Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2002, Síða 31
LAUGARDAGUR 30. NÓVEMDER 2002
Helcjo rblaö H>"V
3 I
Ridsdale fer
hvergi
Hinn umdeildi stjórnarfor-
maður Leeds Utd., Peter Rids-
dale, er ekki á förum frá félag-
inu en hann var í gær endur-
kjörinn stjórnarformaður félags-
ins með miklum meirihluta,
96,7% atkvæða. Ridsdale til-
kynnti á fundinum að allir
kraftar hans færu í að vinna fyr-
ir Leeds í framtíðinni og því hef-
ur hann sagt stöðu sinni hjá
enska knattspyrnusambandinu
lausu. Stuðningsmenn Leeds
eru fjarri því að vera ánægðir
með gengi Leeds á þessari leik-
tíð. Þeir vilja meina að hluti
vandamálsins sé Ridsdale og að
hans tími sé liðinn en það er nú
ljóst að hann fer hvergi á næst-
unni.
Les á
lausu
Glenn Hoddle, stjóri Totten-
ham, segist ekki ætla að standa
í vegi fyrir þvi að framherjinn
Les Ferdinand fari frá félaginu.
Ferdinand gagnrýndi Hoddle
harkalega á heimasíðu sinni eft-
ir aö Hoddle hafnaði lánstilboði
frá Wolves í Ferdinand. Þau
hafa veriö fá tækifærin sem
hinn 35 ára gamli Ferdinand
hefur fengið í ár og koma
Robbie Keane til félagsins hefur
orðið þess valdandi að Ferdin-
and á ekki öruggt sæti í liðinu
lengur. Hoddle segist vera bú-
inn að ræða málin við Ferdin-
and og að honum sé velkomið að
fara frá félaginu er leikmanna-
markaðurinn verður opnaður á
ný í janúar.
Sukur til
Blackbum
Tyrkneski framherjinn Hakan
Sukur mun fá samningstilboð
frá enska úrvalsdeildarfélaginu
Blackburn Rovers um helgina.
Sukur hefur verið samningslaus
síðan í sumar er hann yfirgaf
herbúðir ítalska félagsins
Parma. Þessi magnaði fram-
herji, sem meðal annars hefur
leikið á Ítalíu, fær samning út
þessa leiktíð og ef honum líkar
vistin sem og að hann stendur
sig á hann möguleika á að fá
nýjan samning næsta sumar.
Sóknarleikur Blackbum hefur
ekki verið mjög öflugur í vetur
og þeir félagar Andy Cole og
Dwight Yorke hafa til að mynda
aðeins skorað fimm mörk til
samans. ítalinn Corrado Grabbi
hefur litlu bætt við þann marka-
fjölda.
Ravanelli
græðir
Silfurrefurinn Fabrizio
Ravanelli fær væntanlega væna
útborgun frá Derby County svo
þeir geti losað hann af launa-
skrá félagsins. Derby á í mikl-
um fjárhagskröggum og hefur
ekki efni á Ravanelli sem er með
rúmar 5 milljónir í vikulaun.
Þar að auki er Ravanelli meidd-
ur og er ekki búist við honum á
ný fyrr en í apríl. Því finnst for-
ráöamönnum Derby gáfulegra
að greiða honum væna summu
fyrir að fara frá félaginu.
-HBG
Nýr og
betri maður
Roy Keane, fyrirliði Manchester
United, segist vera búinn að læra
af reynslunni og hann muni mæta
til leiks á nýju ári í betra formi,
sterkari og gáfaöri. Keane hefur
ekkert leikið síðan í byrjun sept-
ember er hann gekkst undir aðgerð
á mjöðm en hans er vænst í lið
United á ný í janúar. Fjarvera
hans á knattspyrnuvellinum hefur
þó ekki komið í veg fyrir að hann
hafi komist á forsíður bresku blað-
anna. Ævisaga hans ásamt mynd-
bandi, sem komu út nýlega, hafa
valdið miklu fjaðrafoki á Bret-
landseyjum vegna ummæla sem
þar koma fram og ættu að vera
flestum kunn. Keane segist
þroskast i hvert skipti sem hann
meiðist og fyrir vikið mæti hann
heilsteyptari til leiks á ný. Hvort
honum tekst að standa við þessi
orð á eftir að koma í ljós en í síð-
asta leik sínum fyrir uppskurðinn
var hann sendur í bað með rautt
spjald. -HBG
Roy Keane hefur oftar en ekki látið skapið hlaupa ineð sig í gönur á
knattspyrnuvellinum en hann segist vera að róast. Reuter
Notalegt heimili...
Falleg gjafavara...
-3
Gjafavara, sófar, skápar, hillur, kommóður, borðstofuhúsgögn, stólar, útiarnar og fleira