Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 02.02.1956, Síða 76
132
Gj öld:
1. Kostnaður við Ársrit Rf. N1........... kr. 40.000.00
2. Sjóðatillög.............................. — 3.000.00
3. Aðalfundur og stjórnarkosn.............— 6.000.00
4. Kynningar- og fræðslustörf............. — 7.800.00
5. Ýmislegur kostnaður .................. — 1.200.00
Kr. 58.000.00
6. Óákveðin mál. Guðmundur Jósafatsson ræddi um
nauðsyn þess að bráðlega færi fram ýtarleg rannsókn á beit-
arþoli lands og landþörf búpenings. Til máls tóku: Haf-
steinn Pétursson, Steindór Steindórsson, Árni Jónsson, Jón
Sigurðsson, Ketill Guðjónsson, Ólafur Jónsson, Karl Arn-
grímsson. Svohljóðandi tillaga var samþykkt í einu hljóði:
„Aðalfundur Rf. Nl., haldinn á Akureyri 18. ágúst 1956,
skorar á Tilraunaráð og Búnaðarþing, að beita sér fyrir því,
að hafin sé hið bráðasta ýtarleg rannsókn á beitarþoli lands
og landþörf búpenings."
7. Kosningar. Úr stjórninni átti Steindór Steindórsson að
ganga og var hann endurkosinn til næstu þriggja ára. Til
vara var kosinn Sigurður O. Björnsson, til sama tíma. End-
urskoðendur voru kosnir: Hólmgeir Þorsteinsson og Eggert
Davíðsson, til eins árs.
Formaður félagsins, Steindór Steindórsson, talaði nokkur
orð um félagsstarfið. Þakkaði fundarmönnum fyrir góða
fundarsetu og óskaði þeim góðrar heimkomu.
Fleira ekki fyrir tekið.
Fundargerð lesin.
Fundi slitið kl. 15.50.
Steindór Steindórsson.
Jón G. Guðmann.
Helgi Kristjánsson.