Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1911, Blaðsíða 24
26
bæði frá 1. jan. til 10. mai og frá 1. nóv. til 31. de-
sember, og oftast 2 stundir á viku. Einnig kendi eg
við búnaðarnámsskeið það, er haldið var á Eiðum, dag-
ana 13—22. febrúar. Auk þess hefi eg haldið fundi
og fyrirlestra á ferðalagi mínu þar sem því hefir orðið
viðkomið.
Skriftir. Skriftir hefi eg haft allmiklar i ár. Hefi
skrifað um 330 bréf, 55 skýrslur og kostnaðaráætlanir,
og alllanga ritgerð um garðrækt í „Austra“. Auk
þess hefi eg í vetur skrifað fyrirlestra mína um garð-
rækt upp á ný og aukið nokkuð, hefi eg hugsað að fá
þá gefna út sérstaklega, en ekki er eg nema rúmlega
hálfnaður með þá enn þá.
Eins og að undanförnu hefi eg haft yfirumsjón með
gróðrarstöðinni á Eiðum og öllum eignum sambandsins
þar, og þeim tíma er eg hefi haft afgangs frá öðrum
störfum hefi eg varið til vinnu í gróðrarstöðinni.
Eiðum 10. jauúar 1912.
Ben. Kristjánsson.
Skýrsla
til Búnaðarsainbands Austurlands yfir störf mín
frá V6—31/12 1912.
1. júni tók ég við starfinu af fráfarandi starfsmanni
Sambandsins herra Benedikt Kristjánssyni.
4—6. júni dvaldi ég á Seyðisfirði til að veita nióf-