Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.07.1992, Page 53
BRÉF TIL STEPHANS G. STEPHANSSONAR
53
langað til, að við værum komnir nær hver öðrum. En á hinn
bóginn hefi ég haft í mörgu að snúast allan þennan tíma, með því
að ég hafBi þá fyrst um langan tíma skólakennslu á hendi, sem ég
þurfti að sækja langt að heiman, og svo að sjá um heimilið og síðan
að koma mér fyrir á alveg nýjum bústað, heimilisréttarlandi, þar
sem ég hefi nú gert mér heimkynni. Er það nú fyrst nú, að ég er
búinn að koma mér svo vel fyrir, að ég er farinn að hafa ofurlítið
næði og skipulag er farið að komast á hjá mér. Hefi ég lagt hart á
mig allan þennan undanfarinn tíma. Á ég nú tvö íbúðarhús, auk
útihúsa. Annað niður við vatnið, þar sem ég settist fyrst að, en hitt
er á heimilisréttarlandi mínu, og er rúmmál þess 24x28, svo að ég
hefi fremur gott húspláss, bæði undir spónþaki. Leigði ég í sumar
hús mitt niður v ið \ atnið háskólakennara úr Winnipeg og lofaði
þeim sama því að sumri. Þykir mönnum ég hafi komið miklu í verk
á ekki lengri tíma. Þurfti ég fyrst að ryðja skóginn burtu, þar sem
húsin eru, og svo þurftum við hér að höggva okkur braut, sem tók
okkur bæði tíma og tilkostnað. Þarna eru nú í fáum orðum helstu
höptin fyrir því, að dregist hefir hjá mér að skrifa þér, þegar
slóðaskapur minn — pennaleti og vanrækt — er frádregið.
í sumar hafði ég bæði lítil og slæm húsakynni, svo allt mitt dót
var „niðurpakkað", og tók ég ekki á penna nema rétt það sem
nauðsyn krafði. Hittist því illa á hjá okkur, að tengdamóðir mín
heitin skyldi heimsækja okkur á þeim tírna, enda leist henni ekki
sérlega vel á sig hér, sem hún þó naumast leit rétt á. En svo nú ekki
meira um það. Við pig að eins minnist ég á þetta í sambandi við það
sem ég sagði á undan, og veit ég að það fer ekki lengra.
Ekki bjuggumst við við því, að Helga heitin ætti ekki lengra
eptir. Móðir mín lézt og í haust, og höfðu þær báðar andast sama
daginn.
Cjamli Hnappdal, sveitungi þinn, heimsókti okkur hér í vetur og
var sá ernasti og kátasti.
Hvað snertir almennar fréttir, eru þær helzt þessar: Heilsufar
gott og vellíðan. En veturinn þykir hafa verið óvanalega kaldur og
snjóasamur. Eru margir knappir af heyjum. Vona eptir góðu vori.
Sem stendur þíðviðri.
Hér að Winnipeg Beach hefir, eins og þú iriunt hafa hugmynd
um, verið fyrst að byggjast. Og með því að þetta pláss hefir verið
valið fyrir sumarskemmtanir, hefir allt verið undirbúið hér í
myndarlegum stíl. Um 20 sumarhús (cottage) eru nú byggð og