Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.07.1992, Síða 28
Um Chicagoför
sr. Matthíasar Jochumssonar 1893
Finnbogi Guðmundsson tóksaman
Eitt hið fyrsta, er birzt mun hafa á íslandi um hina fyrirhuguðu
heimssýningu í Chicago 1893, var auglýsing, er Otto Wathne setti í
29. tölublað Austra 28. október 1892, svohljóðandi:
Til veraldar-sýningar í Chicago,
ódýr skemmtiferð beina leið.
Undirskrifaður ætlar að senda gufuskip að vori beina leið frá Islandi yfír
Atlantshaí'og upp eftir St. Lawrence-fljóti og stöðuvatnaleiðina alla leið til
Chicago, svo framarlega að nógu margir áskrifendur fáist til ferðarinnar.
Svo er ráð fyrir gert, að skipið fari héðan að austan og norður og vestur
um land um miðjan maímánuð til þess að taka þar farþega, svo framarlega
sent hafís eigi bannar þá leið, og leggi síðast vestur frá Reykjavík.
Fargjald mun verða fram og aftur alla leið á káetuplássi um 200 kr.
Fæðispeningar 2-3 krónur um daginn.
í Chicago verður staðið við í hér um bil 14 daga.
Öll ferðin fram og aftur mun vara um 6 vikur.
Þeir sem vilja sæta þessu tilboði, geri svo vel og snúi sér bréflega eða
munnlega til undirritaðs, er býr í vetur í Frederiksborggade 41 1.
Kjöbenhavn K.
Seyðisftrði, 20. okt. 1892.
O. Wathne.
Ritstjóri Þjóðólfs tók þessa auglýsingu samkvæmt tilmælum upp
í blað sitt 16. desember 1892 (58. tölublað). Ritstjóra finnst
fargjaldið lágt og því óskandi, að svo margir landar vorir sæti því,
að af ferðinni geti orðið. Hann telji því miður litlar líkur til, að svo
verði, segir þó í lokin:
„En meira en meðalminnkun má það heita, ef enginn Islendingur héðan
að heiman sækir sýninguna, og eins og vér höfum áður drepið á hér í
blaðinu, finnst oss, að stjórnin ætti einmitt að hlutast til um, að einhver
fulltrúi mætti þar fyrir íslands hönd, og þá einkum sá eini íslendingur
(séra Matthías Jochumsson), sem fengið hefur tilboð þaðan að vestan um
að sækja sýninguna.