Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Page 54

Dagblaðið Vísir - DV - 14.09.2002, Page 54
58 H&Ig o rb lct <3 X> V LAUGARDAGUR 14. SEPTEMBER 2002 Notaðir bílar hjá Suzuki bílum hf. I Bateno Wagon 4x4. r. 6/98, ek. 42 þús. Verð kr. 1030 þús. Suzuki Baleno GL, 4 d., bsk. Skr. 5/99, ek. 38 þús. Verð kr. 890 þus. Suzuki Swift GLS, 3 d., bsk. Skr. 9/99, ek. 23 þús. Verð kr. 790 þús. Suzuki Vitara JLX, 5 d., bsk. Skr. 6/00, ek. 59 þús. Verð kr. 1380 þús. Suzuki Jimny JLX, bsk. Skr. 6/00, ex. 32 þús. Verð kr. 1200 þús. Toyota Yaris Terra, 5 d., bsk. Skr. 6/01, ek. 32 þús. Verð kr. 950 þús. VW Polo Comfortline, 5 d., bsk. Skr. 7/01. ek. 40 þús. Verð kr. 1050 þús. Aifa Romeo, 5 d., bsk. Skr. 11/98, ek. 34 þús. Verð kr. 890 þus. Isuzu Trooper 3,0 dísil, bsk. Skr. 4/99, ek. 64 þús. Verð kr. 2490 þús. Sjáðu fleiri á suzukibilar.is $ SUZUKI SUZUKI BÍLAR HF. Skeifunni 17, sími 568-5100 Rétt fyrir ræsingu stillti Ólafur sér upp framan við bíl Miehaels Schumaehers ásamt breska dómaranum Antony Andrews og ónefiidri þokkadís. Fullrúi Islendinga í Formúlu 1 Ólafur ásamt FIA-meðdómara sínuin, Paul Gjuthar, og keppnisstjóranum Giorgio Bartoli við gömlu brautina á Monza. Nafn Ólafs Guðmundssonar er kannski ekki það fyrsta sem mönnum dettur í hug þegar þeir hugsa um For- múlu 1 kappakstur en þrátt fyrir það er hann sá íslendingur sem hvað mestum frama hefur náð í kappakstrinum og komist i innsta hring hringiðunnar í þessu æðsta og erfiðasta mótorsporti heimsins. Þrátt fyrir að hafa aldrei ekið í kappakstri á alþjóðavettvangi er Ólaf- ur Guðmundsson nú kominn í hóp fremstu dómara Alþjóða akstursíþrótta- sambandsifis, FLA, og hefur verið skip- aður í hóp manna sem skipta á milli sín dómgæslu á keppni í Formúlu 1 og For- múlu 3000. Ólafur hefur þegar dæmt þrisvar í Formúlu 1 á innan við einu ári og má búast viö að hann komi til með að verða verðugur fulltrúi okkar íslend- inga í Formúlu 1 um ókomna framtíð. Teningunum fljótt kastað Ólafur er fæddur 1956 í Reykjavík og segist vera fæddur með bíladellu. Að- eins ellefu ára var hann farinn að aka vélknúnum ökutækjum og fékk fljótlega dellu fyrir mótorhjólum, fyrst á skell- inöðrunum á fjórtánda ári og síðan stærri mótorhjólum. Þrátt fyrir að ekki fari mörgum sögum af árangri Ólafs í vélhjólasportinu þá var hann fljótlega fenginn af FÍB til að aðstoða við tíma- vörslu í fyrsta railmóti á íslandi árið 1975 ásamt fleiri vélhjólamönnum. „Þar með var teningunum kastað" sagði Ólaf- ur við blm. DV t viðtali í síðustu viku. Þar með lá leiðin í stjómunarstörf og dómgæslu hjá Bifreiðaklúbbi Reykjavík- ur og síðan á vettvang Landssambands íslenskra akstursfélaga frá stofnun. Keppnisskapið fékk þó að njóta sín að- eins lengur og tók hann þátt í nokkrum rallkeppnum sem aðstoðarökumaður og til ársins 1982, er hann lenti í harkaleg- um útafakstri á Reykjanesinu með Haf- steini Haukssyni sem síðar fórst í rall- keppni í Englandi árið 1984. „I þessu óhappi braut ég tvo hryggjarliöi að nauðsynjalausu. Við flugum etna 160 metra beint á klett og sprengdum hann í tætlur og em brotin úr honum hér úti í garði hjá mér til skrauts." öryggisbelt- ið hafði verið sett skakkt í bílinn og batt það enda á feril Ólafs sem kappaksturs- manns. Eftir þetta helgaði hann sig stjómunarstörfum og hætti keppni vegna eymsla í baki. „Það er ekkert minna skemmtilegt" segir hann og telur að það sé kosturinn við mótorsportið. „Maður getur verið virkur og í fremstu röð í aksturskeppni allt frá tíu ára aldri til fimmtugs, hvort sem þar er kappakst- ur, rall eða annaö, og verið svo í stjóm- unar- eða dómarastörfum restina af æv- inni.“ Ólafur var kjörinn forseti Lands- sambands íslenskra akstursíþrótta- manna, LÍA, 1991 og eftir að sambandið tók við FLA-aðildinni af FÍB á íslandi árið 1992 bauð Ólafur sig strax til starfa á alþjóðlegum vettvangi og kynntist fljótlega forseta FLA, Max Mosley, sem öll Norðurlöndin studdu þegar hann bauð sig fram. Fram að þeim tíma hafði Ólafur einnig verið virkur í Norður- landasamstarfi akstursíþróttasamband- anna frá 1981. Þekking á reglnm lykilatriði Um leið og Ólafur hafði komist í kynni við menn hjá FLA voru honum strax falin verkefni og hann sendur til dómgæslu á keppni í Formúlu 3000 og var þar með hent út í djúpu laugina. „Ég hafði náttúrlega ekki hugmynd um hvað Formúla 3000 var en maður settist bara niður og las og kynnti sér reglum- ar.“ Það sem auðveldar störf dómara frá íslandi þegar hann kemur í erlenda keppni, sem hann þekkir lítið, er að hér em notaðar nákvæmlega sömu grunn- reglur og um allan heim, hvort sem um er að ræða Formúlu 1 á Ítalíu eða Gó- kart á íslandi. „Við fórum öll eftir því sem kallað er Intemational Sporting Code sem er hálfgerð stjómarskrá akst- ursíþróttamanna." Síðan þá hefur Ólaf- ur verið dómari við mörg tækifæri og í mörgum löndum. Úr Formúlu 3000 fór hann i Evrópumeistarakeppninni í ralli og var þar í tvö ár og síðan í Grand To- uring þangað til á síðasta ári, er hann var kallaður í sina fyrstu dómgæslu í Formúlu 1 á Monza fyrir nákvæmlega einu ári. „Við það færist maður upp á næsta þrep fyrir ofan, þar sem allir sem dæma í Formúlu 1 og 3000 þurfa að vera með svokallað Formula One Super Licence, skírteini sem FLA gefur út á alla lykilmenn í Formúlu l.“ Að sögn Ólafs hafa innan við 100 manns í heim- inum slík skírteini sem em flokkuð nið- ur á ökumenn, liðsstjóra, dómara og stjómendur. „Ástæðan fyrir því að ég var fenginn til að dæma i Formúlu 1 svona snemma er kannski sú að menn þar sáu að maður fer eftir reglunum hjá FLA og hefur gert í gegnum tíðina. Þeir hafa líka séð það eftir öll þau læti sem hafa verið í mótorsportinu hér heima undanfarin þijú til fjögur ár að ég barð- ist fyrir því að farið yrði eftir lögum FLA,“ segir Ólafur, en talsverður klofn- ingur hefur átt sér stað i LLA og stóð Ólafur styrkum fótum í þeirri baráttu. „Max Mosley er búinn að fylgjast með þessu allan tímann og hefur séð að hér em til menn sem kunna reglur FLA og berjast fyrir þvi af lífi og sál að þær séu haldnar. Einnig hjálpar það kannski til að íslendingar ættu t.d. að vera tiltölu- lega hlutlausir þar sem héðan kemur ekkert lið eða ökumaður.“ Hugsanlega fastadómari í framtíðinni Þrátt fyrir allan töfraljómann sem fylgir starfi Ólafs fyrir FLA má ekki gleyma því að alla keppnishelgina er hann í fullri vinnu frá mörgni til kvölds. Þrátt fyrir mikið starf, ferðalög, fjarvem frá fjölskyldu og geysilegt pen- ingaflæði i Formúlu 1 þá eru dómarar kappakstursins launalausir. „Sam- kvæmt lögum FLA er bannað að geiða okkur laun,“ segir Ólafur sem nýtir eig- in frítíma í þessa vinnu. „Við megum ekki vera tengdir neinu liði eða fram- leiðanda. Það er aðéins borgað fyrir út- lagðan kostnað þvi dómgæslan getur meðal annars falist í gagnrýni á FIA. Við erum óháðir og dæmum einungis út frá eigin sannfæringu." f hveiju skyldi svo starf hans sem dómara felast, hvort sem það er í For- múlu 1 eða öðru? „Það snýst fyrst og fremst um öryggi, að allt sé í lagi í keppninni, að allt fari heiðarlega fram og eftir reglum. í því felst þar meö að refsa ökumönnum, þurfl að koma til þess, og í þriðja lagi að sjá til þess að dagskrá keppninnar haldi áætlun." Þetta er starf þeirra þriggja dómara sem sjá um dómgæslu á þeim sautján keppn- um í Formúlu 1 sem háðar eru á ári hverju. Einn dómari er skipaður af þvi landi sem heldur keppnina en hinir tveir af FLA. Tuttugu og einn dómari er á lista FLA. Fjórir þeirra eru fastadóm- arar, sem skipta stöðugt á milli sín öll- um keppnunum, og sautján aðrir eru dómarar með þeim. Ólafur er kominn í sautján manna hópinn og getur því átt von á að dæma minnst eina keppni á ári á næstu árum. „Kannski verð ég fasta- dómari í framtíðinni, enda er ég yngst- ur þeirra sem eru að dæma í Formúlu 1 um þessar mundir, en þetta á allt eftir að koma í ljós. Kannski flyt ég mig yfir í rallið þvi andrúmsloftið þar er mun léttara og frjálslegra." Til auglitis við ökumenn Eins og flestir vita er mjög erfitt að komast i návígi við stjömur Formúl- unnar og margir ökumenn eru stór- stjömur og miklir persónuleikar. Er ekki erfitt að taka þessa menn á teppið og horfast í augu við þá og jafhvel skamma? „Ne,“ segir Ólafur ákveðinn. „Það skiptir mig engu máli hveijir þeir em. Við dæmum Formúlu 1 og 3000 samhliða og hittum ökumenn og liðs- stjóra á fundum, auk þess að kalla menn fyrir eftir efnum og ástæðum. í ár köll- uðum við til dæmis fyrir Rubens Barrichello, Tom Walkinshaw, Paul Stoddart og síðan menn úr Formúlu 3000 og fannst mér enginn munur á að dæma í málum þessara manna. Eini munurinn er sektampphæðimar sem em mun hærri í Formúlu 1,“ segir Ólaf- ur sem hefur þurft að dæma nokkra af

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.