Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands


Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1956, Page 32

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1956, Page 32
88 svipaðra kjara írá ríkisins háliu og sjávarútvegurinn nýtur. Og væntanlega dettur engum í hug, að dregið verði úr fisk- framleiðslunni, þó að erfiðleikar hrjái þann atvinnuveg um skeið. Það er mikið talað og margþvælt orðið um flótta unga fólksins úr sveitinni og þjóðarvoði talinn með réttu. Ýmsu er um kennt, en stundum vill það gleymast, hverjar höfuð- orsakir liggja til þeirra þjóðflutninga. Áreiðanlega er höfuð- orsökin fjárskorturinn. Skortur á framlögum og nægilegu lánsfé með viðeigandi kjörum til framkvæmda, jarða- og bú- stofnskaupa, svo og erfiðleikar ýmissa að fá jarðnæði til ábúðar. Nú er auðvitað ekki hægt að ætlast til þess, að allir þeir, sem upp eru aldir í sveit, vilji verða bændur, enda ekki æskilegt. Svo er margt sinnið sem skinnið, og gildir það engu síður um sveitaæskuna en aðra æskumenn þessa lands. Hins er ég fullviss, að ef sköpuð væru skilyrði fyrir þá ungu menn, sem búa vilja, mundi enginn hörgull á verðandi bændaefnum, enda áreiðanlegt, að býsna margir flýja sveit- ina fyrir þá sök og þá eina, að viðunandi jarðnæði er hvergi að fá. Þetta þýðir raunverulega það, að hópur ungra manna lætur sér ekki í augum vaxa þá erfiðleika, fjárhagslega og annars eðlis, sem nýbýlingum og mörgum frumbýlingum óhjákvæmilega mæta, ef þeir aðeins ættu kost á landsskika, sjáandi þann reginmun, sem á því er að stofna til heimilis í sveit eða kaupstað og þann mismun, sem hlýtur að verða, fyrstu árin a. m. k., á efnahagslegum kjörum og skilyrðum öllum til að lifa mannsæmandi lífi. í nýlega útkominni blaðagrein eða blaðaviðtali ræðir Pálmi landnámsstjóri Einarsson nokkuð um þessi mál, en hann er þeim eðlilega allra manna kunnugastur. Segir þar m. a., að síðan 1947 hafi verið stofnað til 540 nýbýla og þar af 80 á síðasta ári. Er það raunar undravert, hversu margir leggja út á þá braut, þegar tillit er tekið til aðstæðna allra,

x

Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands
https://timarit.is/publication/268

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.