Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.07.1992, Síða 69
í LANDSBÓKASAFNI ÍSLANDS
69
einn þeirra, en ekki man Indriði hvað hans blað hét, Stephan gaf
út Dalbúann og sjálfur gaf Indriði út Júlíus Cæsar.7 „Innan við
fermingu var ég „ritstjóri" „Dalbúans", sem ég skipti á fyrir
„Vestanfara" Sigurðar Jónssonar á Víðimýri og „Júlíus Cæsar“
Indriða Einarssonar í Krossanesi segir Stephan en nefnir ekki
Rögnvald.8 Stephan fermdist 1. júní 1868,9 en við tímasetningu
þessarar skagfirsku blaðaútgáfu vegur þó þyngst að haustið 1865
fór Indriði suður í skóla, svo að í þann endann er hún næsta örugg,
en óvissari að því er upphafið snertir, þótt tæplega verði það sett
aftar en u.þ.b. 1863 vegna ungs aldurs Stephans þá.10 Elsta blað,
sem höfundur skrárinnar veit til að varðveitt sé, heitir Hleiðólfur og
var gefið út á Munkaþverá í Eyjafirði 1866. Á Héraðsskjalasafninu
á Akureyri er 1.—5. tbl.11 Ekki veit höfundur skrárinnar af hand-
skrifuðu blaði sem haldið var úti lengur en til 1952, en það ár kom
síðasta tölublað af Framtíðinni, sbr. skrána hér á eftir, sömuleiðis
síðasta tölublað Helga magra, blaðs ungmennafélagsins Reynis á
Árskógsströnd í Eyjafirði.12
Utgáfa handskrifuðu sveitarblaðanna var vetrariðja, til gagns og
skemmtunar, hófst yfirleitt á haustmánuðum og stóð jafnan yfir til
vors, en lá niðri á sumrin. Útgáfan var einatt óregluleg og milli
blaða gat t.d. liðið vika (jafnvel styttri tími), en einnig meira en
mánuður. Aðalskeið blaðanna var tveir til þrír seinustu áratugir
síðustu aldar og fyrstu áratugir þessarar. Þorri blaðanna í skránni
hér á eftir er ritaður á tímabilinu 1880-1920. Ekkert þeirra er úr
Mývatnssveit, en þar var þó nokkur gróska komin í útgáfu
sveitarblaða þegar á áttunda áratug aldarinnar sem leið og þar
hefur þessi starfsemi líklega náð meiri útbreiðslu en annars
staðar.13
Auk þeirra handskrifuðu blaða sem varðveitt eru í handrita-
deild Landsbókasafns er mörg að fínna í öðrum söfnum, svo sem
héraðsskjalasöfnunum á Akureyri, Húsavík og Sauðárkróki.
Einnig eru sveitarblöðin sjálf stundum til vitnis um blöð sem nú
7 Indriöi Einarsson, Sjeð og lifað, Rvík 1936, bls. 52.
8 Stephan G. Stephansson, Bréf og ritgerðir IV, Rvík 1948, bls. 108.
9 Þjóðskjalasafn, Ministerialbók Víðimýrar í Skagafirði 1817-1874.
10 Sbr. Gunnar Karlsson, Frelsisbarátta suður-þingeyinga og Jón á Gautlöndum, Rvík 1977,
bls. 364.
11 Héraðsskjalasafn Akureyrarbœjar og Eyjafjarðarsjslu, Arsskýrsla 1982, bls. 7.
12 Samarit, 1980, nr. 32.
13 Sbr. Arnór Sigurjónsson, Jón Stefánsson. Rithöfundurinn Þorgils gjallandi, Rvík 1945, t.d.
bls. 41, og Gunnar Karlsson, Frelsisbarátla suður-þingeyinga og jón á Gautlöndum, Rvík
1977, t.d.bls. 365.