Frjáls verslun - 01.02.1947, Side 6
Er þess að geta, að N ýbyggingarráð á eftir að
afgreiða talsvert mikið af framlengingum leyfa
frá fyrra ári.
Samkvæmt framanskráðu hafði Viðskiptaráð
gefið út leyfi fyrir um 162 millj. kr. frá áramót-
um og fram til 1. marz þ. á. Þar frá má draga
41 rnillj. kr., sem búið er að svara út gjaldeyri
fyrir. Eftir eru þá um 120 millj. kr., sem ávís-
að hefur verið á gjaldeyriseign þá, er fyrir hendi
var um áramót og bætzt hefur við síðan. Um
áramótin nam sú eign 93,6 millj. kr., eins og
áður segir, svo að yfirdrátturinn nemur um 26
millj. kr. Þar á móti kemur svo útflutningsverð-
mæti jan,—febr. þ. á., og má gera ráð fyrir að
það nái langt upp í þennan mismun, 26 millj.
Er þá útkoman þannig, að búið er að ávísa á
allan gjaldeyrisforðann, sem til var um áramót
og safnast hefur síðan, og þó nokkru betur, ef
tekið er tillit til gjaldeyris, er Viðskiptaráð hef-
ur vísað á, vegna námskostnaðar, vinnulauna
o. s. frv.
FRAMTÍÐARHORFUR.
Ekki verður á móti mælt að þetta eru alvarleg
tíðindi viðvíkjandi gjaldeyrisþróun vorri. Samt
sem áður tel ég ekki ástæðu til of mikillar svart-
sýni. Nú þegar er búið að tryggja gjaldeyri fyrir
innfluttum vörum til vetrarvertíðarinnar og
síldarvertíðarinnar að nokkru leyti, svo og fyrir
néyzluvörum, sem endast munu frant á mitt
ár; Hinsvegar er óinnkominn gjaldeyrir fyrir
mestan hlutá utflutningsframleiðslunnar í ár.
Viðskiptaráðið hefur nýlega auglýst, að það
muni ekki fyrst um sinn veita ný leyfi fyrir al-
mennum vörum. Mun það og takmarka fram-
lengingar leyfa eins og kostur er og einkum
binda þær við matvörur og byggingarefni að
einhverju leyti. Þessi ákvörðun ráðsins er miklu
fremur gerð af nauðsyn en vilja, og ráðinu er
vel ljóst að æskilegast hefði verið að geta kom-
izt hjá slíkum aðgerðum, ekki sízt með tilliti
til þess, að vöruverð fer nú yfirleitt hækkandi á
heimsmarkaðinum og því hefði verið ákjósan-
legt að geta tryggt innkaup á ýmsum vörum
sem allra fyrst. Einnig er afgreiðslutíminn nú
alltaf að lengjast og er nú þegar orðinn ískyggi-
lega langur að því er snertir margar vöruteg-
undir.
En að þessari ráðstöfun Viðskiptaráðs hníga
einkum þrjár ástæður, sem nú skal greina:
í fyrsta lagi getur Viðskiptaráð ekki litið und-
an þeirri staðreynd, að búið er nú að avísa a
allan gjaldeyrisforða, sem fyrir hendi er.
í öðru lagi er ekki vitað, hverju útflutning-
urinn í ár muni nerna, en sjálfsagt að viðhafa
varkárni í leyfisveitingum þar til betur verður
séð fyrir um aflabrögð og verð útflutningsvar-
anna.
í þriðja lagi er sii breyting, sem fyrirhuguð
er á Viðskiptaráði og Nýbyggingarráði og talað
e'r urn í málefnasamningi núverandi ríkisstjórn-
ar. Er ætlunin að ný stofnun, Fjárhagsráð, komi
til skjalanna í stað hinna tveggja núverandi ráða
og mun hún eiga að leggja línurnar eitthvað á
annan veg en verið hefur. M. a. er líklegt að
tekin verði upp sú nýbreytni í sambandi við
leyfisveitingu að hætt verði svokölluðu „kvóta-
systemi“.
Fjórða ástæðan fyrir ofangieindri afstöðu
Viðskiptaráðs er sú, að enn er allt í óvissu um,
hvaða þjóðir við komum til með að skipta við.
íslenzkar nefndir starfa nú að viðskiptasamning-
um við Breta og Rússa, og samningar við Tékka
o. fl. þjóðir standa fyrir dyrum. Hinsvegar er
ekkert vitað um niðurstöður þessarra umleitana.
Vér eigum nokkrar inneignir í Frakklandi og
Ítalíu og er viðbúið að vér verðum að kaupa
þaðan vörur í staðinn. Sömuleiðis er ekki ótrú-
legt að viðskipti við ýmsar þjóðir verði að fara
fram á jafnvirðiskaupagrundvelli og er þá, eins
og sakir standa nú, allur varinn góður að því er
varðar festingu gjaldeyrisins.
Héi lauk dr. Oddur Guðjónsson máli sínu.
Þar eð næstum mánaðartími er liðinn frá því að
hann flutti þetta erindi, sem hér er birt í ágripi,
inntum vér hann nýlega eftir, hvort gjaldeyris-
málin hefðu síðan að nokkru ráði skipazt á ann-
an veg en fram kemur í erindinu, og kvað hann
svo ekki vera. Að vísu hefðu ofangreindar tölur
breytzt nokkuð, en hlutfall þeirra stæði sem næst
óhaggað.
Samkvæmt framburði dr. Odds, er nú all-
drungalegt um að svipast í gjaldeyrismálum vor-
um, en þó geldur liann varhuga við of mikilli
svartsýni. Sem betur íer erum vér fslendingar
yfirleitt bjartsýnir menn, en óneitanlega er erfitt
fyrir verzlunarstéttina að láta þennan eðliskost
njóta sín sem skyldi, meðan böndin eru beint
og óbeint reyrð henni um fætur.
6
FRJÁLS VER2LUN.