Frjáls verslun - 01.04.1973, Side 17
Vöruflutningar:
CARGOLUX - flugfélag í
örum vexti
*
Arsveltan í fyrra 1400 milljdnir króna — Þotukaup fyrirhuguö.
*
Rætt viö Einar Olafsson, framkvæmdastjdri.
Rétt við flug'stöðvarbygg'inguna á Findel-flugvelli í Lux-
emborg er stór vöruskemma, en í hluta hennar er skrifstofu-
álma, þar sem er að finna litla skrifstofu, sem merkt er
CARGOLUX. Þar hefur Einar Ólafsson, framkvæmdastjóri
félagsins, aðsetur sitt, ásamt Robert Arendel, viðskiptastjóra,
en hann er danskur. Eins og flestir Islendingar vita, þá er
vöruflutningaflugfélagið Cargolux, sem hefur aðsetur sitt í
Luxemborg, eign Loftleiða h.f., sænska skipafélagsins Rederi
AB Salenia og flugfélags Luxemborgar, LUXAIR.
Cargolux er ungt félag; það
var stofnsett í maí árið 1970,
en engu að síður hefur uppgang-
ur þess verið ör og hefur
félagið vakið talsverða athygli
á sínu sviði. Flugfélagið rekur 5
vélar af gerðinni Canadair CL-
44, fjórar þeirra voru áður í
eigu Loftleiða, en sú fimmta
er leigð frá Seaboard, sem
er bandarískt leigufélag. Meðan
Loftleiðir áttu vélarnar voru
þær kallaðar Rolls Royce 400.
Við eigendaskiptin var flugvél-
unum breytt í flutningavélar, og
eru nú með opnanlegt stél, þ. e.
a. s. að hægt er að færa það til
hliðar meðan vélin er fermd eða
losuð.
ILUTTU 11 MILLJ.
KÍLÓ í FYRRA.
Burðarþol flutningavélanna
CL-44 í flugtaki er 26 lestir fyr-
ir tvær styttri vélarnar, en 27
lestir fyrir hinar þrjár lengri.
Þær taka t. d. kassa eða bíla,
sem eru allt að 30 m. á lengd.
í vörurými er pláss fyrir 10-12
„pallettur“ og það sem Cargo-
lux-menn kalla „VIA-gáma“
(Very Important Animals) sem
eru notaðir, þegar flutt eru lif-
andi dýr, en það kemur nokkuð
oft fyrir.
Eins og fyrr getur, þá er upp-
gangur flugfélagsins mjög at-
hyglisverður, og í því sambandi
má geta þess, að þetta er eina
evrópska flugfélagið sem sér-
hæfir sig í vöruflutningaflugi,
en í Bandaríkjunum eru tvö slík
félög, Seabord og Flying Tiger.
Á öðru ári starfseminnar
nam heildarvelta Cargolux 5.1
millj. dollara, en þá var flogið
með 2.485.489 kg. af varningi
um allan heim. Þriðja árið nam
heildarveltan $ 9.000.000 en þá
var flogið með 5.500.000 kg. af
vörum. í fyrra, fjórða starfsár-
ið, er veltan áætluð $ 14.000 000
og heildarflutningar félagsins
11 millj. kg. Þessar tölur gefa
nokkuð til kynna, hve ör vöxtur
Cargolux hefur verið á þessu
tímabili. Flugfélagið hefur að-
setur í hjarta Efnahagsbanda-
lags Evrópu, eins og það er orð-
að, og það virðist taka þátt í
hinum hraða efnahags- og við-
skiptavexti bandalagsríkjanna.
Cargolux hefur haft veruleg
FV 4 1973
17