Árbók Landsbókasafns Íslands - 01.01.1970, Blaðsíða 211
LÖG UM LANDSBÓKASAFN ÍSLANDS
211
íslenzkra bóka og handrita og önnur rit, er íslenzka bókfræði varða, eftir því sem
fé er veitt til í fjárlögum.
6. gr.
Landsbókasafn veitir viðtöku skyldueintökum frá íslenzkum prentsmiðjum (og öðr-
um þeim aðilum, sem tilgreindir eru í lögunum um afhendingu slíkra eintaka) og ann-
ast ráðstöfun þeirra samkvæmt reglugerð.
Safnið skal halda uppi og greiða fyrir bókaskiptum við erlend söfn og vísindastofn-
anir.
7. gr.
Landsbókasafn skal hafa samvinnu við önnur bókasöfn og sérfræðibókasöfn, sem
ríkisstofnanir og félög eiga, um bókakaup og bókalán. Halda skal uppi sérstakri skrán-
ingarmiðstöð fyrir sérfræðibókasöfn.
8. gr.
Háskóli Islands varðveitir Háskólabókasafn i Landsbókasafni undir yfirstjórn lands-
bókavarðar, er ný þjóðbókhlaða skapar skilyrði lil þess, jafnframt því sem stofnanir
Háskólans hafa söfn í sinni vörzlu.
Oflun erlendra rita og þjónusta í háskólaþarfir skal fara fram sameiginlega í sam-
ræmi við 2. tölulið 2. gr. auk 6., 7., 12. og 14. gr. Miðist starfræksla þessi við hand-
bóka- og námsþarfir stúdenta og kennsluundirbúning og rannsóknir innan Háskólans.
Skal undirbúningur þessa fyrirkomulags þegar hafinn.
9. gr.
Forseti skipar landsbókavörð. Landsbókavörður stýrir safninu undir yfirstjórn
menntamálaráðuneytisins.
Heimilt er að skipta safninu í deildir. Heimild þessi nær jafnframt til starfrækslu
þeirrar, er leiðir af 8. gr.
Menntamálaráðherra skipar bókaverði og aðra starfsmenn safnsins að fengnum
tillögum landsbókavarðar. Um tölu þeirra fer eftir því, sem fé er veitt til í fjárlögum.
10. gr.
Laun landsbókavarðar og annarra fastra starfsmanna skulu vera samkvæmt hinu
almenna launakerfi opinberra starfsmanna.
11. gr.
Landsbókavörður ræður bókakaupum til safnsins, eftir því sem fé endist til.
Bókaverðir skulu vera landsbókaverði lil fulltingis um bókaval, hver í þeirri grein
eða greinum, sem hann er kunnugastur.
Háskólaráð skipar safninu jafnframt ráðunauta um bókaval, svo marga og í þeim
greinum, er ástæða þykir til. Starf þeirra er ólaunað.