjaralandi og lofað að útfæra hana á landsvísu komist hann til valda. Schröder treystir aftur á móti meira á persónutöfrana, en hann þykir algjör andstæða Stoibers í allri framkomu. En ef skoðaður er munurinn á stefnuskrám þessara tveggja stærstu flokka, þá er hann ekki mikill og báð- ir reyna eftir fremsta megni að feta hinn gullna meðalveg. Enginn fær meirihluta Samkvæmt niðurstöðum skoðana- kannana á enginn flokkur möguleika á að ná hreinum meirihluta í kosning- unum, sem gerir úrslit kosninga enn þá meira spennandi. Schröder treystir á áframhaldandi samstarf við Græn- ingja. Hvorugur flokkurinn hefur hingað til viljað ljá máls á samstarfi við fyrr- um kommúnista, sem í dag kalla sig Lýðræðislega sósíalistaflokkinn, PDS, en Schröder gæti þó séð sig tilneydd- an til þess að leita eftir stuðningi þeirra dugi stuðningur Græningja ekki tfl að mynda meirihlutastjórn. Á móti treystir Stoiber á stuðning Frjálsa lýðræðisflokksins, FDP, undir stjóm hins fjörutíu ára gamla Guido Westerwelle sem helst hefur höfðað tU unga fólksins í kosningabaráttunni, en hann hefur ferðast um landið í húsbU og hefur ekki legið á skoðunum sínum varðandi helstu andstæðinga sína og segir stefnu þeirra léttvæga. Hægri-öfgaflokkar hafa komið frek- ar Ula út úr könnunum og ná sam- kvæmt þeim ekki inn manni á þing, en tU þess þarf minnst 5% fylgi. Varðandi stefnu stóru flokkanna í utanríkismálum, þá lofar Stoiber að styrkja hina svoköUuðu spænsk- þýsku stefnu sem hann segir nauðsyn- legt tU þess að tryggja enn frekar far- sæla uppbyggingu Evrópusambands- ins. Schröder leggur aftur á móti áherslu á andstöðuna gegn einhliða hernaðaraögerðum Bandaríkjamanna gegn írak, sem að sögn stjórnmála- skýrenda hefur faUið í góðan jarðveg. Stoiber hefur aftur á móti sýnt málinu minni áhuga en segir að Schröder hafi farið hamförum í málinu og veriö ódiplómatískur. Fórnarlambanna minnst Á miðvikudag- inn var þess minnst víða um heim að ár var lið- ið frá hryðjuverka- árásunum í New York og Pentagon. Bush Bandaríkja- forseti sagði í ávarpi sinu tU bandarísku þjóðarinn- ar, þegar fómarlamba árásanna var minnst í New York, að stjórn sin myndi ekkert gefa eftir í baráttunni gegn hryðjuverkunum fyrr en öryggi þjóðarinnar hefði verið tryggt. „Við hófum baráttu sem reyndi á styrk okkar og enn þá meira á þrautseigju okkar,“ sagði Bush. Kjarnorkuver í sigtinu Alræmdu hryðjuverkasamtökin al- Qaeda ætluðu upphaflega að steypa farþegaþotum inn í bandarísk kjam- orkuver, að því er tveir af helstu sam- starfsmönnum Osama Bin Ladens segja i viðtali við arabísku sjónvarps- stöðina al-Jazeera. Samtökin hættu hins vegar við kjarnorkuárásirnar í bUi af ótta við að þau myndu missa stjóm á ástandinu í kjölfarið. Bush ávarpar þing SÞ Bush Bandaríkja- forseti ávarpaði á fimmtudaginn alls- herjarþing SÞ í New York og varaði við einhliða aðgerðum Bandaríkjamanna gegn írökum ef Ör- yggisráð SÞ yrði ekki við kröfum Bandaríkjamanna um að- gerðir. Bush sagði í ávarpi sinu að írak væri alvarleg og stigversnandi ógn við heimsfriðinn ef ekkert yrði að gert. Hann sagði einnig að Bandarík- in óskuðu þess að Öryggisráðið hefði forgöngu í málinu. „Við stöndum frammi fyrir sameiginlegu vandamáli sem þarf að leysa. Setjum fram kröfur og ef ekki verður gengið að þeim verða aðgerðir óumflýjanlegar,“ sagði Bush. Tugir fórust á Indlandi Lúxushraðlest fór á þriðjudagsnótt út af sporinu á brú yfir á í austan- verðu Indlandi með þeim afleiðingum að 69 manns fórust. Einn ráðherra í stjóm landsins sagði að um skemmd- arverk hefði verið að ræða. Austurríska stjórnin féll Wolfgang Schlússel, kanslari Aust- urríkis, tilkynnti á mánudaginn af- sögn ríkisstjórnar sinnar eftir að slitnað hafði upp úr samstarfinu við hægri öfgaflokk Jörgs Heiders, Frels- isflokkinn, í kjölfar afsagnar þriggja ráðherra hans um helgina. Schlússel tilkynnti einnig að hann myndi leggja til við flokksstjóm flokks síns, Þjóðarflokksins, að þing yrði leyst upp og boðað til kosninga i lok nóvember. Flóö í Frakklandi Mikil og skyndi- leg flóð urðu í suð- urhluta Frakk- lands í byrjun vik- unnar með þeim afleiðingum að að minnsta kosti 21 fórst og 11 er sakn- að. Jean-Pierre Raffarin, forsætis- ráðherra Frakklands, heimsótti flóða- svæðin og hét ríkisaðstoð við ham- farasvæðin. Mikill ótti er meðal vín- bænda á þessum slóðum um að akrar þeirra kunni að vera i stórhættu. Afsögn Palestínustjórnar Ríkisstjórn Yassers Arafats sagði af sér um miðja vikuna eftir að forseti Palestínumanna boðaði til kosninga þann 20. janúar næstkomandi. Með af- sögninni var komist hjá uppgjöri vegna vantraustsyfirlýsingar sem hætta var á að Arafat myndi tapa. Ráðherrar heimastjórnarinnar sögðu af sér eftir tveggja daga stormasamar umræður í palestínska þinginu þar sem umbótasinnar eru í meirihluta. Arafat mun skipa nýja stjóm eftir tvær vikur og mun hún fara með stjórn palestínsku heimastjórnar- svæðanna fram að kosningunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.