Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Síða 29
LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 H l C) cj r b la ö 33 "V 29 Þingmaður vitjar hæsta tinds kjördæmisins, Hvannadalshnúks: Komust í hann krappan í hálku, þoku og stórhríð Hér er Kristján Pálsson með ísexina góðu, kominn við illan leik á tind Öræfajökuls. Það má segja að Kristján Pálsson alþingismaður kanni í þaula nýtt kjördæmi þar sem hann hyggst starfa á næstu árum. Suðurkjördæmi er fimm jökla kjördæmi með Vatnajökul, stærsta jökul Evrópu, sem eins konar kórónu sköpunarverksins. Þetta er líka kjördæmi mikilla eldstöðva og þar er Hekla án efa frægust fjalla. Þessi ferð reyndist slarkferð hin mesta í glerhálku, úrhellisrigningu, þoku og stór- hríð. Upp á tindinn komst leiðangurinn þó og hafði þá komist í hann krappan. Leiðsögumennirnir sögðust ekki fara slíka ferð aftur þegar hópurinn var kominn heill á húfi í hús. Hæstu mörk kjördæmisins Kristján Pálsson stóð fyrir stuttu á Hvannadals- hnúki sem er austarlega í verðandi kjördæmi hans sem nær allt austur í Lónssveit. Að sögn Kristjáns var það ekki einfalt mál að komast upp á hæsta fjallstind landsins í 2.119 metra hæð, hæstu mörk kjördæmisins, en það tókst við illan leik. „Þetta hefur lengi staðið til - tvær tilraunir voru gerðar en hætta þurfti vegna veðurs. Ég fór síðan með staökunnugum leiðsögumönnum frá íslensk- um íjallaleiðsögumönnum. Nú var lofað mjög góðu veðri og ekkert til fyrirstöðu. Við fórum að tygja okkur af stað um 4-leytið á laugardagsnóttina, fór- um fyrst í að stilla brodda og huga að tækjum okk- ar og tólum en lögðum á jökulinn klukkutíma síð- ar,“ segir Kristján. „í þessu tilfelli var lagt upp á Virkisjökul sem er skriðjökull niður úr Vatnajökli. Allt byrjaði þetta vel en síðar reyndist jökullinn illfær vegna gler- hálku og sprungna. Veðrið var heldur ekkert of gott en við héldum í þá von að veður færi batnandi sem ekki varð þó raunin. Við lentum í svartaþoku og rigningu í 1.500 metra hæð - héldum þó okkar striki upp á við og vissum ekki fyrr en við vorum komnir í stórhríð í 1.800 metra hæð,“ segir Krist- ján Pálsson. Meiri áhættuferð en búist var við Kristján segir að uppgjöf hafi þó ekki verið til hjá leiðangursmönnum sem voru tólf talsins, ís- lendingar og Skotar. Ákveðið var að halda áfram með hjálp GPS-staðsetningartækja og hæðarmæla. „Þetta var orðin meiri áhættuferð en við höfðum reiknað með í upphafi. Við vissum samt alltaf hvar við vorum og fikruðum okkur upp á við, allir tengdir saman með taug. Aðalvandamáliið var að finna færa leið yfir sprungurnar sem eru orðnar mjög breiðar á þessum tíma árs. Þetta var kjark- mikið og hraust fólk og lét sér ekki allt fyrir brjósti brenna og þótt leiðsögumennirnir tveir væru á því að þetta væri ófært þá var samt haldið áfram síð- asta áfangann," segir Kristján Pálsson. Síðasti áfanginn erfiður Lokaleiðin upp á stallinn er afar brött og erfið. Mönnum skrikaði ítrekað fótur og erfitt var að finna leiðina. Það tókst þó um síðir og komnir upp á stallinn eru nokkrir tugir metra upp á Hvanna- dalshnúkinn sjálfan. „Við fundum færa leið við brún stallsins og skildum þar eftir ísexi til að merkja leiðina. Þarna er aðeins ein uppgönguleið, þverhnípi annars staðar og hættulegt yfirferðar fyrir ókunnuga. Án leiðsögutækja er þetta hættu- spil. Veður spillast fljótt því jökullinn hefur sitt eigið óútreiknanlega veðurkerfi. Því verður að um- gangast þennan konung íjallanna með varúð og virðingu," sagði þingmaðurinn. Á niðurleið hófst leitin að öxinni sem reyndist eins og að leita að nál í heystakki. Menn krussuðu fram og aftur um stallinn og leituðu og lokst fannst öxin, þökk sé GPS-tækjunum, en án þeirra hefði öxin ekki fundist. Öxin vísaði hins vegar á einu færu leiðina niður af fjallinu. Eftir þetta gekk ferð- in ágætlega, nema hvað veðrið var leiðinlegt, snjór fyrst og síðan rigning. Þegar komið var að síðasta áfanganum, Virkisjökli, þurftu menn að fara á línu sem strengd var yfir svellbunkana. Menn voru þá ekki tengdir saman af ótta við að ef einn félli þá fylgdu hinir með. „Þessi ferð varð mun ævintýralegri en menn bjuggust viö og ánægjuleg eftir því. Ferðalagið tók 16 til 17 klukkutíma og þetta voru heilmikil átök. Ljóst er að jökullinn vildi sýna okkur að á hann fara menn ekki nema vel undirbúnir. Hann vildi reyna í okkur þolrifin og gerði það svo sannar- lega,“ sagði Kristján Pálsson alþingismaður. Hann sagði að leiðangursmenn hefðu allir strengt þess heit að fara aftur á Hvannadalshnúk og freista þess að fá betra veður. „Sjálfur ætla ég á jökulinn á 4 ára fresti meðan ég sit á þingi. En næst er meining- in að ráðast til uppgöngu á Heklu, eldfjalladrottn- inguna sjálfa. Ætli ég geri það ekki fyrir haustið." -JBP Hér er vetrarlegt um að litast á Hvannadalshnúki enda þótt sumar sé. Kristján Pálsson alþingismaður er lengst til vinstri, þá Ililinar Ingimundarson leiðsögumaður og Skotarnir Mark og John.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.