Frjáls verslun - 01.02.1947, Qupperneq 20
neskur her, sem barðist fyrir frelsi ættjarðarinn-
ar. S.vo rís upp dagurinn mikli, 28. október 1918,
þegar lýst er yfir lýðveldi í Tékkóslóvakíu. Mesti
ábyrgðar- og framkvæmdaþunginn við stofnun
liins nýja ríkis hvíldi á herðum dr. T. G. Masa-
ryk og lærisveins hans, dr. Edvard Benes. Varð
dr. Masaryk fyrsti forseti lýðveldisins en dr.
Benes forsætisráðherra. Allt frá því fyrsta hefur
stjórnarstefna tékkneska lýðveldisins mótast af
látlausri viðleitni við að tryggja þegnum sínum
réttindi frjálsborinna manna, og er það í anda
Jóhanns Húss.
— Hvernig er svo stjórnmálaástandið nú í dag?
— Fyrir seinni heimsstyrjöldina var eitt helzta
vandamál tékknesku ríkisstjórnarinnar að leysa
á viðunandi hátt ágreiningsefni hinna erlendu
þjóðbrota í landinu. Vegna ósanngjarnra krafna
þýzka og ungverska minnihlutans, reyndist ó-
gerningur að komast að samkomulagi þá, en nú
eftir styrjöldina hefur verið farið með þessi mál
samkvæmt ákvæðum Potsdam-samþykktarinnar,
og einkennist stefna ríkisstjórnarinnar af vin-
fengi við allar friðelskandi þjóðir.
í síðustu jringkosningum, sem fram fóru á s.
1. ári, unnu sósíalistisku flokkarnir sigur, og náðu
kommúnistar meirihlutaaðstöðu innan þingsins.
En allir flokkarnir taka þátt í stjórn landsins.
Sem stendur virðist þess misskilnings gæta víð-
asthvar í umheiminum, að Tékkóslóvakía sé und-
ir víðtækum áhrifum frá Sovét-Rússlandi, ekki
sízt að því er snertir þjóðnýtingu margra tékk-
neskra stórverksmiðja. Sannleikurinn er sá, að
Tékkóslóvakía gerir enga tilraun til að velja
milli vesturs og austurs heldur miðar að góðri og
vinsamlegri sambúð við báða þessa heima.
— Hvað getið þér jrætt okkur um þjóðina,
menntun hennar, tungumál, trúarbrögð o. s. frv.?
— Tékkneska ríkinu lúta Bæheimur, Mæri og
Slézía annars vegar, sem voru hertogadæmi á
gömlu keisaratímunum, og hinsvegar Slóvakía,
sem var eitt af lénsfylkjum Ungverjalands.
Tungumál þjóðarinnar eru tékkneska, sem grein-
ist í margar mállýzkur, og slóvenska, sem skiptist
einnig í nokkur afbrigði. Bæði aðalmálin eru
afar keimlík, svo að Slóvakar eiga hægt með að
skilja tékknesku og gagnkvæmt.
íbúatalan er samtals um 13i/4 milljón, þar af
A'Óaltorgið í Prag. Fyrir rni'öri myndinni sést raöhásiö, en
þaö hrundi í lojtárásum bandamanna á borgina.
nálægt 714 milljón í Bæheimi, Mæri og Slézíu og
mismunurinn Slóvakar. Erlend þjóðabrot fyrir-
finnast nú ekki lengur. Meirihluti íbúanna játar
kaþólska trú, en um 30% þeirra eru mótmæl-
endatrúar, þ. e. fylgjendur kenninga Húss.
Skólalöggjöf landsins er meðal hinna full-
komnustu í Evrópu. Hvert barn er skólaskylt á
aldrinum 6—14 ára, og rnikill meirihluti þeirra
aflar sér framhaldsmenntunar. í Tékkóslóvakíu
eru nú 7 háskólaborgir, þar sem lögð er stund á
allar greinar æðri vísinda. Af nemendum undir-
búningsskólanna fara 80% í menntaskóla og
20% í allskonar lýðskóla, en 40% útskrifaðra
menntaskólanemenda leggja stund á háskólanám.
Mikil rækt er lögð við tungumálakennslu, því
að þjóðin er sér vel meðvitandi um smæð sína.
— Hvað um bókmenntirnar?
— Það er mjög erfitt að gera stutta grein fyrir
tékkneskum bókmenntum, þar sem þjóðin hefur
átt margt ágætra skálda og rithöfunda. Stærstu
nöfnin úr þeim hópi, frá því fyrsta og fram á
þennan dag, eru: Jiri Wolker, S. Machar, Karel
og Josef Capek, Viktor Dyk, Hilar, Otokar
Brezina, Antonin Sova, V. Vancura, Drda, Josef
Vachek og Karel Thiele. Elinn síðastnefndi, sem
er frægur nútímahöfundur, var í þýzkum fanga-
búðum á styrj aldarárunum. Verk þessarra höf-
unda bera einkenni hinna ólíkustu bókmennta-
stefna, sem sumar hverjar voru grundvallaðar
af tékkneskum skáldum, t. d. Vitezslav Nezval.
Öll þekktustu skáldverk heimsins á síðari ár-
um hafa verið þýdd á tékknesku. Meðal kunn-
ustu og víðlesnustu erlendra rithöfunda í Tékk-
óslóvakíu eru um þessar mundir: Louis Brom-
field, Pearl Buck, Upton Sinclair, H. G. Wells,
20
FRJÁLS verzlun