Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.07.1992, Síða 31
SR. MATTHÍASAR JOCHUMSSONAR 1893
31
ráð á, af eigin rammleik, að standast kostnaðinn við för þessa og engin
útsjón er því nú til, að hann geti komizt vestr, virðist oss það ætti að vera ljúf
heiðrsskylda vor Islendinga hér vestan hafs, sem allir munum fúslega
kannast við, að vér stöndum andlega í skuld við hann, að sýna þá
viðrkenning í verki með því að skjóta nú saman farareyri handa honum.
Vér erum vissir um, að það þarf ekki nema að hreyfa þessu máli til þess að
fá almennar undirtektir, og skorum vér á yður að gera það ið allra fyrsta, á
þann hátt, að þér álítið hagkvæmastan."
Jón ritstjóri fékk þegar heimild blaðstjórnarinnar til, að af-
greiðsla blaðsins og Aldarinnar yrði aðalmóttökustaður allra sam-
skota og við þeim tekið fram í apríl.
í Heimskringlu 8. apríl 1893 segir svo í stuttri frétt um sam-
skotin:
„Á tæpum sjö vikum hefir Heimskringla safnað saman $722.66
handa sér Matthíasi; það er: yfir $100 um vikuna að meðaltali.
Hátt á 15. hundrað manns hafa tekið þátt í samskotunum eða að
líkindum 8. hvert mannsbarn af íslenzku kyni í þessari álfu, með
að meðaltali nær liálfum dollars hver.“
Þetta fé var nú sent Matthíasi Jochumssyni, er orðinn var afhuga
ferðinni eftir öll leiðindin heima, en varð nú að hrökkva eða
stökkva. Lokin urðu þau, að hann réðst til fararinnar, sigldi frá
Akureyri 11. júní og síðan með viðkomu á Austfjörðum til
Skotlands, og við kornuna þangað hélt hann með lest frá Edinborg
til Liverpool. Hann lýsir þessum áfanga í ferðapistli, er birtist í
Þjóðólfi 4. ágúst 1893. Framhald ferðasögunnar fáum vér síðan í
riti því, er nefndist Chicagó-för mín 1893, er út kom á Akureyri
síðar á árinu. Því er skipt í fimm kafla.
1. Ferðalag mitt til Chicago,
2. Chicago,
3. Dvöl mín meðal landa vorra í Ameríku, og heimferð mín.
4. Álit um vesturfarir og afkoma manna þar, og
5. Chicago-sýningin.
Framan við ritið er þessi tileinkun:
Löndum mínum í Ameríku tileinka jeg þessi blöð
með virðingu og þökk.
M.J.