Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2002, Page 8
8
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 2002
Utlönd
DV
Höfuðstöðvar
Arafats rústaðar
ísraelski herinn vann að því
skipulega i gær að sprengja burtu
byggingar í kringum höfuðstöðvar
Yassers Arafats Palestínuforseta í
Ramallah á Vesturbakkanum. Á
meðan sat Arafat sem fastast á
skrifstofu sinni, sem lýst var sem
eyju í rústunum í kring.
Aögerðir ísraelsmanna við aðset-
ur Arafats hafa verið harðlega gagn-
rýndar og segja Sameinuðu þjóðim-
ar þær skemma fyrir friðarferlinu.
ísraelsmenn telja sig vera að svara
fyrir sig vegna tveggja sjálfs-
morðsárása í vikunni. Arafat er
sagður afar reiður þar sem hann sit-
ur fastur inni á skrifstofu sinni um-
kringdur rústum.
íraksdeilan:
Bush reynir að
tala Rússana til
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti virðist hafa orðið lítið ágengt í
tilraunum sínum til að vinna stuðn-
ing Rússa í íraksdeilunni. Banda-
ríkjamenn róa nú að því öllum
árum að afla fylgis við að knýja
fram heimild Öryggisráðs Samein-
■i
■í:
einkaþjálfun
Kennsla hefst í FIA skólanum
12. október kl. 9.00
r /
í Iþrótta- og Olympíumiöstöðinni
í Laugardal
Verö meö námsgögnum: gg qqq
Kennsla fer fram dagana:
12, og 13 .október
9. og 10. nóvember
16. og 17. nóvember
7. og 8. desember
Lokapróf veröur haldið í janúar.
Vinsamlegast greiöiö staöfestingargjaldiö
25.000 kr. um leið og innritun á sér staö.
Leggið inn áreikning 515-14-605933
undir PPI-FIA, nafni og heimilsfangi,
annars telst skráning ekki gild.
Kennslugögn má nálgast á skrifstofu
Planet Pulse aö Mýrargötu 2, 101 Reykjavík.
Frekari upplýsingar í síma 588 1700
á skrifstofutima.
uðu þjóðanna til að gera
árásir á írak, þrátt fyrir
að írakar hafi sagst
reiðubúnir að taka við
vopnaeftirlitsmönnum á
ný.
Bush talaði við Vla-
dimir Pútín Rússlands-
forseta í síma í gær þar
sem Pútin lýsti yfir vilja
sínum til þess að vopna-
eftirlitsmenn fari sem
fyrst inn í írak. Banda-
ríkjamenn vilja hins veg-
ar koma í veg fyrir að
vopnaeftirlitsmenn fari
inn í landið án ályktunar
George W. Bush
Þarf að sannfæra fjög-
ur ríki um ágæti
íraksinnrásar.
Öryggisráðsins. Auk þess hitti Bush
Igor Ivanov, utanrikisráðherra
Rússlands, á fundi í Washington í
gær. Eftir fundinn voru Rússamir
þöglir og gáfu ekki uppi þau orða-
skipti sem fram fóra. Það sem stend-
ur á milli Rússa og Bandaríkja-
manna er einmitt hvort
þörf sé á ályktun Öryggis-
ráðsins nú þegar írakar
hafa opnað á vopnaeftirlit.
Stjómmálaskýrendur
telja líklegt að Bush hafi
boðið Rússum lykilhlut-
verk í uppbyggingu í írak
eftir stríð og aðstoð við að
uppræta skæruliða í Ge-
orgíu.
Zhu Rongji, forsætis-
ráðherra Kína, hefur ekki
gefið upp afstöðu sína til
mögulegrar ályktunar Ör-
yggisráðsins.
Verkefni Bandarikja-
manna næstu daga verður að öölast
stuðning hinna rikjanna fjögurra í
Öryggisráðinu: Frakklands, Bret-
lands, Kína og Rússlands, en öll
hafa þau neitunarvald. Ef það geng-
ur ekki upp hyggjast þeir fara einir
inn í írak.
Indversk fjölskylda
Fjölskylda í fátækrahverfi viö Nýju-Delhi, höfuöborg Indlands, vinnur sig í
gegnum brunarústir heimilis síns í gær. Fjögurra ára stúlka lést og fjórir
slösuöust í eldsvoöa í hrörlegum kofahverfum höfuöborgarinnar í gær.
Hvíta húsið:
Kvartað undan
Hitlersummælum
Ari Fleischer, talsmaður
George Bush Bandaríkjafor-
seta, er æfur yfir ummælum
þýska dómsmálaráðherrans
Hertu Daeubler-Gmelin þar
sem forsetinn er nefndur í
sömu andrá og Adolf Hitler.
Þetta hleypir nýju blóði í
þýsku kosningabaráttuna
sem lýkur á morgun.
í viðtalið við svæðisfrétta-
blað er haft eftir Daeubler-G-
melin um stríðsham Bush
forseta: „Bush vill draga at-
hyglina frá vandamálum inn-
anlands. Þetta er sígild taktík. Hitler
notaði hana.“
„Þessi yfirlýsing dómsmálaráðherr-
ans er svívirðileg og óútskýranleg,"
sagði Ari Fleischer.
Þýski dómsmálaráðherrann gerði
tilraun til að útskýra orð sín í gær og
Herta ráðherra
Fékk yfír sig reiöi
Hvíta hússins en
segist saklaus.
sagði þá að þau heföu verið
tekin úr samhengi. Hún hafi
verið að tala um umræðu
sem hafi átt sér stað innan
Bandaríkjanna um að ágeng
utanríkisstefna dragi athygl-
ina frá innanríkismálum. Og
að þessa umræðu þekki Þjóð-
verjar frá dögum „Adolfs nas-
ista“. •
Þýska stjómarandstaðan
hefur gripið mnmælin á lofti
og krefst nú afsagnar ráð-
^___ herrans.
Kosningabaráttan í Þýska-
landi er nánast hnífjöfn, en Gerhard
Schröder kanslari virðist hafa örlítið
forskot á Bæjarann Edmund Stoiber.
Eitt helsta kosningamálið hefur verið
afstaða Þjóðverja tU fyrirhugaðrar inn-
rásar Bandaríkjamanna í írak, sem al-
menningur er frekar andsnúinn.
Þakkar fyrir þoturnar
Alexander Kwa-
sniewski Póllands-
forseti er hæst-
ánægður með
beiðni George Bush
Bandaríkjaforseta
til bandaríska
þingsins um að
veita Pólverjum
vaxtalaust lán til að endurnýja her-
þotuflota landsins. Hugmyndin er
að skipta á gömlum sovéskum vél-
um yfir í vestrænt nýjabrum.
Eyðnibaráttumanni sieppt
Kínverjar slepptu lausum úr
fangelsi þekktum baráttumanni
gegn eyðnissjúkdómnum í gær eftir
þriggja vikna fangelsi. Hann hafði
þá játað að hafa uppljóstrað ríkis-
leýndarmálum.
Indverskur mafíósi tekinn
Portúgalska lögreglan hefur haft
hendur í hári indversks mafiufor-
ingja í höfuðborginni Lissabon.
Hann er talinn viðriðinn lát um 200
manna.
Mikilvægar kosningar
Þingkosningar hófust í Slóvakíu í
gær og munu þær hafa afgerandi
áhrif á það hvort ríkið gengur í ESB
og Nató eða ekki. Margir óttast að
þjóðemissinninn Vladimir Meciar
komist til valda og einangri landið.
Stökk frá mömmu
Ellefu ára drengur í Madríd, höf-
uðborg Spánar, stökk út um glugg-
ann á þriðju hæð á heimili sinu í
gær þegar hann flýði högg móður
sinnar. Strákurinn lenti á handriði
og slasaðist og hefur móðirin verið
handtekin.
Losnar við andstæðing
Silvio Berlusconi,
forsætisráðherra ítal-
íu og ríkasti og valda-
mesti maður lansins,
losnaði við einn
helsta pólitiska and-
stæðing sinn í gær. Þá
hætti verkalýðsleiðtoginn Sergio
Cofferati afskiptum af pólitík og
ákvað að snúa aftur í gamla starfið
sitt i dekkja- og kapalfyrirtæki.
Ótti á Fílabeinsströndinni
Skelfdir íbúar borgarinnar Bou-
ake á FUabeinsströndinni lokuðu
sig inni á heimUum sínum í gær
þegar frestur uppreisnarmanna tU
að gefast upp var að renna út. Ætl-
unin var að senda þá í herinn.
Má ekki bjóða sig fram
Recep Erdogan, for-
manni vinsælasta
flokks Tyrklands, hef-
ur verið bannað að
bjóða sig fram í næstu
þingkosningum af
stjórnvöldum. Bannið
byggir á því að Erdog-
an hafi forðum hvatt tU íslamskrar
múgæsingar.
Aldraðir vinni lengur
Ný bresk skýrsla gefur tU kynna
að nauðsynlegt verði að seinka eUi-
lífeyrisaldrinum tU sjötugs svo aldr-
aðir eigi tU hnifs og skeiðar. Ástæð-
an er lengra æviskeið.
Breskt nautakjöt í lagi
Matvælaeftirlit Frakklands viður-
kennir að breskt nautakjöt sé al-
menningi ekki lengur hættulegt.
Ekki eru uppi áform um að leyfa
það aftur.