Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.07.1992, Page 71
í LANDSBÓKASAFNI ÍSLANDS
71
gloppur í tölublöðunum eru ekki tíundaðar í skránni nema svo
standi t.d. á að vegna týndrar forsíðu verði að giska á eða færa líkur
að tímasetningu. Ekki er þess getið þótt árganga- eða tölublaða-
númer vanti í blaðhaus ef augljóst er hvert númerið á að vera.
Að lokum skal tekið fram að orðfæri er samræmt í fjórða lið að
því er snertir árganga- og tölublaðasetningar, en þær eru með
nokkuð mismunandi orðalagi í hausum blaðanna. Skammstöfun-
in tbl. er höfð um tölublað/-blöð, árg. um árgang og rómverskum
tölum er breytt í arabískar.
Áhuginn
1) Lbs. 497, fol.
2) Sveitarblað, skrifað á Látrum í Aðalvík.
3) Ritstjóri Guðmundur Sigurðsson kennari í Aðalvík, á Snæíjallaströnd og á
Siglufirði.
4) 1. og 3. árg., 31. mars 1891 - jan. 1897.
1. árg. (1891-92), 1.-4., 6.-12. tbl.
3. árg. (1897), 4. tbl.
Barðstrendingur
1) Lbs. 4025, 4to.
2) Sveitarblað á Barðaströnd.
3) Útgefendur „Nokkrir Barðstrendingar" og ritari Samúel Eggertsson kennari.
- I Skrá um handritasöfn Landsbókasafns, III. aukabindi, saminni af Grími
M. Helgasyni og Lárusi H. Blöndal, Rvík 1970, bls 93, segir að útgefendur séu
Jakob Aþanasíasson, Sarnúel Eggertsson og sr. Þorvaldur Jakobsson (sam-
kvæmt upplvsingum frá syni Þorvalds, Búa, sem afhenti handritið?).
4) 1. árg., 2.-3. tbl., 1.-18. jan. 1890.
Borðgestur
1) Lbs. 4288, 8vo.
2-3) Blað sem sr. Sigtryggur Guðlaugsson á Núpi í Dýrafírði samdi, skrifaði og
mun hafa lesið upp til skemmtunar undir borðum á skólaárum sínum.
4) 1.-5., 7.-8., 10.-13. tbl. og eitt blað ótölusett. Dagsetningar vantar en
útgáfuárið er efalítið 1892.15
15 Sigtryggur var í lærða skólanum 1888-94 og í Prestaskólanum 1894-97. Oll skólaárin
bjó hann hjá Þorkeli Gíslasyni snikkara og yar þar í mötuneyti. Vitað er að hann skrifaði
blað til að skemmta með í mötuneytinu. Á jólunum 1892 sendi hann Kristni bróðtir
sínum aukaeintak af einu tölublaðanna. í riti Halldórs Kristjánssonar um Sigtrygg er
birtur kafli úr þessu aukablaði. Eru það aðallega tvær grafskriftir sem einnig er að ftnna
í nær samhljóða gerð á lausum miðum innan í 11. tbl. Má því hafa árið 1892 til marks um
útgáfutímann. Sjá Halldór Kristjánsson, Sigtryggur Guðlaugsson prófastur og skólastjóri á
Núpi. Aldarminning, Rvík 1964, bls. 36 og 41-45.