Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1911, Blaðsíða 29
31
félagsins á Egilsstöðum. Frá 30. júlí til 11. ágúst
ferðaðist eg um Breiðdal eftir beiðni Búnaðarfélags-
ins þar.
í Eydölum mældi eg fyrir vatnsleiðslu í bæinn og
hallamældi fyrir áveitu á Árnastaðamýrar og Selbala.
Áveituvatnið tekið úr Selá. Þá athugaði eg ennfremur,
hvort tiltækilegt mundi að ná vatni úr Breiðdalsá yfir
Lambeyna með litlum kostnaði. En eigi virðist það
muni vera neitt ódýrt verk. Ennfremur athugaði eg
girðingarstæði, leiðbeindi um áburðarmeðferð o. fl. Á
Tóarseli athugaði eg og leiðbeindi um áveitu úr Skarðsá.
Og líka athugaði eg hvort bóndanum mundi vel kleift
að gera varnir gegu ágangi af Dalsá, sem hleypur á landið
og brýtur af engjum. Kostnaður virlist vera mikill,
en hinsvegar mjög óvist að hægt væri að bægja ánni
algerlega frá landinu, og hinsvegar eigi að ræða um
nema hjb. 50 liesta engi, sem þó er til núna að mestu
fyrir vatnagang úr Dalsá. Á Þorvaldsstöðum mældi eg
og merkti fyrir túngirðingu, og á Ásunnarstöðum skoð-
aði eg áburðarhirðingu hjá Stefáni bónda Árnasyni, sem
sótt hefir um verðl. fyrir áburðarhirðingu. Á Höskulds-
stöðum mældi eg stærð túnsins og í Höskuldsstaðaseli
fyrir áveitu í svonefndum „Flóa“.
I þessari ferð mældi eg fyrir áveituskurði úr Grímsá,
og fyrir stíflugarði til að ná ánni yfir Svæðurnar á Ket-
ilsstöðum á Völlum.
15.—16. ágúst fór eg á Seyðisfjörð.
24.—31. ágúst ferðaðist eg um Fljótsdal og Fell.
A Fljótsdal leiðbeindi eg í nýyrkju, garðrækt, áburðar-
meðferð og vatnaveitingum. Auk þessara leiðbeininga
mældi eg fyrir framræslu á túnauka á Skeggjastöðum
og Ási í Fellum.