Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1911, Qupperneq 13

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1911, Qupperneq 13
15 kostnaðar fæddu plægjendur plógmann ókeypis. Séfæð- ið reiknað 1 kr. um daginn, verður kostnaður alls á □ faðm 1912 0,745 eyris og á dagsláttu kr. 6,70 og 1913 á □ faðm 0,956 eyris og á dagsláttu kr. 8,60. Plægingunum var þannig fyrirkomið, að Sambandið lagði til hesta og verkfæri öll, og réð plógmann. Borg- uðu svo plægjendur daglaun fyrir plógmann og hesta fyrir vinnudaga, en Sambandið fyrir ílutningsdaga milli búnaðarfélaga, svo og annan flutningakostnað. Plóga, aktygi og önnur áhöld lagði það til kauplaust. Nam þessi kostnaður alls 1912 kr. 588,23 og árið 1913 kr. 485,44, sem er að skoða sem styrk frá Sambandinu til plæginganna. Auk þess heíir það keypt 6 plóghesta fyrir samtals kr. 835,00. En fóður þeirra og rentu af verði borgar vinnan. Sumarið 1913 var herfað alls í 40% daga 33678 □ faðmar hjá 13 bændum. Mest herfing í stað var 9 dagar og 7200 □ faðm. og minst 1 dagur og 1450 □ faðm. Af hinu herfaða Iandi var grófherfað 27528 □ faðm. og fínherfað 6150 □ faðm. Herfingunum var svo fyrir komið, að einstakir herf- endur eða búnaðarfélög með samvinnu lögðu til hesta og borguðu daglaun herfara fyrir vinnudaga. En Sam- bandið kostaði ferðir milli búnaðarfélaga og lagði til 2 ný spaðaherfi, aktygi með hemlum og dráttarlínum og annað, sem þurfti. Nam sá kostnaður atls kr. 454,64 og er að skoða sem styrk til herfinganna. Sumarið 1912 veitti Búnaðarfélag íslands 250 kr. styrk til plægingarkenslu. Reynslan varð sú, að náms- menn fengust ekki nema fyrir fylstu daglaun, auk þess sem þeir eðlilega unnu að vonum lítið verk, og hlutu að sjálfsögðu að tefja vinnu plógmanns til muna, ef

x

Búnaðarsamband Austurlands

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.