Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Blaðsíða 36
framleidd 47% innanlandsneyslunnar kemst hann að þeirri
niðurstöðu að framleiðsla eins manns í landbúnaði eða í
óbeinum tengslum við hann nægi til að framfleyta 10,5
manns.
Fjármagn. Þegar fjallað er um fjármagnsnýtingu í landbún-
aði er næsta fánýtt að nota sem mælikvarða síbreytilegt
verðlag á pappírskrónum. Þess í stað notar Blaxter orkuþörf-
ina vegna framleiðslunnar sem mælikvarða á þróunina. Hann
birtir eftirfarandi tölur um orkunotkun í breskum landbúnaði
á ári:
JxlO15
Eldsneyti................................. 144,5
Áburður................................... 129,3
Vélar...................................... 48,8
Fóðurframleiðsla............................ 2,1
Flutningar................................. 15,7
Samtals................................... 340,4
Þegar hann tekur síðan matvælaframleiðslu alveg á borð
neytandans líta tölurnar þannig út:
JxlO15
Landbúnaður............................... 400
Matvælaiðnaður og flutningur.............. 978
Á heimilinu............................... 728
Vegna innflutnings........................ 208
Samtals...................................2314
Þannig eyðast um 9J fyrir hvert J sem framleitt er í mat-
vælum. Þetta er hlutur sem okkur er hollt að huga ofurlítið að,
vegna þess að útilokað er að slík þróun geti gengið endalaust
vegna þess að orkulindirnar eru tæmanlegar, hvað þá að við
getum enn hert á iðnvæðingu í landbúnaði.
En nú má fara að tengja saman þróun í mannafla og orku
(fjármagni) í landbúnaði. Þá fæst eftirfarandi tafla:
J er skammstöfun fyrir alþjóða orkueiningu Joule, en í einni kaloríu eru
um 4,2J.
38