Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1956, Side 2

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1956, Side 2
58 stjóm Dana stóð sem klettur gegn öllum umbótum á því sviði, og í hitanum um stjórnarskrárdeiluna hurfu innan- landsmálin að verulegu leyti í skuggann á vettvangi lands- málanna. Umbætur og framfarir í efnahags- og menningar- málum þjóðarinnar urðu því næsta hægfara. Bar þar margt til. Fjármagn var lítið, og spart haldið á því litla fé, sem til var. Þjóðin þoldi ekki miklar álögur, og rótgróin andúð ríkti á því, að auka útgjöld til opinberra þarfa. Ráðgjafinn danski, sem með íslandsmál fór, var næsta skilningslítill á þarfir íslendinga, og forystumenn þjóðarinnar margir hverjir voru bundnir á klafa aldagamals vana og eygðu ekki möguleika til úrbóta eða breytinga, og jafnvel fannst sumum hið gamla harla gott. Ofan á allt þetta bættust svo óvenjuleg harðindi um nær heilan tug ára, eða frá 1880-1888. Vonleysi greip þjóðina, og menn þyrptust til Vesturheims, svo að þær ferðir gleyptu ekki einungis alla fólksfjölgunina, heldur fækkaði þjóðinni raunverulega um nokkurra ára skeið. Ýmsir ágætismenn sáu þó, að við svo búið mátti ekki leng- ur standa. Þeim var ljóst, að vér yrðum að snúa oss af meira kappi en áður að umbótum innanlands, eflingu atvinnu- veganna og aukinni menntun þjóðarinnar, hvað sem liði deilunum við Dani. Einn þeirra manna, sem mikið gætti síðari hluta þessa tímabils og ef til vill hefur haft einna gieggstan skilning á hvar skórinn kreppti mest, var Páll Briem amtmaður, en hann kemur fram á opinberan vett- vang þjóðmálanna í lok harðindakaflans mikla, þegar Ame- ríkuferðimar voru í algleymingi og deilan við Dani mátti kalla komin í sjálfheldu. Páll Jakob Briem var fæddur að Espihóli í Eyjafirði. 19. okt. 1856. Var hann sonur Eggerts sýslumanns Briem og konu hans Ingibjargar Eiríksdóttur. Ólst hann upp með foreldrum sínum á Espihóli og síðar í Skagafirði, að Viðvík,

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.