Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Page 25
Lárusson orðnir ráðunautar hjá Rf. og er því óhætt að full-
yrða að leiðbeiningaþjónusta við bændur hafi síðustu fimm
árin verið eitt af aðalstarfssviðum Rf. bæði að formi til og í
raun.
Útgáfustarfsemi.
Við stofnun Rf. var strax ákveðið að það gæfi út árlega skýrslu
um störf sín. Árskýrsla félagsins sem út kom fyrst 1904, yfir
starfsemi félagsins 1903, hefur raunar lengst af verið miklum
mun meira en skýrsla enda og nafni breytt strax 1905 og þá
kallað ársrit, svo sem verið hefur síðan. I því hefur ætíð verið
mikið af margvíslegum fróðleik um búskap og búvísindi. Við
þær skipulagsbreytingar sem gerðar voru á félaginu 1952 var
þar rætt um að auka og efla ársrit félagsins. Var þá ákveðið að
ritið skyldi koma út þrisvar á ári og flytja fjölbreytt efni um
landbúnað, skógrækt, náttúrufræði o.fl. var enda Skógrækt-
arfélag Eyfirðinga skráð meðútgefandi með Rf. um nokkura
ára skeið. Á þessum árum (1952-1964) skrifar Olafur Jónsson
ritstjóri Ársritsins og framkvæmdarstjóri félagsins, mjög
mikið í ritið og með ólíkindum fjölbreytilegt efni, bæði um
allt er varðar búskap en einnig um jarðfræði, ástungur um
þjóðfélagsmál og margt fleira. Á þessum tíma rituðu að sjálf-
sögðu ýmsir aðrir í ritið og ég hygg að Ársrit Rf. hafi þá verið
eitt besta fagrit sinnar gerðar. Frá því Ólafur lét af ritstjórn
1964 hefur verið reynt að halda í horfinu, en hvernig það
hefur tekist verður ekki tekið til dóms af undirrituðum.
Á áttræðisafmæli Ólafs Jónssonar framkvæmdarstjóra Rf.
(í 40 ár) ákvað stjórn félagsins að gefa út bók sem Ólafur átti í
handriti. Fjallar bók þessi um berghlaup þ.e. hrun hins fasta
bergs úr fjallinu. Skiptist bókin í tvo megin kafla. Fyrst al-
menna skýringu og ástæður fyrir þessu hruni og síðar frásögn
og lýsingu af einstökum berghlaupum hér á landi. Fjölda
margir uppdrættir og myndir prýða bókina. Að þessari útgáfu
var fyrst og fremst unnið sumarið og haustið 1976 og kom
bókin út í desemberbyrjun það ár.
Á aðalfundum Rf. hin síðari ár hafa komið fram raddir um,
að fullmikið af efni Ársritsins væru tilraunaniðurstöður og
27