Frjáls verslun - 01.04.1973, Síða 5
FRJALS
VERZLUN
4. TBL: 1973
Bréf frá útgefanda
Efnisyfirlit:
í STUTTU MÁLI .......... 7
j ORÐSPOR ................. 8
ísland
Olíukaupin ............. 9
Kaupvangur h.f..........11
Varnarmálin ........... 12
Útlönd
Þetta tölublað Frjálsrar verzlunar er óvenju-
stórt og efni þess er með nokkuð öðrum hætti en
verið hefur um fyrri tölublöð að því levti, að það
er að langmestu leyti helgað greinum um við-
skipti Islands og Bandaríkjanna á hinum ýmsu
sviðum. Er það ætlun ritstjórnar að vinna á næst-
unni blöð af þessu tagi um samskipti okkar fs-
lendinga og helztu vina — og viðskiptaþjóða er-
lendis.
1 þessu sambandi er rétt að gefa lesendum
nokkra hugmynd um, hvernig að efnisöflun fyrir
þetta blað var staðið. Hugmyndir um helztu efn-
isþætti lágu fyrir í frumdrögum í ársbyrjun.
Unnið var að undirbúningi með sambandi við
ýmsa aðila í Bandaríkjunum og hér heima en
blaðið síðan að verulegu leyti unnið vestan hafs
á fimm dögum í marzlok. Sérstök ástæða er til
að geta þess, hve fyrirgreiðsla allra aðila, sem
við sögu þessa máls komu, var með afbrigðum
lipur. Af augljósum ástæðum urðu Bandaríkin
fyrst valinu, þegar við hjá Frjálsri verzlun á-
kváðum að hefja kynningu viðskiptalanda. Banda-
ríski markaðurinn er mikilvægasti útflutnings-
markaður okkar og á ýmsan annan hátt eru sam-
skipti þjóðanna tveggja náin. Samningurinn um
varnarmálin er að sjálfsögðu einn þáttur þess
máls. En að auki stunda fslendingar myndarleg-
an atvinnurekstur í BÁandaríkjunum, í verk-
smiðjum fiskútflytjendanna, SH og SlS, og vegna
flugs Loftleiða þangað. 1 síðasta tölublaði FV var
fjallað um ástandið á bandaríska markaðinum
með tilliti til sjávarafurðasölu okkar og verður
þess vegna ekki sérstaklega vikið að því efni nú,
en Loftleiðum og starfi þeirra vestan hafs hins
vegar gerð ýtarleg skil. Þá eru samtöl við emb-
ættismenn, íslenzka og bandaríska — sem sagt
fjallað um málin á breiðum grundvelli.
Hvert blað markar tímamót, — viss þáttaskil
verða, þegar prentvélarnar fara í gang. Undir-
búningur næsta blaðs er hafinn hjá útgefanda
og ritstjórn.
Nýtt stórhótel............... 15
Vöruflutningar Cargolux...... 17
Greinar og viðtöl
Samtíðarmaður:
Sigurður Helgason.......... 23
Sölustarf Loftleiða ......... 31
New York-deild Ferðaskrifstofu
ríkisins................... 33
American Express............. 37
Bandarísk ferðamál .......... 41
Islandsmál í Washington...... 50
Staða Bandaríkjanna í heimsvið-
skiptum ................... 53
Kynningarrit um fsland ...... 59
Sendiráð íslands í Washington 61
Útflutningur til Bandaríkjanna
eftir dr. Guðm. Magnússon . . 64
Loftleiðaferðir til Bandaríkj-
anna ...................... 66
Eimskip og flutningar til og frá
Bandaríkjunum ............. 67
U.S. News & World Report .... 68
Sendiráð Bandaríkjanna á fs-
landi........................ 70
*
A markaðnum:
Radíó og sjónvarpstæki ........ 73
Bílar ......................... 76
Fyrirtæki,
vörur, þjónusta
Coca Cola .............. 82
Sambandið og Dráttarvélar .... 83
IBM .................... 85
Hjá Báru................ 86
Dekor .................. 90
ÁFANGAR ................ 93
UM HEIMA OG GEIMA....... 95
FRÁ RITSTJÓRN .......... 98
FV 4 1973
5