Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.07.1992, Qupperneq 68

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.07.1992, Qupperneq 68
68 SKRÁ UM HANDSKRIFUÐ BLÖÐ ritstjóra þyki „trúlegast að „Gestur“ verði á flakki flesta ef ekki alla laugardaga til sumarmálanna, komi ekkert sjerlegt fyrir,“ þ\ í nóg efni sé fyrir hendi af ýmsu tagi og margir hafi sent í hann ritgjörðir, þá er annað uppi á teningnum í síðasta tbl. 2. árg. þar sem ritstjórinn les sveitungum sínum pistilinn m.a. með þessum orðum: Það hefur farið langt fjærri óskum mínum og vonurn ineð það, að þið sveitungar góðir sýnduð „Gesti“ mínum almennt þá velvild að senda honum, eins og jeg beiddi ykkur í haust, ritgjörðir, sögur, kvæði eða smælki til gagns eða gamans. Hve feginn sem jeg hefði viljað hafa „Gest“ gagnlegri, fróðleiksfyllri, og meira skemtandi en verið hefur, þá verð jeg að kannast við, og þykir engin skömm, að jeg hefi ekki haft hæfileika til þess, svona að mestu einn míns liðs. Það er ykkur sjálfum að kenna mikið, ef hann hefur verið daufur og tilbreytnislítill. ... Jeg bið „Gest“ að flytja þeim fáu sem sýnt hafa okkur þá velvild að skrifa í blaðið kæra þökk mína, og að endingu bið jeg ykkur, sveitungar mínir sameiginlega ... að fyrirgefa hve illa mjer hefur tekist að uppfylla það loforð, sem jeg ljet „Gest" bera ykkur, að hann skyldi reyna að verða ykkur til gagns og gamans í vetur. Þið verðið að taka viljann fyrir verkið frá minni hendi, og það því fremur sem sökin er að nokkru hjá ykkur sjálfum. Síðan fáein kveðju- og þakkarorð til lesenda með ósk um hagsæld á ókomnum tíma, líkt og amen hafi verið sett á eftir efninu, a.m.k. er framhald af Gesti, hafi það eitthvað orðið, ekki til í handritadeild Landsbókasafns. Og viðlíka endalok og ætla má að hafi beðið Gests hafa vafalítið bundið enda á útgáfu margra sveitarblaða, kall ritstjóra eftir efni hefur smám saman hætt að bera árangur og hann ekki enst til að sjá blaðinu einn fyrir efni. Hvorki er höfundi þessarar skrár kunnugt urn hvenær fyrst var tekið til við að gefa út handskrifuð blöð né hvenær sú iðja lagðist endanlega af. Vafasamt er líka að fundin verði einhlít skýring á tilurð þeirra, en ekki er ólíklegt að fyrirmyndin hafi að einhverju leyti a.m.k. verið blöð (og tímarit), íslensk og e.t.v. dönsk, sem um þessar mundir voru farin að berast í sveitir.6 Fyrstu tíðindi af handskrifuðum blöðum er að hafa frá Indriða Einarssyni rithöf- undi og Stephani G. Stephanssyni skáldi, en hvorugur nefnir ártal. Indriði segir frá því að þrír drengir í Glaumbæjar- og Víðimýrar- sóknum í Skagafirði hafi tekið upp á því að gefa út sitt blaðið hver. Rögnvaldur Bjarnarson, lengst af í Réttarholti í Blönduhlíð, var 6 Sbr. svipaðar hugmyndir í: Bergsveinn Skúlason, Bréf og bögglar, Rvík 1977, bls. 93, og Gunnar Karlsson, Frelsisbarátta suður-þingeyinga og Jón á Gautlöndum, Rvík 1977, bls. 364. j
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.