Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1993, Side 9

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur - 01.01.1993, Side 9
M.H. SÍRA HJALTA ÞORSTEINSSONAR 9 30. júní 1969, helguðu honum sjötugum. Efri röddinni fylgir upphaf, neðri röddinni allt upphafserindi sálmsins “Heyr þú oss himnum á“ úr kvæðabók séra Ölafs á Söndum Jónssonar. I einu handriti kvæðabókarinnar, AM 240 8vo, er fyrirsögnin Eitt saung vysu korn, med tvij saungs lag sem Sanctus. Eftir þeirri tilvísan leitaði Róbert Abraham fyrst í Graduale Romanum, nú- gildandi messusöngsbók rómverskrar kirkju, en “lagið við “Heyr þú oss himnum á“ endurspeglaði engan þeirra rúmlega tuttugu Sanctus-tónsöngva, sem upptöku hafa hlotið í Graduale Roman- um —. Var leitinni þá beint að þeim mikla forða Sanctus-laga, sem hljómað hafa í kirkjum Norðurálfu á síðari miðöldum, þótt söngur sá sé nú löngu þagnaður. Sú leit bar árangur: Sanctuslagið, sem fyrirsögnin í hdr. 5 vísar til, er varðveitt í a.m.k. tíu miðevrópskum heimildum frá 15. og 16. öld, sex þýzkum, þremur bæheimskum og einni hvítmunka (cisterciensa) heimild af ókunnum uppruna. Meirihluti hinna erlendu gagna sýnir lagið í sams konar tví- söngsgerð og íslenzku handritin — Þegar þess er gætt, hvert verk það reyndist Róbert Abraham að kanna þetta eina tvísöngslag, er ljóst, hvert verk það verður að ætla að kanna þau öll. Það er framtíðarverkefni, er bíður íslenzkra tónfræðinga og þá eflaust í samvinnu við erlenda fræðimenn, sérfróða um sönglist fyrri alda. Ágrip af lífssögu Hjalta Þorsteinssonar prests að Vatnsfirði og prófasts í ísafjarðar- sýslu /norður-parti/, af honum sjálfum uppteiknað (eftir handriti Markúsar stiftprófasts Magnússonar). Sr. Hjalti Þorsteinsson var fæddur að Möðrudal á Fjalli í Skálholtsstifti Anno 1655. Hans faðir var sr. Þorsteinn Gunnlaugs- son prestur samastað í þann tíð, en síðan til Þingeyraklausturs, hvar hann andaðist 1686. Faðir sr. Þorsteins var sr. Gunnlaugur Sigurðsson, prestur að Saurbæ í Eyjafírði í 58 ár, að meðreiknuð- um þeim tíma, sem hann var capellán hjá föður sínum. Faðir sr. Gunnlaugs var sr. Sigurður Einarsson, prestur samastað og pró- fastur í Vaðlaþingi. Faðir sr. Sigurðar var Einar bóndi að Æsustöð- um. Móðir sr. Gunnlaugs var Þorgerður Gunnlaugsdóttir, Teitsson- ar. Móðir sr. Þorsteins Gunnlaugssonar var Helga Þorbergsdóttir. Hennar faðir sr. Þorbergur Ásmundsson var kirkjuprestur að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Landsbókasafns Íslands - Nýr flokkur
https://timarit.is/publication/280

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.