Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1911, Side 57

Búnaðarsamband Austurlands - 01.01.1911, Side 57
59 Til athugunar: Allar umsóknir til Sambandsins eiga að vera komn- ar til stjórnarinnar fyrir lok janúarmán. ár hvert. Slík- ar umsóknir geta verið m. a.: 1. Um bændanámsskeið; 2. Um félagsplægingar; 3. Um verðlaun fyrir góða hirðingu búpenings; 4. Um verðlaun fyrir góða hirðing áburðar: Þessi verðlaun verða því aðeins veitt, að umsækjandi hafi lagarheld haughús og safngryfjur. 5. Um hrútasýningar. Þar leggur Sambandið fram fé til verðlauna, en hlutaðeigandi hreppssjóðir greiða ann- an kostnað við þær. Þarf sá kostnaður ekki að vera tilfinnanlegur, ef sýninganefndir og dómnefndir vinna kauplaust, sem víðast hefir verið. Þyki verðlaunafé Sambandsins of lítið, getur komið til mála, að hreppa- sjóðir bæti við það. Og einkum má búast við, að svo verði lagt fyrir, ef hreppar geta ekki eða vilja sameinast um sýningu. 6. Um störf og leiðbeiningar ráðunauts (mælingar, áætl- anir o. fl.). Slíka aðstoð fá búnaðarfélög, sem í Sambandinu eru, fyrir sig og einstaka meðlimi, án endurgjalds; þó fæða hlutaðeigendur ráðunaut, meðan hann starfar fyrir þá. Félög utan Sambandsins, og einstakir menn utan búnaðarfélaga, fá og leiðbein- ingar, ef því verður við komið, þegar ráðunautur á leið um. En fyrir það skal greiða þóknun, 6 kr. um daginn, eða tiltölulega fyrir parta úr dögum. I umsóknum um ráðunaut, skal tekið skýrt fram, hvers

x

Búnaðarsamband Austurlands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarsamband Austurlands
https://timarit.is/publication/273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.