Frjáls verslun - 01.04.1973, Blaðsíða 31
Loftleiðir í IMew York
Reyna að ná til fólksins, sem
þegar hefur tekið ákvörðun
um að ferðast
*
l)m 1500 starfsmenn bandarískra ferðaskrifsstofa hafa farið til Islands
á 2V2 ári
Rætt við John Loughery, sölustjóra Loftleiða í Mew York
John Loughery, sölustjóri Loft-
leiða í New York.
Það hefur jafnan verið tal-
inn kostur í baráttunni að
þekkja keppinauta sína og
hvernig þeir starfa. Ef til vill
er ekki hægt að tala um kalt
stríð Iengur á milli Loftlciða
og SAS, en alla vega má gera
ráð fyrir, að John Lockery, sem
veitir sölu- og auglýsingadcild
Loftleiða í New York forstöðu,
hafi verið hoðinn hjartanlega
velkominn, þegar hann kom
þangað til starfa — beint úr
vígi höfuðkeppinautarins, SAS.
John Lockery skýrði okkur
hvernig unnið væri að kynningu
á Loftleiðum vestan hafs og með
hverjum hætti hefði tekizt að
tengja órjúfanlega saman hug-
takið „lægstu fargjöld" og nafn-
ið Loftleiðir.
NÁIÐ SAMBAND VIÐ
FERÐASKRIFSTOFUR
Lokery sagði, að Loftleiðir
reyndu fyrst og frernst að ná
til þeirra, er hefðu þegar ákveð-
ið að ferðast. Þetta er gert með
mjög nánu sambandi við ferða-
skrifstofur um öll Bandaríkin
með auglýsingum í ferðamála-
blöðum eða beinum samskiptum
við skrifstofurnar. Um 10% af
öllu fjármagni til auglýsinga,
í ferðamálablöðunum.
Þá er gefið út mikið magn
kynningarbæklinga fyrir ferða-
skrifstofurnar og skömmu áðu.r
en samtalið við Lockery fór
fram höfðu verið sendir nýir
bæklingar til 10 þús. ferðaskrif-
stofa um gervöll Bandaríkin og
komu óskir frá 4000 um að fá
meira magn af bæklingunum til
að nota í almennri sölustarf-
semi.
DÝRAR AUGLÝSINGAR
Auglýsingar frá Loftledðum
birtast líka í dagblöðum og ýms-
um sérritum. Valið á fjölmiðlun-
um, er þaulhugsað og ræðst nátt-
úrulega mikið af takmörkuðu
fjármagni, sem félagið hefur til
umráða í þessu skyni.. Auglýs-
ingar eru geysidýrar í Banda-
ríkjunum, og aðeins einu sinni
hafa Loftleiðir til dæmis keypt
heilsíðuauglýsingu í dagblaðinu
New York Times. Kostaði hún
9000 dollara. Nokkuð oft hefur
verið auglýst í The Christian
Science Monitor í Boston, sem
er með virtustu dagblöðum í
heimi, þó að stærð þess sé engan
veginn sambærileg við New
York Times og önnur slík. Blað-
ið hefur mjög tryggan lesenda-
hóp enda gefið út af sértrúar-
flokki. Hefur blaðið sent 10 þús-
und áskrifendum sínum bréf,
þar sem fram koma þakkir til
Loftleiða fyrir hvað þær hafa
stutt útgáfu blaðsins dyggilega
Þannig auglýstu Loftleiðir 30
dögum áður en Eyjagosið hyrj-
aði.
VISIT fl VOLCfiNO IN
öeysers
Wateriaíls,
Glaciers. Ei uptma Voleano! Salmon,
Trout. Camping, Museums, Festivals,
Pony Treks. Chess Capita! of t he-Wor ld!
Next tirne yóu fly to Europe, visit
lceland. The only.thing it may cost
you istime well spent.
Big savings on air fares to Europe
from the West Coast via connections
with lcelandic. Airlines in New York for
passengers who stay overseas more
than 45 days or less than 2 weeks.
Write for lceland Adventure color
folder and details on aír fares:
ICEIANDIC AIRLINES, 210 Post St.,
San Francisco, Cai. 94108—or 291 So
La Cienega Blvd.. Bev Nilis. Cal.
90213. Tel. Toll free (800) 221-9760
ICELANDIC
FV 4 1973
31