Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1973, Page 5

Frjáls verslun - 01.04.1973, Page 5
FRJALS VERZLUN 4. TBL: 1973 Bréf frá útgefanda Efnisyfirlit: í STUTTU MÁLI .......... 7 j ORÐSPOR ................. 8 ísland Olíukaupin ............. 9 Kaupvangur h.f..........11 Varnarmálin ........... 12 Útlönd Þetta tölublað Frjálsrar verzlunar er óvenju- stórt og efni þess er með nokkuð öðrum hætti en verið hefur um fyrri tölublöð að því levti, að það er að langmestu leyti helgað greinum um við- skipti Islands og Bandaríkjanna á hinum ýmsu sviðum. Er það ætlun ritstjórnar að vinna á næst- unni blöð af þessu tagi um samskipti okkar fs- lendinga og helztu vina — og viðskiptaþjóða er- lendis. 1 þessu sambandi er rétt að gefa lesendum nokkra hugmynd um, hvernig að efnisöflun fyrir þetta blað var staðið. Hugmyndir um helztu efn- isþætti lágu fyrir í frumdrögum í ársbyrjun. Unnið var að undirbúningi með sambandi við ýmsa aðila í Bandaríkjunum og hér heima en blaðið síðan að verulegu leyti unnið vestan hafs á fimm dögum í marzlok. Sérstök ástæða er til að geta þess, hve fyrirgreiðsla allra aðila, sem við sögu þessa máls komu, var með afbrigðum lipur. Af augljósum ástæðum urðu Bandaríkin fyrst valinu, þegar við hjá Frjálsri verzlun á- kváðum að hefja kynningu viðskiptalanda. Banda- ríski markaðurinn er mikilvægasti útflutnings- markaður okkar og á ýmsan annan hátt eru sam- skipti þjóðanna tveggja náin. Samningurinn um varnarmálin er að sjálfsögðu einn þáttur þess máls. En að auki stunda fslendingar myndarleg- an atvinnurekstur í BÁandaríkjunum, í verk- smiðjum fiskútflytjendanna, SH og SlS, og vegna flugs Loftleiða þangað. 1 síðasta tölublaði FV var fjallað um ástandið á bandaríska markaðinum með tilliti til sjávarafurðasölu okkar og verður þess vegna ekki sérstaklega vikið að því efni nú, en Loftleiðum og starfi þeirra vestan hafs hins vegar gerð ýtarleg skil. Þá eru samtöl við emb- ættismenn, íslenzka og bandaríska — sem sagt fjallað um málin á breiðum grundvelli. Hvert blað markar tímamót, — viss þáttaskil verða, þegar prentvélarnar fara í gang. Undir- búningur næsta blaðs er hafinn hjá útgefanda og ritstjórn. Nýtt stórhótel............... 15 Vöruflutningar Cargolux...... 17 Greinar og viðtöl Samtíðarmaður: Sigurður Helgason.......... 23 Sölustarf Loftleiða ......... 31 New York-deild Ferðaskrifstofu ríkisins................... 33 American Express............. 37 Bandarísk ferðamál .......... 41 Islandsmál í Washington...... 50 Staða Bandaríkjanna í heimsvið- skiptum ................... 53 Kynningarrit um fsland ...... 59 Sendiráð íslands í Washington 61 Útflutningur til Bandaríkjanna eftir dr. Guðm. Magnússon . . 64 Loftleiðaferðir til Bandaríkj- anna ...................... 66 Eimskip og flutningar til og frá Bandaríkjunum ............. 67 U.S. News & World Report .... 68 Sendiráð Bandaríkjanna á fs- landi........................ 70 * A markaðnum: Radíó og sjónvarpstæki ........ 73 Bílar ......................... 76 Fyrirtæki, vörur, þjónusta Coca Cola .............. 82 Sambandið og Dráttarvélar .... 83 IBM .................... 85 Hjá Báru................ 86 Dekor .................. 90 ÁFANGAR ................ 93 UM HEIMA OG GEIMA....... 95 FRÁ RITSTJÓRN .......... 98 FV 4 1973 5

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.