Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Page 49

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Page 49
LAUGARDAGUR i-+. SEPTEMBER 2002 Helqarblaö DV 53 í víldng til Pétursborgar Sönqsveitin Fílharmónía flqgur á vængjum söngsins til Péturs- POTTADAGAR Opiö 9 liÍ-T9 í J»A METRO Skoífan 7 • Slmi B2S 0800 borgar á næstunni og sgnqur bæði íslenskar stemmur og Sálu- messu Mozarts með einni frægustu sinfóníuhljómsveit heims. Lilja Árnadóttir, formaður Fílharmóníunnar, sagði DV frá þessu metn- aðarfulla ferðalaqi „í rauninni hefur undirbúningur þessa ferða- lags staðið í nærri tvö ár og það er Pétur Óli Pét- ursson í Pétursborg sem hefur unnið að skipulagn- ingu. í fyrstu var ætlunin að annar kór færi í þessa ferð en þegar þær áætlanir fóru út um þúfur var leitað til Söngsveitarinnar Fílharmóníu. Kór- inn var nýlega kominn úr vel heppnaðri söngferð til Evrópu og var í rauninni ekki á því að leggjast í ferðalög strax aftur en okkur fannst þetta of gott tilboð til þess að hægt væri að láta það framhjá sér fara og sögðum því já.“ Svona lýsir Lilja Árnadóttir formaður söngsveit- arinnar Fílharmóníu tildrögum þess að sveitin ætlar í lok september að ráðast í metnaðarfulla söngfór til Pétursborgar í Rússlandi. Þar mun sveitin koma fram á tónleikum i Stóra sal Fílharm- óníunnar sem rúmar 2000 manns í sæti. Tónleik- arnir verða þannig saman settir að fyrir hlé verða flutt íslensk lög og þjóðlög án undirleiks en eftir hlé flytur sveitin Sálumessu Mozarts ásamt Fíl- harmóníuhljómsveit Pétursborgar sem er meðal virtustu sinfóníuhljómsveita heimsins. Til að stækka söngsveitina var leitað eftir samstarfi við Selkórinn sem Jón Karl Einarsson stjórnar öðru jöfnu en hann er ekki aðeins kórstjóri heldur hef- ur annast skipulagningu ferðarinnar fyrir Úrval- Útsýn sem sér um ferðina að miklu leyti. Stjórn- andi Fílharmóníunnar í þessari för verður Bern- harður Wilkinson sem leitt hefur söngsveitina tfl æ stærri afreka þau sex ár sem hann hefur haldiö á tónsprotanum. Hulda Björk Garðarsdóttir og Sesselja Kristjánsdóttir munu ásamt Davíð Ólafs- syni bassasöngvara og Kolbeini KetOssyni tenór syngja einsöng. „Við leggjum mikinn metnað í að fá íslenska einsöngvara með okkur og munum reyndar flytja Sálumessuna ásamt Sinfóniuhljómsveit íslands undir stjórn Bernharðar viku eftir heimkomuna en þá verða Gunnar Guðbjörnsson tenór og Tómas Tómasson bassi í einsöngshlutverkum. Við höfum einnig lagt mikið í gerð söngskrár á fleiri en einu tungumáli því við teljum að þetta sé frábært tæki- færi tO þess að auka orðstír kórsins og íslenskrar sönglistar," segir Lilja sem hefur sungið með kórn- um í 24 ár en verið formaður í sex ár. Dýrt að ferðast Kostnaður er geysOega mikOl við ferð af þessu tagi og að sögn Lilju hefur fjöldi fyrirtækja og stofnana lagt söngsveitinni lið með stórum og smá- um styrkjum en hún lýkur einnig lofsorði á skipu- lag og undirbúning af hálfu Úrvals-Útsýnar. „Við erum með vel skipulagða dagskrá því Pét- ursborg er einstaklega faOeg og þar eru fagrar byggingar og söfn sem tekur miklu lengri tíma að skoða en við höfum tO umráða en við munum sjá það helsta og hlökkum óskaplega til þess að fara.“ Meðal frægra bygginga í Pétursborg er sumar- höll Katrínar miklu sem þykir bera af öðrum og í Hermitage-listasafninu er gríðarlegur fjársjóður listaverka eftir gömlu meistarana og er fifllyrt að það standi að minnsta kosti jafnfætis frægustu listasöfnum Evrópu eins og Louvre í París, Prado í Barcelona og listasöfnunum í London. „Þetta er forvitnileg borg og við lítum á þessa heimsókn okkar sem mikflvægan lið í auknum menningartengslum Islands og Rússlands og tæki- færi tO að kynna íslenskt menningarlíf." -PÁÁ Lilja Ámadóttir er formaður söngsveitarinnar Fílliarmóníu sem senn leggst í söngvíking til Pétursborgar með Sálumessu Mozarts og íslenska tónlist. DV-mynd: ÞÖK Engar tímapantanir. Komdu núna! REYKJAVÍK • AKUREYRI BÍLAVAKTIN Portúgal Vinsælu vikuferðirnar eru nú óðum að seljast upp! 27. sept.....................................10 sæti laus 04. okt......................................laus sæti 11. okt......................................örfá sæti laus 18. okt......................................22 sæti laus 25. okt......................................laus sætí GoHarar Við bókum rástímana á öllum helstu golfvöllum Algarve. Sérsamningar um vallargjöld. Helgarferð 25.-29. okt......................11 sæti laus

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.