Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Blaðsíða 78
Fjall það, sem skilur umræddan dal frá Eyjafjarðardal,
heitir Torfufell. Ýmis sérnöfn koma svo fram í því, t.d. heita
fjallsbrúnirnar víða sínum sérnöfnum eftir atvikum. Fjalls-
tunga þessi milli dalanna er mjög fleiglaga, sem sést vel neðan
frá byggð. Þannig eru margir kílómetrar úr botni Torfufells-
dals austur á brúnir Eyjafjarðardals. Torfufellsdalur mun
vera um það bil 10-11 km langur. Fyrir botni Torfufellsdals er
fell eitt, sem nefnist Þverfjall. Vestan dalsins, nokkru norðar,
er Galtárhnjúkur, sem virðist lyfta sér vel upp í heiðið, enda
rúmt um hann — hæð 1100 m. Hann blasir við frá þjóðveg-
inum við Hólavatn. Undirhlíðar hans nefnast Galtártungur,
en þær takmarkast af Galtá að heiman. Sú á fellur mjög bratt
og er vatnsmikil og jafnan ill yfirferðar. Hún á upptök sín m.a.
í Galtárvatni vestur á Nýjabæjarfjalli — austan undir Miðás,
sem er grófur urðarhryggur á miðju fjallgarðsins og lækkar að
síðustu til suðurs og endar suðvestur af Galtárhnjúk. Það má
segja, að þar hafi fjallgarðurinn jafnað tengsl sín við megin
hálendið. Frá suðurenda Miðáss til Sigluness er nokkuð á
annað hundrað kílómetrar.
Víkjum nú aftur að dalabrúnum.
Alllangt norðan við Galtárhnjúk er hvöss fjallsbrík. Leyn-
ingsöxl, sem aðskilur Leyningsdal og Svardal. Norðan Svar-
dals ber mest á Selkambi, þá kemur Nautárgil og frá því og
allt að Hamragili norðanvert við Villingadalsbæ, heitir
fjallsbrúnin Efrafjall, niður undan því, miðhlíðis heita
Bungur og er form þeirra í samræmi við nafnið. Þær skiptast
að mestu í tvennt af myndarlegu gili, Fálkagili, sem þó skerðir
fjallsbrúnina ekki mikið. Bungurnar munu hafa sloppið vel
við ágang jökla á sínum tíma. Þær horfa líka vel við sól. Þvi
leiða menn gjarnan hugann að því, hvort það hafi ekki getað
leynst auðir blettir á svona stöðum, þar sem harðgerðar
plöntur gátu hafa skrimt af á ísöldum.
Alllangt norðan við Hamragil er klettahaust mikill ofan við
Jórunnarstaði, sem Tröllshöfði heitir. Milli Tröllshöfða og
Hamragils er hvilft mikil inn í fjallið, sem leynir á sér, en
þaðan mun efni það, sem Leyningshólar eru gerðir úr, vera
komið.
80