Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1911, Síða 43

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1911, Síða 43
45 i jörðu. Mælar þessir eru á sléttlendi skamt frá loft- hitamælinum, í vel þurrum leirmoldar jarðvegi. Mun því næst, að þeir lýsi hitastigi í vel ræstum jarðvegi. 7. Heyvinna. í ár hafa verið heyjaðir tæpir 50 hestar í Hjartar- staðalandi handa Gróðrarstöðinni. Hey þetta verkaðist mikið vel, og var allt flutt heim jafnóðum og frá því gengið i húsi skamt frá Gróðrarstöðvarhúsinu. 8. Aðrar framkvœmdir. Plægðar upp hérumbil 4 dagsl. utan girðingar, og þar grafinn skurður til afleiðslu fyrir yfirborðsvatn. Eiðalækur hefir nú undanfarin ár brotið nokkuð af landi Gróðrarstöðvarinnar. 1 ár var farvegi lækjar- ins breitt. llonum grafinn nýr farvegur, en öflug stífla hlaðin í gamla farveginn. Stíflan er 2179 teningsfet og hinn nýji farvegur 2560. Húsið allt verið þrímálað uppi. Steyptar að því steintröppur. Reykháfur endurbættur að mun. Og loks grafið lokræsi 4’ djúpt að vestan og norðan við húsið, er verja skal uppgönguvatni í hesthús og kjallara. Auk þess hefir verið varið talsverðum tíma til end- urbóta á girðingum í kringum stöðina, og partur girt- ur af inni i stöðinni. Ekið á annað hundrað hlössum af möl á spildu, sem hefir verið fyrirhuguð til jarð- eplaræktunar. Og megnið af stöðinni svo plægt upp aftur i haust. Af trjám og runnum hefir verið gróðursett: 50 rauðberjaplöntur frá Akureyri. Frá Hallorrnsslað 200 pl. alm. reynir, 100 pl. björk, 100 pl. fjaiifura, 50 pl. Linus bancsiona og 50 pl. alnr. greni.

x

Búnaðarsamband Austurlands

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.