Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.07.1992, Síða 103
LANDSBÓKASAFNIÐ 1991
103
FERÐIR OG FUNDIR Halldór Þorsteinsson, er annast m.a.
um rit Sameinuðu þjóðanna í vörzlu
Landsbókasafns, heimsótti höfuðstöðvarnar í New York, er hann
var þar á ferð íeinkaerindum. Hann kannaði m.a., hvað liði útgáfu
ritanna á fisjum, en hagræði væri að því að afla ákveðinna ritraða í
því formi og spara þannig mikið rými og fyrirhöfn.
Nanna Bjarnadóttir forstöðumaður þjóðdeildar sótti dagana
7.-9. júní ráðstefnu í Gentofte um menningararfinn og rannsókn-
ir í hugvísindum (Cultural Heritage and Humanities Research), er
studd var af NORDINFO, en að ráðstefnunni lokinni heimsótti
hún Konungsbókhlöðu í Kaupmannahöfn og kynnti sér starfsemi
Þjóðdeildar safnsins og naut þar góðrar fyrirgreiðslu.
Þorleifur Jónsson sótti norrænan fund um samskrár og tölu-
merkingar tímarita í Kaupmannahöfn 19.-20. sept. En hann var
þá á leið til fundar stjórnarnefndar NOSP, er haldinn skyldi í þetta
sinn í Budapest.
Regína Eiríksdóttir sótti dagana 16. og 17. október ráðstefnu í
London, International ISBN Agency Advisory Panel Meeting, er
efnt var til fyrir atbeina brezku bóknúmeraskrifstofunnar, en
aðalskrifstofan í Berlín hafði hvatt til, að umsjónarmaður íslenzku
bóknúmeranna sækti þennan fund. Regína skýrði á fundinum frá
gangi bóknúmeramálsins á Islandi.
HÚSNÆÐI Sótt var um leyfi til að taka á leigu 170
m2 húsnæði á 5. hæð Alþýðuhússins,
þar sem Hagstofan var áður að hluta til húsa. Leyfið fékkst og
samningur gerður, er gilti frá 1. maí. Unnið er einkum að tveimur
verkþáttum þarna úti, smáprenti og hljóðritum.
SMÁPRENT Vegna þrengsla í aðalsafninu hefur
vinna við smáprent tíðum orðið að sitja
á hakanum, það í staðinn hrannazt upp og orðið til trafala. Þegar
húsnæðið fékkst úti á 5. hæð Alþýðuhússins, er frá segir annars
staðar í skýrslu þessari, varð það að ráði að flytja smáprentið
þangað, draga það sundur og flokka. Rannveig Gísladóttir sér um
þennan þátt, og hefur henni þegar orðið mikið ágengt.
HLJÓÐRIT
Samkvæmt lögum um skylduskil til
safna frá 1977 ber Landsbókasafni að