Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1978, Blaðsíða 88
STEFÁN AÐALSTEINSSON:
ATHUGASEMD
UM SUMARBEIT MJÓLKURKÚA
í Ársriti Ræktunarfélags Norðurlands, 74. árg. 1977, bls. 60-69
er grein eftir Þórarinn Lárusson, sem ber heitið: „Vangavelt-
ur um sumarbeit mjólkurkúa.“
I grein sinni vitnar Þórarinn til ummæla eftir Kristin
Jónsson, í Handbók bænda, 1960, bls. 220, þar sem Kristinn
setur fram eftirfarandi fullyrðingu:
„Þar sem kýr ganga á fullrœktuðu fyrsta flokks beitilandi, má
eftir að liðinn er vikutími frá því að kýrnar komu út og til loka
ágústmánaðar, taka allt kjarnfóður af þeim, sem mjólka
minna en 20 kg af 4% feitri mjólk á dag.“ (Leturbr. mín. S.A.)
Þórarinn fer síðan allmörgum orðum um tilraunaskýrslu
eftir Kristin Jónsson og undirritaðan (K.J. og S.A.: Tilraunir
með hagnýtingu ræktaðs beitilands handa mjólkurkúm
1954-1957), og ber tölur og ályktanir úr þeirri skýrslu saman
við tölur úr könnun, sem hann og Guðmundur Steindórsson
gerðu á sumarbeit mjólkurkúa í Eyjafirði. Svo er að sjá að
Þórarni finnist skakkar ályktanir hafa verið dregnar af Laug-
ardælatilraununum.
Þórarinn bendir m.a. á, að landþörf á kú hafi reynst þreföld
á við landþörfina í Laugardælum.
Mér finnst ástæða til að benda lesendum Ársritsins á, að í
skýrslunni um Laugardælatilraunirnar segir m.a. í saman-
dregnu yfirliti, bls. 61: „Næturhýsing hafði ekki teljandi áhrif
90