Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1911, Side 45

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1911, Side 45
4t Á9 lýsa hverju fyrir sig með miklum mólalenging- um, sem þá enda í engu eða litlu, er því með öllu mein- ingarlaust. Og eigi er rétt að gefa neina skýrslu um þetta ár nokkurntíma í heild sinni; má aðeins styðjast við einstök atriði í framtíðinni og meira ekki. Þrátt fyrir þetta, þótt árangurinn sé lítill á einstök- um árum, er ekki rétt að örvænta um tilraunastarfsemi hér á Austurlandi, eða álíta því fé illa varið, er til henn- ar gengur. Þegar við margfalda erfiðleika er að stríða, er einmitt miklu frekar nauðsyn á athugunum, svo að einhver reynzla fáist, og menn þurfi eigi að fálma í blindni. Mörg þýðingarmikil spursmál, fyrir jarðrækt Austurlands, hrópa á athygli og krefjast úrlausnar. Og hinn opinberi félagsskapur má eigi láta sér vaxa i aug- um að bera það mál fram til sigursælla úrslita. Fjórðungur þessi getur aldrei tekið sér til eftir- breytni alt sem jarðræktarnýungar hinna fjórðunganna leiða í Ijós, til þess eru skilyrðin of ólík bæði að einu og öðru. Ef menn vilja búa hér, verða þeir einnig að öðlast reynzlu, er bygð er á högum þeirra og háttum. Eiðum 31. desember 1912. B. G. Blöndal.

x

Búnaðarsamband Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.