Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Side 53

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Side 53
LAUGARDAGUR I*. SEPTEMBER 2002 Helqarblað H>'V 57 V Nýr og sportlegur Accord á Parísarsýningunni Meðal Evrópufrumsýninga í Par- ís er hinn nýi Honda Accord, sport- legur fjölskyldubíll sem keppir með- al annars við Ford Mondeo, Mazda 6 og VW Passat. Meðal nýjunga í bíln- um eru tvær nýjar VTEC-vélar, 155 hestafla 2,0 lítra vél og 190 hestafla 2,4 lítra vél. Báðar þykja hafa litla eyðslu miðað við stærð og uppfylla mengunarstaðal EU-2005. Lágur vindstuðull Bíllinn er sportlegur i úfliti og hefur lágan vindstuðul, aðeins 0,25 Cd, sem er sá besti i þeim flokki. Hjólahaf bílsins er það sama og í síðustu kynslóð en bíllinn er stærri á alla kanta sem þýðir meira innan- rými en áður. Bíilinn er vel búinn og má þar nefna regnskynjara í framrúðu og hitastýrða tvöfalda miðstöð. Einnig verður hægt að fá hann með leiðsögukerfi með snert- iskjá. Sex öryggispúðar verða stað- albúnaður á sumum markaðssvæð- um. Sportleg fjöðrunin hefur verið endurhönnuð og eru tvöfaldir klafar að framan og fjölarma að aftan. Bfl- ar með 2,4 lítra vélinni fá líka VSA- stöðugleikakerfi. Bíllinn verður smíðaður í Japan en fyrir Banda- rikjamarkað er bíll- inn öðruvísi í útliti og stærð, enda er sá framleiddur þar. Accord fer á markað í Evrópu snemma á næsta ári og seinna á árinu er hann svo væntanlegur með nýrri dísilvél frá Honda sem lofar að endurhanna staðal- inn fyrir þær gerðir véla. Að sögn Gxrnn- ars Gunnarssonar, markaðsstjóra Bemhard, er ekki ljóst hvenær billinn kemur hingað. „Norðurlöndin setja bilinn væntan- lega á markað í mars eða april og verðum við sennilega með hann um það leyti,“ segir Gunnar. -NG Nýtt Kawasaki ZX-6R Þetta er fyrsta myndin af ^ Einnig fær það nýja grind, hinu nýja ZX-6R '• bremsur og öfuga fram- sporthjóli frá s ydempara, svo eitthvað sé Kawasaki. Hjólið ^ nefnt. RR Supersport- mun koma sem vF - f hjólið verður svo með bæði R- og RR-hjól Ak minni mótor, 599 rúm- og fær það meðal sentimetra, sem annars beina inn- v snýst meira en R-út- spýtingu við 636 rúm- gáfan. sentímetra mótorinn. -NG Prúttmarkaöur og öku- leikni fyrir mótorhjól í dag ætla Bifhjólasamtök lýðveld- isins, Sniglar, að standa fyrir skemmtilegri nýbreytni. Uppákom- an heitir skiptimarkaður eða „Swapmeet", eins og það þekkist er- lendis, og þar geta ailir komið með varahluti, hjól, leður eða annað, tengt mótorhjólum eða skeflinöðr- um, og selt. Um er að ræða nokkurs konar prúttmarkað, þar sem fólki gefst tækifæri tU að losna við gamla varahluti úr skúrum sinum, og hefst prúttið á hádegi. Staðurinn er lagerhúsið við gamla Sól-Víking- húsið að Þverholti 19-21. Að sögn Dagrúnar Jónsdóttur, varaoddvita Snigla, verða eitthvað fleiri uppá- komur og má þar meðal annars nefna ökuleikni á mótorhjólum og fleira. „Verðið á vörunum verður lágt og því ættu aUir að geta gert góð kaup,“ segir Dagrún. Suzuki smíöar bíia fyrir Nissan stærð sem gengur vel í Japan. í Charlos Ghosn, kallaður krafta- verkamaðurinn hjá Renault og þekktur fyrir að færa bflaframleið- endur frá bágum fjárhag tU blóm- strandi engja og sem shkur gerður að aðalforstjóra Nissan þegar Renault keypti ráðandi meirihluta í því fyrir- tæki, styttir sér leiðir þegar hann sér færi á. Honum þótti augljóst að heima í Japan, þar sem smábUar eiga stærstan markaðshlut, 30% af árssölunni, vantaði smábU frá Nissan. Það tekur nokkur ár að þróa nýjan smábfl frá grunni svo Ghosn hugsaði sitt ráð: hvaða framleiðandi smábíla er öflugustur á Japansmark- aði? Jú, Suzuki. Svo hann samdi í hveUi við Suzuki að framleiða Suzuki MRwagon undir merkinu Nissan Moco, með smávægUegum út- litsbreytingum sem Nissan lagði út fyrir. MRwagon/Moco eru með 660 rúmsentímetra vélar, einmitt vélar- 10% markaðsaukning Nissan Moco var settur á Japans- markað í aprU og í júU hafði sala á Nissan-bUum í Japan aukist um 10 af hundraði og Moco var með 7% af heUdarsölunni. Nissan er ekki eini framleiðand- ixm sem hefur leitað tU Suzuki þegar hann vantar góðan bfl í hasti. Subaru Justy var framleiddur hjá Suzuki. Mazda AZ-Wagon er Suzuki Wagon R imdir merkj- um Mazda og eru þó ekki nefndar hinar ýmsu gerðir Chevrolet sem eru i rauninni Suzuki. „Þetta er í senn styrkur okkar og veikleiki,“ er haft eftir Osamu Suzuki, stjómar- formcumi Suzuki-verksmiðj- anna, sem bætir jafhframt við að litlir framleiðendur sem Suzuki geri rétt í því að vinna fyrir aðra ef það hentar báðum aðUum. „Það er ágætt að hafa þá,“ segir hann. „Það gerir okkur auðveldara að keppa við þá.“ Samkvæmt áætiun Suzuki stendur tU að endurhanna eða frumhanna samtals 15 nýjar bílgerðir fram tU ársins 2005. -SHH Citroén frumsýnir sportbíl í París BUasýningin 1 París er ein sú stærsta í heiminum og aUtaf mikið um frumsýningar bUaframleiðenda þar. Við höfum þegar sýnt lesend- um myndir af nýjum jeppum frá Toyota, Volkswagen og Porsche, en margt annarra forvitnUegra farar- tækja verður þama lika. Eitt þeirra er tilraunasportbUl frá Citroén sem er kallaður C-Airdream. Með dæmigerðu Citroén-lagi BUlinn er dæmigerður fyrir hönnunarlínur Citroen. Að framan er aðfaUshom lítið og framhjólin því frekar aftarlega. Hjólahaf er mikið og bUlinn er aUur mjög straumlínulagaður, enda er vind- stuðull hans ekki nema 0,28 Cd. Þakið er aUt gegnsætt og þótt bUl- inn sé lokaður fá farþegar svipaöa tilfmningu og í opnum bU. BUlinn er fjögurra manna og er hægt að leggja niður aftursæti fyrir aukiö farangursrými. Mælaborðið er sér- stakt, eins og svo oft í Citroén. Helstu mælar em á stýrisás en upp- lýsingaskjáir fyrir aksturstölvu og leiðsögukerfl í sjálfu mælaborðinu beint fyrir aftan. Hægt er að stjóma þeim með mús sem komið er fyrir í armhvUu mflli sæta. ÖU stjómtæki em líka í námunda við ökumann- inn og í stýrinu, líka bensíngjöf og bremsa, svo að viðbragðsflýtir eykst. Á stýrishjólinu eru spaðar sem að virka sem bensíngjöf þegar ýtt er ofan á þá en bremsa þegar ýtt er á neðri hluta þeirra. BUlinn er með þriggja lítra 200 hestafla V6-vél og þriðju kynslóð Hydractive- vökvafjöðrunarinnar frá Citroén. -NG Það er mikil tilfinning fvrir rýnii með gegnsæju þaki eins og hér sést. Daewoo-verksmidjurnar aftur í gang Daewoo-verksmiðjumar komust aftur í gang á miðviku- dag eftir tveggja vikna lokun sem varð vegna viðskiptabanns íhlutaframleiðenda fyrirtækis- ins. Sá stærsti þeirra, Delphi Automotive Systems, ákvað á þriðjudag að hætta þrýstingi sem kominn var til vegna skulda Da- ewoo við Delphi sem framleiðir um 20% af íhlutum í Daewoo-bíl- ana. Delphi lét undan vegna mik- ils taps vegna aðgerðanna en fyr- irtækið tapaði um tveimur millj- örðum króna á þeim tveimur vik- um sem bannið var í gildi. Um 70% viðskipta Delphi eru ein- göngu við Daewoo. Daewoo fer nú í endumýjun lífdaga undir forsjá bílarisans GM og mun nýja fyrirtækið heita GM Da- ewoo Auto & Technology Co. Bú- ist er við að af samrunanum verði í lok mánaðarins eða byrj- un þess næsta og mun GM þá eiga 42,1% í nýja fyrirtækinu. Aðrir hluthafar em systurfyrir- tæki GM með 10%, Suzuki-bíla- framleiðandinn með 14,9% og loks lánardrottnar Daewoo með 33%. -NG 2,4 lítrar á Yaris Yaris D-4D, með 1,4 lítra dísflvélinni, er spameytnasta farartækið sem Toyota býður upp á, en uppgefin meðal- eyðsla á bUnum er 4,2 lítrar á hundrað- ið. John Gough heitir ökukennari í Bretlandi sem vUdi komast að því hversu littu þessi bUl gæti eytt. TU þess ók John frá suðurströnd Bretlands tU norðurstrandar Skotlands og það á minna en einni tankfýUi. Vegalengdina, sem er 1.420 km, ók John á aðeins 34,4 lítrum sem er meðaleyðsla upp á 2,4 lítra af dísUolfu á hveija hundrað kUó- metra. TU að tryggja að engin brögð væru í tafli var eldsneytisgeymirinn innsiglaður af bresku lögreglunni og ekki opnaður aftur fyrr en í viðurvist lögreglunnar í Skotlandi. Meðalhraði ökukennarans sparsama var í kringum 60 km á klst. og hann notaðist við akst- ursaðferðir sem ökukennarar þekkja vel og kallast „Eco-driving“ og bætt geta mikið spameytni jafnvel vönustu bUstjóra. Að sögn Bjöms Víglundsson- ar, markaðsstjóra P. Samúelssonar, em engin áform um að flytja þennan spar- neytna bU inn eins og er. „Eins og búið er að dísUbUum í dag er enginn mark- aður fyrir svona litla bUa sem er mið- ur,“ sagði Bjöm. -NG iapmv"' w 1 N - % l H l w gf—3» Æ STORUTSALA HJA BILABUB Toyota Yarís wt, 1300OC, ek 24þ. km. 03/01 5 dyra, verökr. 1.190.000,- útsöluverð 990.000 Honda Civic 1600cc, beinsk. ek. 99þ. km. verð kr. 990.000,- útsöluverð 750.000 ■■■■■■ Musso Grand Luxe 2300cc 1600cc, 03/99, spoilerakit, álfelgur, bens^,01/00 beinsk., ABS , spólvörn, Daewoo Lanos Hurricane, geislaspilari, rafmagn í rúðum, saml’itur 9?' Álfe|9ur, þokuljós, þjófav., líknarb., verð kr 1 120 000 - viöarmælab., rafm. i ruðum, 31 dekk, útsöluverð 890.000 SSS»14WL000 Ctöryji n, I/ I /4 I I I JU mm I . SKEIFAN • BILDSHÓFÐA 10 • S: 587 1000 / 590 2000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.