Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2002, Qupperneq 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2002, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002 DV Fréttir FÍB-tryggingar bjóðast á nýjan leik eftir eins árs hlé: Samkeppni lækkar iðgjöldin - segir framkvæmdastjóri FÍB. Boöar allt að 20% lækkun bílatrygginga „Með því að bjóða félagsmönnum upp á FÍB-tryggingu, sem er einfald- lega vöruheiti á hagkvæmum kosti í tryggingum, erum við að efla sam- keppni á þeim fákeppnismarkaði sem hér er. Skortur á samkeppni hefur verið helsta ástæða þess hvað iðgjöld hafa hækkað langt umfram annað verðlag. Jafnvel hækkun skaðabóta réttlætir ekki þá miklu iðgjaldahækkun sem orðið hefur á ábyrgðartryggingum bifreiða á síð- astliðnum þremur árum. Aukin samkeppni kemur neytendum ör- ugglega til góða en við teljum okk- ur geta lækkað iðgjöld bílatrygg- inga um allt að 20 prósent," sagði Runólfur Ólafsson, framkvæmda- stjóri Félags islenskra bifreiðaeig- enda, FÍB, í samtali við DV. FÍB-trygging býðst nú félags- mönnum í FÍB á nýjan leik eftir eins árs hlé. FÍB hefur náð samn- ingum við nýtt vátryggingafélag, íslandstrygg- ingu, um að ann- ast tryggingar fyrir félagsmenn. Með þessum samningum segj- ast talsmenn FÍB enn á ný stuðla að lækkun ið- gjalda bílatrygg- inga hér á landi. Umsjón FÍB-trygg- ingar verður i höndum Alþjóðlegr- ar miðlunar eins og áður en ís- landstrygging annast vátrygging- amar sjálfar. Útboð á bílatryggingum á vegum FÍB árið 1996 varð til þess að erlent vátryggingafélag bauð FÍB-félögum mun lægri iðgjöld en áður höfðu þekkst. Munaði tugum prósenta á iðgjöldum. Hérlend tryggingafélög, sem ekki höfðu talið svigrúm til að lækka iðgjöldin, lækkuðu sín ið- gjöld verulega i kjölfarið. Þau við- brögð urðu öðru fremur til þess að færri fluttu tryggingar sínar en FÍB og erlent tryggingafélag höfðu von- ast eftir. Erlenda félagið hætti því starfsemi sinni hér á landi og FÍB- trygging varð ekki lengur valkostur á markaðinum. Runólfur ítrekar að FÍB sé ekki tryggingafélag heldur leiti bestu kjara fyrir sína félags- menn á markaðinum hverju sinni með aðstoð tryggingamiðlara, Is- landstryggingar í þessu tilfelli. Runólfur segir að FÍB-trygging stuðli að heilbrigðri samkeppni í bílatryggingum en hana hafi sár- lega vantað. „Hver 10% í sparnaði geta þýtt verulega upphæð fyrir trygginga- taka. Tryggingafélögin hafa til- hneigingu til að gera samanburð á verði trygginga erfiðan og flækja alla umræðu um mismunandi kjör á þessum markaði. En aðalatriðið er að fólk fari yfir hvað það er að greiða í tryggingar í dag og kanni hvað við höfum upp á að bjóða. Þá ætti munurinn að blasa við,“ segir Runólfur. Hann bætir við að nú bjóðist einnig húseigenda- og heimilis- tryggingar undir merkjum FÍB en þann valmöguleika hafi sárlega vantað síðast þegar FÍB-trygging var í boði. „Munurinn er hins vegar sá að við viljum hafa verðmyndunina i þessum tryggingum gagnsæja. Bílatrygging er skylda en við vilj- um ekki að afsláttur af henni sé háður því að fólk kaupi aðrar trygg- ingar. Afsláttur af einni tryggingu á ekki að vera háður því að önnur sé tekin og síðan þvers og kruss.“-hlh Runólfur Ólafsson. Farinn og á förum Á myndinni eru Axel Gíslason for- stjóri, sem sagt hefur starfi sínu iausu, og Kjartan Gunnarsson, fráfar- andi fulltrúi Landsbanka í stjórninni. Ný stjórn VÍS Ný stjóm Vátryggingafélags ís- lands hf. var kjörin á hluthafafundi I félaginu i gær. Vegna breytts éign- arhalds gengu fulltrúar Landsbank- ans úr stjórn. Nýja stjórn VÍS skipa nú Bogi Pálsson forstjóri, Eiríkur Tómasson framkvæmdastjóri, Guð- steinn Einarsson kaupfélagsstjóri, Ólafur Ólafsson forstjóri, Óskar H. Gunnarsson, fyrrverandi forstjóri, Sigurður Markússon, fyrrverandi framkvæmdastjóri, og Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri. Á fyrsta fundi stjómar var Þórólfur Gíslason kjörinn stjórnarformaður og Óskar H. Gunnarsson varaformaður. -hlh DV-MYND POK Gagn og gaman Þessir krakkar í Lækjarskóla í Hafnarfirði léku á als oddi þegar 1. áfangi nýs skólahúss var vígður í gær. Hraðskreytt herskip Von er á mjög nýtískulegu norsku herskipi til Eyja á sunnudagskvöld eða mánudagsmorgun. Um er að ræða tví- bytnu sem kemst á allt að 55 mílna hraða. Skipið er að koma frá Banda- ríkjunum þar sem það hefur verið í um ár. Áætlað er að ferðin frá Reykja- vik til Eyja taki aðeins um 3 klst. Eyja- féttir greindu frá. Fimmta þjóðahátíðin Þjóðahátið Vestfirðinga, sú fimmta í röðinni, verður haldin á Tálknafirði helgina 4. og 5. október. Hátið þessi er orðin kunn flestum landsmönnum. Til- efnið var i upphafi að auka samskipti fólks af erlendu bergi brotið, sem bú- sett er á Vestfjörðum, og heimamanna. Þar hefur um árabil búið fólk af tugum þjóðema og hafa hátíðir þessar stuðlað að auknum menningarsamskiptum við heimamenn. Betri afkoma Flugleiðir gera ráð fyrir að afkoma af farþegaflutningum félagsins í ágúst verði mjög góð vegna betri nýtingar og hagkvæmari samsetningar farþega- hópsins. I ágúst minnkaði fyrirtækið sætaframboð í millilandaflugi um 14% og farþegum fækkaði í sama mæli. í ágúst voru farþegar á leiðum til og frá íslandi 65% af heildarfjölda farþega en í ágúst í fyrra var þetta hlutfall 57%. Suðurnesjafréttir greindu frá. Brennisteinslykt Talsverð brennisteinslykt fannst í gær á Fljótsdalshéraði. Hún hefur fúndist í Fljótsdal, á Egilsstöðum og i Eiðaþinghá. Þá hefur verið hringt í Veðurstofuna frá Færeyjum og til- kynnt um brennisteinslykt. Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur segir líklegt að lyktin berist frá Skaftár- hlaupi. RÚV greindi frá. Norskur togari sökk við Grænland: 14 skipverjum bjargað - varðskipi Gæslunnar snúið við íslenskir framleiðendur tölvuleiks að slá í gegn: Risasamningur um dreifingu í Bandaríkjunum og Evrópu Norski rækjutogarinn Volstad Viking sökk á 1.400 metra dýpi um 50 sjómílur undan austurströnd Græn- lands klukkan 17.30 í gær. Annar norskur rækjutogari, Sæviking, var með skipið í togi á leið til Grænlands er það sökk. Öllum skipverjunum, 14 talsins, var bjargað um borð í Sævík- ing og er hann væntanlegur með áhöfnina til íslands á sunnudag eða mánudag. Fulltrúar norsku útgerðarinnar og tryggingafélags skipsins hér á landi höfðu samband við Landhelgisgæsl- una á fimmtudag og óskuðu eftir að- stoð við að draga skipið til hafnar. Lagði varðskip af stað til móts við skipin en þegar togarinn sökk var varðskipið komið að 200 mílna mörk- unum og var aðstoð þá afþökkuð. Áhöfn Volstad Viking varð vör við það um þrjúleytið aðfaranótt fimmtudags að lestir skipsins höföu fyllst af sjó en þetta viröist hafa gerst allskyndilega. Var skipið þá statt um 80 sjómílur undan austurströnd Grænlands. Allri áhöfn togarans var bjargað um borð í Sæviking á fimmtudagsmorguninn. Var ætlunin að draga togarann inn á fjörð á Grænlandi til að dæla úr honum sjó með aöstoö frá dælum um borð í varðskipinu. Síðan var gert ráð fyrir að reyna að draga togarann til hafn- ar á íslandi. Samkvæmt upplýsingum frá Land- helgisgæslunnni voru fregnir af ástæðum lekans afar óljósar og sam- band erfitt við skipin í gær.Togarinn er tæpir 70 metrar á lengd og er með rúmlega 100 tonn af rækju um borð. Auk þess munu vera um 200.000 lítr- ar af gasolíu í eldsneytistönkum tog- arans, auk smurolíu. -HKr. „Þessi samningur er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur en mestu erfiðleikar þeirra sem framleiða tölvuleiki er að komast með fótinn inn fyrir dymar hjá stórum dreif- ingarfyrfrtækjum. Það auðveldar eftirleikinn því samkeppnin er gríðarleg að komast á svona samn- ing,“ sagði Snorri Sturluson hjá fyrirtækinu Lightspeedgames sem hann á í félagi við Halldór Fannar Guðjónsson og tvo Bandaríkja- menn i Silíkondalnum í Kalifomíu. Fyrirtæki þeirra félaga gerði ný- verið stóran samning við stórt dreifingarfyrirtæki um útgáfu á leiknum Motor Siege sem er fyrir leikatölvur af gerðinni Playstation 2 og X-Box. í samningnum felst dreifing og markaðssetning á leikn- um á markaði í Bandaríkjunum og Evrópu. Samningurinn er gríðarleg lyfti- stöng fyrir Lightspeedgames. Þeir sem gerst þekkja segja að samning- ur eins og þessi geti numið á aðra milljón Bandaríkjadala. Snorri vildi ekki staðfesta neina tölu, sagði allar upphæðir í samningn- um trúnaðarmál. Hann sagðist hins vegar mjög ánægður með samning- inn og að hann veitti þeim félögum byr í seglin við frekari leikjasmíð- ar. Fyrirtækið Lightspeedgames stofnuðu þeir félagar í júní árið 2000 um framleiðslu á leikjum fyrir leikjatölvur. Fyrirtækið er í Sil- íkondalnum í Kaliforníu, um klukkustundarakstur suður af San Francisco. Þar starfa nú 13 manns, þar af fjórir íslendingar. Vefslóð fyrirtækisins er www.lightspeed- games.com. -hlh Blaöiö í dag Ssifcl Halla Margrét Velk af heimþrá Trúræknin vakti athygh nágranna Erlent fréttaljós Ávísun á frústrasjón María Reyndal Ragnar Ingl Aðalsteinsson öðruvísi brúðarkjólar Undir ísfjallinu Femin Ferðalag um Grænland Eins og að setja hundinn í kýmar Göng um Vaðlaheiði draumsýn? Fréttaljós Verkalýösfélag Vestfiröinga Níu verkalýðsfélög af 15 á Vestfjörð- um sem eiga aðild að Alþýðusambandi Vestfjarða sameinast í dag í Verkalýðs- félag Vestfirðinga. í hinu nýja samein- aða félagi verða rúmlega 1.400 manns. Af félögunum 6 sem standa utan við sameininguna er eitt sem þegar hefur ákveðið að ganga til samstarfs. F-listi um allt land Miöstjóm Frjálslynda flokksins hef- ur sent frá sér yfirlýsingu um að flokk- urinn muni bjóða fram í öllum kjör- dæmum landsins við alþingiskosning- ar að vori. Em þar með ítrekaðar fyrri yfirlýsingar forystumanna flokksins um framboðsmál. Árekstur við Jánblendið Umferðaróhapp varð við Jám- blendiverksmiðjuna á Grundartanga um ftögurleytið í gær. Tveir bílar skullu þar saman, en engin slys urðu á fólki. Bílamir era verulega skemmdir og þurfti að draga þá af vettvangi með kranabíl. Til Bandaríkjanna Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, borgar- stjóri í Reykjavík, hélt í gær í heimsókn til nokkurra borga í Bandaríkjunum, m.a. tO að kynna sér sam- starf sveitarfélaga á borgarsvæðum. Þá mun Ingibjörg Sólrún kynna sér skipu- lagsmál og samráð við íbúa í nokkrum borgum. Þá ætlar hún að skoða mögu- leika á auknu samstarfi Reykjavíkur og háskólaborgarinnar Madison í Wisconsin. Mbl. greindi frá. -HKr.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.