Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Side 35
LAUGARDAGU R 14. SEPTEMBER 2002 Helgarölaö 33"V 35 Svefnlausar Kristín Þóra Haraldsdóttir og Marta Goða- dóttir leika Nínu og Nönnu íFullkomnu brúðkaupi íLoftkastalanum. Þær segja frá hlátrinum, grátinum og goðsögninni um leikfélög framhaldsskólanna. „Það eru alltaf kjaftasögur um leikfélagið. Margir halda að fólkið í leik- listarstarfseminni sé bilað og það gerir það skemmtilegra. Þá neyðist fólk til að ganga í leikfélagið til að athuga hvort þessar sögur séu sannar," Fyrir réttri viku frumsýndi Leikfélagið Þrándur farsann Full- komið brúðkaup. Verkið er dæmi- gerður farsi með misskilningi, framhjáhaldi og hlaupum milli herbergja. Meðal leikara í þessu verki eru Kristín Þóra Haralds- dóttir og Marta Goðadóttir sem leika Ninu og Nönnu. Nína er konan sem brúðguminn vaknar hjá morguninn sem hann á að giftast annarri konu og Nanna er innskeifa þernan sem dregst inn í atburðarásina fyrir röð óheppi- legra tilviljana. Ég hitti Kristínu Þóru og Mörtu í Loftkastalanum, nánar tiltekið í rökkvuðu leikara- afdrepi undir áhorfendapöllun- um. Ég spyr þær hvenær þær hafi byrjað að leika og Marta segir að hún sé tveggja ára í leiklistinni, hafi byrjað í leiklist í þriðja bekk í MR, þegar hún sá um sýningar- stjórn i Platanov. I fyrravetur var hún í stjórn Herranætur og lék smáhlutverk í Milljarðamærinni sem Magnús Geir Þórðarson leik- stýrði, en hann er einnig leik- stjóri Fullkomins brúðkaups. Kristín Þóra er búin að vera við- riðin leiklistina lengur. „Ég slys- aðist á leiklistamámskeið þegar ég var tíu ára og það var svo skemmtilegt að ég lék allan grunnskólann. Ég tók mér frí frá leiklistinni þegar ég fór í fram- haldsskóla en byrjaði aftur fyrir tveimur árum.“ Fráhvarfseinkenni frá fars- anum Eru leikfélögin ekki skemmti- legasti félagsskapurinn sem hægt er að komast í í félagslifi fram- haldsskólanna? spyr ég þær og þær taka undir það. „Það eru alltaf kjaftasögur um leikfélagið; margir halda að fólkið í leiklistar- starfseminni sé bilað og það gerir það skemmtilegra. Þá neyðist fólk til að ganga í leikfélagið til að at- huga hvort þessar sögur séu sann- ar.“ Og er það rétt? „Fólk verður bara að koma í leikfélögin; við ætlum ekki að gefa það upp,“ segja þær. Því hefur verið haldið fram að fólk kynnist á annan hátt í leikfé- lögum en í öðrum einkaklúbbum. Kristín Þóra og Marta taka undir það. „Við erum saman allan sólar- hringinn síðustu þrjár vikurnar fyrir frumsýningu. Og í sumar höfum við verið saman alla daga frá níu til fimm og þvi kynnst mjög náið. Við þekkjum allar hliðar hvert á öðru því auðvitað nætur hafa ekki allir verið 100% upp- lagðir allan tímann og margar nætur hafa verið svefnlitlar ef ekki svefnlausar. En það hefur ekkert komið upp á sem verður að teljast skrýtið. Við erum ekki orðin leið hvert á öðru og hlökkum alltaf jafn mik- ið til að hittast, sem hljómar auð- vitað klisjulega, en svona er þetta bara. Okkur líður hálfilla eftir að við hættum að æfa og hittumst minna. Við brestum í grát og föðmumst þegar við hittumst, spyrjum: Hvað varstu að gera í dag? Á tímabili í sumar voru vinir okkar sem stóðu utan leikfélags- ins farnir að hafa áhyggjur af okkur. Áhyggjurnar náðu há- marki í kringum náttfatapartí sem við héldum. Við vorum sam- an í nokkra sólarhringa, bókstaf- lega! Við fengum því fráhvarfsein- kenni þegar við fórum í frí í ágúst. Það var líka kátt í kastal- anum þegar við hittumst aftur.“ Farsar eru ekki auðveldir fyrir leikara og sérstaklega eru það hinar hárflnu tímasetningar sem skipta miklu máli. Kristín Þóra og Marta segja að það hafi tekið nokkuð á að ná réttum tímasetn- ingum en „okkur fannst við mjög fyndin og það dreif okkur áfram. Það var mjög þakklátt þegar við æfðum sama atriðið enn einu sinni að heyra tist á bak við tjöld- in af þvi að það var enginn í saln- um. Það var því ótrúlega gaman að fá allan hláturinn úr salnum á frumsýningunni.“ -sm Haustlaukamarkaðurinn opnar! HAU STLAUKAR eru loford um litríkt vor! Haustlaukamir eru komnir í hús og bíða eftir að verða settir niður í görðum landsmanna. HVERGI MEIRA URVAL! ALLIR PAKKAR Á Topp 10 vinsældalistanum! ti . ; I: uíúiíirí Hver er laukur vikunnar? Þar býðst góð fræðsla um meðhöndlun haustlauka. Gugga verður á staðnum og gefur leiðbeiningar og ráð OPIÐ TIL KL. ALLA DAGA o GARÐHEIMAR allt það nýjasta í föndri Mikið úrval af nýjum vörum — um að gera ao drífa sig! Heimur skemmtilegra hugmynda og hluta Stekkjarbakka 6 • Mjódd • Sfmi: 540 33 00 • Fax: 540 33 01 • Veffang: www.gardheimar.is Istórsýning í Perlunni h' laugardag og sunnudag kl. 11-17 aÆT ÆL 0^%- /öguá A K ARLSSON hf. BANG 6. OLUFSEN innréttuð íbúð hótelherbergi kaffitería íslensk, ítöisk, dönsk, spænsk, og finnsk hönnun Yrjö Kukkapuro hljómflutningstæki símar gluggatjaldaefni áklæði stólar borö rúm sófar borðbúnaður eldhústæki 'BéltórwhtH ^Sólóhúsgögn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.