Frjáls verslun - 01.12.1962, Side 33
Mynd, sem Magnús Ólaísson tók suður Lækjargötu, óður en læknum var lokað
ALDARMINNING
Magnúsar Olafssonar ljósmyndara
Á þessu ári voru liðin 100 ár frá fæðingu manns
er fluttist til Reykjavíkur á fyrsta ári þessarar ald-
ar, gerðist hér einn kunnasti ljósmyndari landsins,
hafði áður verið verzlunarmaður á Akranesi, en í
báðum bæjunum varð hann meðal fjölhæfustu
manna og kunnustu borgara, Magnús Olafsson ljós-
myndari, er lézt í Reykjavík 75 ára að aldri.
Minjasafni Rcykjavíkur var nýlega gefið álitlegt
safn Reykjavíkurljósmynda, er Magnús hafði tekið
á fyrsta áratug aldarinnar, og Frjálsri verzlun þykir
fengur í að geta birt hér eina af fjölmörgum Reykja-
víkurmyndum hans, er ekki hefur áður birzt, sér-
lega skemmtilega mynd frá læknum við Lækjar-
götu, auk myndar af Magnúsi og annarrar af lion-
um og Olafi ljósmyndara, syni hans, þar sem jieir
eru á ferð í Oxnadal með hesta klyfjaða ljósmynda-
tækjum. Þeir ferðuðust oft saman um landið og tóku
ljósmyndir í öllum landsfjórðungum.
Magnús Ólafsson var fæddur á Hvoli í Saurbæ í
Dalasýslu 1862. Faðir hans var Ólafur jarðyrkju-
maður Jónsson, er síðar gerðist lyfjafræðingur í
Stykkishólmi, en móðir Þorbjörg Magnúsdóttir frá
Skáleyjum. Systur Ólafs voru Sigríður móðir Björns
ritstjóra og ráðherra Jónssonar, og María móðir
FHJÁLS VERZLUN
33