Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.07.1992, Síða 105
LANDSBÓKASAFNIÐ 1991
105
NÝJA Háskóli íslands lagði á árinu 1990 fram
TÖLVUKERFIÐ stórfé til kaupa á tölvukerfi og lagning-
ar tölvunets. Kerfið, sem keypt var að
lokinni mikilli könnun ýmissa kerfa, var Libertas, en aðalbæki-
stöðvar þess eru í Bristol á Englandi. Fyrirtæki það, er að því
stendur, hét upphaflega SWALCAP (South-MTstern Academic
Libraries Cooperative Automation Project), stofnað 1969, og rak
það upphaflega sameiginlega tölvuþjónustu fyrir allmörg brezk
háskólabókasöfn. Arið 1986 var félaginu breytt í hlutafélag og
nefnist nú SLS (Information System) Ltd. Starfsemi þess er fólgin í
þróun, viðhaldi og sölu á Libertas, en fyrirtækið rekur einnig
gagnagrunnssamskrá fyrir tiltekin bókasöfn.
Síðan bókasafnskerfið Libertas kom fyrst á markað 1986, hafa
nálægt 40 bókasöfn á Bretlandi, Spáni og í Svíþjóð tekið kerfið í
notkun eða eru í þann veginn að gera það.
Libertas notar VAX-tölvur. Stýrikerfið er WMS, en áætlað er, að
kerfið verði frá 1992 jafnframt fáanlegt á UNIX (ULTRIX).
Tölvukerfi bókhlöðusafnanna var tekið í notkun 1. október, er
dagleg skráning hófst í kerfið. Almenningsaðgangur, er veitti
mönnum kost á leitum í kerfínu, hófst hins vegar 1. nóvember, en
var formlega opnaður 13. desember. Við það tækifæri var kerfínu
gefið nafnið GEGNIR, en tillögu að því átti Halldór Halldórsson
prófessor, og hlaut hann sérstaka viðurkenningu fyrir hana. Hafði
tillagna um nafn áður verið leitað, og bárust tillögur um 110 nöfn
frá 58 aðilum.
Gegnir geyrnir nú um 230 þús. færslur. Eru þar fyrst erlendar
bækur bókhlöðusafnanna, þá íslenzkar bækur 1974-1991 og loks
erlend tímarit í íslenzkum bókasöfnum.
Upplýsingar þessar eru teknar úr Gegnismálum, fréttabréfi um
tölvukerfið Gegni, Desember 1991, en það er gefið út á vegum
bókhlöðusafnanna undir ritstjórn Þóris Ragnarssonar og Hildar
Eyþórsdóttur.
Nú skulu enn talin eftirfarandi atriði, fengin úr Fréttabréfinu.
HLUTVERK GEGNIS
Hér á eftir verður í örstuttu máli gerð grein fyrir hlutverki
Gegnis:
1. Bókasafnskerfi Þjóðarbókhlöðu.
Gegnir er alhliða bókasafnskerfi fyrir starfsemi Háskólabóka-