Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1956, Síða 12
68
var það sem koma skyldi, enda þótt sumt hefði vafalaust
valdið honum vonbrigðum, ef hann hefði lifað. En allt
um breytta hagi má enn margt af grein þessari læra, og
vér hljótum að undrast af hve mikilli framsýni og dirfsku
hún er skrifuð. Hinsvegar mun það rétt athugað hjá dr.
Þorkeli Jóhannessyni, að eggjunarorð Páls Briem: „Meiri
skattar — meiri framfarir,“ hafi átt drýgstan þáttinn í að
fella hann frá þingmennsku, er hann bauð sig fram í Húna-
vatnssýslu 1901 og 1902. Annars sagði mér mætur Húnvetn-
ingur, er mundi þá atburði, að þar hefði einnig ráðið
nokkru um sá bændametnaður „að fella amtmanninn“, án
tillits til skoðana hans eða hæfileika, heldur einungis af
því að hann var embættismaður.
Þess er áður getið, að Páll Briem naut nokkurs styrks
til framhaldsnáms í lögum. Varð hann flestum mönnum
lærðari um íslenzka löggjöf fyrr og síðar, enda gæddur
gáfum vísindamannsins. Bera ritgerðir hans þess Ijóst vitni,
einkum hinar stærri þeirra í Lögfræðingi, að þær eru unnar
af nákvæmi og alúð vísindamannsins. Framsetning er ljós,
enda eru þær skrifaðar með það fyrir augum, að almenn-
ingur fái eigi síður haft þeirra gagn en hinir skriftlærðu.
Þegar umræða hófst um stofnun lagaskóla hér á landi,
höfðu menn augastað á Páli Briem sem forstöðumanni
hans, og loks er stofnun skólans var ráðin, „var það opin-
bert leyndarmál, að nýja stjórnin ætlaði honum forstöðu
skólans“, segir Klemenz Jónsson.
Páll Briem féll frá ungur að aldri, aðeins 48 ára gamall.
Margir eiga þá ólokið mestu af störfum sínum. Fyrir þessa
sök auðnaðist honum ekki að komast inn í fyrirheitna land-
ið. Hugsjónamál hans og baráttumál áttu mörg enn langt
í land að rætast, en furðu gegnir þó, hve margt af því,
sem hann berst fyrir, hefur orðið að veruleika, enda þótt
þáttur hans hafi gleymst oftar en skyldi. Áhrif hans hafa
því orðið furðu drjúg í þjóðfélaginu. Má ekki sízt rekja það