Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1911, Qupperneq 2
4
skóla síðastl. vetur ; var vel sótt og hepnaðist yfir-
leitt ágætlega. Eiga fulltrúar kost á ýtarlegri lýs-
ingu þess, ef óskað er. Til námsskeiðs þessa veitti
Sambandið 140 kr. styrk af þeim 200 kr., sem til
slíks eru ætlaðar. At þeim styrk geymir Sambandið
60 kr. og af styrknum 1910 25 kr., eða samtals
85 kr., i þeim tilgangi að draga saman fé til þess
að geta látið námskeið fara fram með tímanum í
fjærsveitunum, ef óskað kynni að verða, og að öðru
leyti unnt að koma þeim á.
5. Verkfærasýning við gróðrarstöðina hefir verið opin
árið 1911 —1912, eins og undanfarið.
6. A aðalfundi Sarnbandsins 1911 var það ráð upp-
tekið, að veita styrk af Sambaudsfé, 15 kr. í hvern
hrepp, móti jöfnu tillagi frá hreppnum til verðlauna
fyrir góða hirðingu sauðfjár og nautgripa. Þetta
hefir verið notað lítils háttar fyrir sauðfje en alls
eigi fyrir naut. Þó telur stjórnin rétt að halda áfram
í sömu átt í þeirri von. að mönnum lærist að nota
það, en hirðing búfénaðar er óneitanlega eitt af
hinum þýðingarmiklu undirstöðuatriðum landbún-
aðarins.
I sambandi við þetta telur stjórnin heppilegt að
Samb. eða stjórn þess hafi tillögurétt um útnefning
á öðrum skoðunarmanni i þeim hreppum, sem nota
vilja styrk þess til verðlauna.
7. Pöntunum verkfæra, sáðtegunda, áburðar o. fl. hefir
verið haldið áfratn eins og að undanförnu. Hafa
slíkar pantanir aldrei fyr numið jatnmikilli upphæð
sem í ár, eða ca. kr. 7000,00.
Ymsir erviðleikar eru á þessari starfsemi Sam-
bandsins, ekki sízt að því er óhentugar skipagöngur