Frjáls verslun - 01.12.1962, Síða 24
AFANGAR
Ottarr M'óller tók við forstjórastarfi Eimskipa-
félagsins hinn 1. júní sl.
Óttarr er fæddur 24. október 1018, í Stykkishólmi.
Hann lauk námi við Verzlunarskóla íslands árið
1936 og var síðan eitt ár við verzlunarnám í Eng-
landi jafnframt því sem hann starfaði við heildsölu
í Manchester. Hinn 1. október 19.88 réðst hann til
Eimskipafélagsins og hefur starfað þar síðan að
einu ári undanskildu, en árið 1952/1953 fékk hann
leyfi frá störfum til þess að gegna starfinu sem
viðskiptalegur framkvæmdastjóri hjá Sameinuðum
verktökum hér í bæ.
Árin 1942—1046 starfaði Ottarr sem fulltrúi á
skrifstofu Eimskipafélagsins í New York, jafnframt
því sem hann stundaði nám í ,,shipping“ við skóla
þar í borg og tók þátt i námskeiðum fyrir yfir-
menn skipafélaga á vegum War shipping Admini-
stration. Eftir heimkomu frá New York hefur Óttarr
Möllcr starfað sem fulltrúi Eimskipafélagsins.
Vultýr 11ákonarson hefur ný-
lega verið ráðinn skrifstofustjóri
á aðalskrifstofu Eimskipafélags
Islands í Rcvkjavík. Valtýr er
fæddur 17. febrúar 1923 að
Rauðkollsstöðum, Eyjahreppi í
Hnappadalssýslu. Hann stund-
aði nám við Samvinnuskólann í
Reykjavík, og lauk þaðan prófi
árið 1943. Að námi Ioknu starfaði Valtýr í eitt
ár við Kaupfélag Austfjarða á Seyðisfirði og réðst
til Eimskipafélagsihs árið 1944. Ilann starfaði fyrst
sem bókari og síðar sem deildarstjóri farþegadeild-
ar Eimskipafélagsins, en frá 1954, sem skrifstofu-
stjóri í Kaupmannahöfn.
Asberg Sigurdsson hefur ný-
lega verið ráðinn skrifst.ofustjóri
Eimskipafélags í.slands í Kaup-
mannahöfn. Ásberg er fæddur
18. apríl 1917 að Hvítárbakka í
Borgarfirði. Hann brautskráðist
stúdent frá Menntaskólanum í
Reykjavík 1937 og lauk lögfræði-
prófi við Háskóla íslands 1944.
Sama ár varð hann skrifstofustjóri hjá Sölunefnd
setuliðscigna. En 1946 var hann kjörinn bæjarstjóri
á ísafirði, fékk lausn 1948. Stundaði síðan lögfræði-
störf og var formaður útgerðarfélagsins ísfirðings
hf. frá 1948 unz hann lét af því á sl. ári.
Sigurlaugur Þorlcelsson hefur
nýlega verið ráðinn blaðafulltrúi
Eimskipafélagsins. Sigurlaugur er
fæddur 27. apríl 1924 á Stokks-
eyri. Iíann lauk námi við Verzl-
unarskóla íslands árið 1942 og
réðst þá til Eimskipafélags ís-
lands. Hann hefur starfað þar
síðan, fyrst sem bókari og frá
árinu 1954 scm deildarstjóri farþegadeildeildar. —
Um nokkra þætti í störfum . . .
Framhald af bls. 14
verksmiðjunni við Námaskarð, og er ráðgert að
Norðurlandsborinn hefji þar boranir í haust. Ef
allt gengur að óskum, er því hugsanlegt, að hefja
undirbúning að byggingarframkvæmdum á næsta
ári.
Samkvæmt þcim áætlunum, sem gerðar voru á
vegum raforkumálastjóra og rannsóknarráðs, um
byggingu kísilgúrverksmiðju, liefur verið gert ráð
fyrir 10 þús. tonna ársframleiðslu á kísilgúr, cn út-
flutningsverðmæti hennar vrði 40—50 milljónir kr.
Stofnkostnaður er áætlaður 110—120 milljónir kr.,
og mundi slík verksmiðja veita 70—80 mönnum
atvinnu. líáðgert hefur verið, að verksmiðjan verði
byggð nálægt Námaskarði og fullunnin vara flutt
þaðan til Húsavíkur. Þessi áætlun verður að sjálf-
sögðu rækilega endurskoðuð, ef úr framkvæmdum
verður í samvinnu við hin hollenzku fvrirtæki. Þyk-
ir mér þá líklegt, að verksmiðjan yrði höfð heldur
stærri, t. d. miðuð við 15 þús. tonna ársframleiðslu.
Hér yrði þó líklega eingöngu um byrjunarfram-
kvæmd að ræða. Markaður f.vrir kísilgúr er svo
mikill og vaxandi, að búast má við, að kísilgúr-
verksmiðja við Mývatn muni stækka ört á kom-
andi árum, ef hún reynist á annað borð samkeiipn-
ishæf. Hefur það mikið að segja, að nánran í Mý-
vatni er svo stór að hún mundi nægja miklu stærri
verksmiðju heldur en komið hefur lil greina að
reisa og þó endast í hundruð ára. Þessi framkvæmd
gæli því vel orðið upphaf nýs útflutningsiðnaðar,
er skili hundruðum milljóna króna í þjóðarbúið á
ári hverju og veiti fjölda manns atvinnu.
24
FR.TALS VERZLUN