Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2002, Síða 9
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMBER 2002
DV
9
Fréttir
Fjárlagafrumvarpið:
Ný reglugerð um
Fyrst og fremst
síldveiðar í vörpu
Sjávarútvegsráðuneytið hefur að
fengnum tillögum Hafrannsókna-
stofnunarinnar gefið út tvær reglu-
gerðir varðandi síldveiðar með
vörpu. Að undanfornu hafa veiðieft-
irlitsmenn orðið varir við aukaafla
ýmissa tegunda í flotvörpu síld-
veiðiskipa. Því hefur verið ákveðið
að aðeins sé heimilt að stunda sfld-
veiðar með vörpu utan 12 sjómílna
frá viðmiðunarmörkum. Þá hefur
orðið vart talsverðs magns smásíld-
ar í afla síldveiðiskipa við Austur-
land og hefur komið til skyndilok-
ana á svæðinu af þeim sökum.
Ráðuneytiö hefur því gefið út reglu-
gerð þar sem allar sildveiðar eru
bannaðar um ótiltekinn tíma. -GG
Örtröð í Blóðbankanum
Almenningur hefur brugöist vel viö neyðarkalli Blóöbankans en þar var nánast oröin algjör þurrö á blóöinnstæöum gef-
enda. Stóö starfsfólk sjúkrahúsa því frammi fyrir þeim vanda aö þurfa aö fresta aögeröum vegna blóöskorts. Þá var
hjúkrunarfólk meö krosslagöa fingur með þá von í hjarta aö ekkert slys bæri aö höndum sem skapaö gæti neyöará-
stand vegna blóðleysis. Úr þessum vanda rættist heldur betur i gær og voru biöraöir fólks í Blóöbankanum sem beiö
þess aö gefa blóö.
Einstaklingar skatthærri hér
en í samanburðarlöndum
- segir Rannveig Guðmundsdóttir, þingmaður Samfylkingar
Lára Stefánsdóttir
Dansari og danshöfundur
Ég vel Sekonda af
því að þau eru létt
og þœgileg og
þau eru á fínu verðiV^
8.900 kr.
í tengslum við
fjárlagafrum-
varpið, sem er til
umræðu þessa
dagana á Al-
þingi, hefur
Rannveig Guð-
mundsdóttir,
þingmaður Sam-
Rannveig fylkingar, lagt
Guðmundsdóttir. fram fyrirspurn
tii Davíðs Odds-
sonar forsætisráðherra um heildar-
skattbyrði einstaklinga sem Rann-
veig segir að undirstriki án vafa þá
stefnu ríkisstjórnarinnar að færa
skattbyrðina frá fyrirtækjum til
einstaklinga. Heildarskatttekjur ís-
lenska ríkisins sem hlutfall af
vergri landsframleiðslu hafi hækk-
að 25,3% árið 1995 í 29,4% árið 2000
meðan heildarskatttekjur í ríkjum
OECD hækki úr 36,1% í 37,4% á
sama tíma. Þegar skoðaðir séu
tekjuskattar og útsvar einstaklinga
sem hlutfall af vergri landsfram-
leiðslu á sama tíma fari hlutfall hér
á landi úr 9,8% í 12,8% á árunum
1995 til 2000. Tekjuskattar lögaðila
hafi á árunum 1995 til 2000 verið 1,0
til 1,5% af landsframleiðslu en
lækki í 1,2% á árunum 2000 og 2001.
Sömu skattar af vergri landsfram-
leiðslu í ríkjum OECD séu þrisvar
sinnum hærri þar en hér.
„Þetta eru fróðlegar tölur miðað
við yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar
um skattalækkanir og mikilvægt að
fólk geri sér grein fyrir á hverjum
sé verið að lækka skatta. Hér eru
skattar lækkaðir á stórfyrirtækjum
meðan skattbyrðin þyngist á ein-
staklingum, sérstaklega á launa-
fólki; lífeyris- og bótaþegum. Það
hefur verið lögð áhersla á að skapa
fyrirtækjunum i landinu góð skil-
yrði og við séum samkeppnishæf,
og fyrirtækin fari ekki úr landi. En
ég vek sérstaklega athygli á því að
ekki eru komnar til framkvæmda í
þessum tölum stóru breytingarnar
sem samþykktar voru í síðustu fjár-
lögum en þá kemur til fram-
kvæmda skattalækkun niður í 18%
af skatttekjum fyrirtækja sem kem-
ur á árunum 2003 og 2004 en sú
skattalækkum kostar ríkissjóð um
4 milljarða króna. Hér bera einstak-
lingar í miklu meira mæli skatt-
byrðina en fyrirtækin í þeim lönd-
um sem við berum okkur saman
við. Þetta er óeðlileg þróun. Þegar
skattar eru lækkaðir á einstakling-
um án þess að persónuafsláttur eða
skattleysismörk séu hreyfð þá er
verið að létta mest á þeim sem
hæstar hafa tekjurnar. Þeir sem
hafa lægstu tekjumar sitja eftir,
þeir bera engar skattalækkanir úr
býtum og á næsta ári verður létt á
stórum fyrirtækjum sem hafa mikl-
ar tekjur. Tryggingagjaldið verður
hækkað sem mun bitna mjög
harkalega á litlu fyrirtækjunum
sem hafa ekki miklar tekjur en eru
með nokkurn mannafla," segir
Rannveig Guðmundsdóttir. -GG
t§n
og þú átt raöguleika á að vinna 1 » —*
heimsreisu fyrir tvo . | I H
Það er gott húsráð að setja Lottó í áskrift því maður veit aldrei
hvenær réttu tölurnar koma. Og svo getur maður unnið
Á lotto.is eða næsta sölustað. heimsreisu fyrir tvo! Það verður dregið í desemberlok.
s$ndux $e<
cn
S
'c
c
‘5
V