Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1973, Qupperneq 45

Frjáls verslun - 01.04.1973, Qupperneq 45
Atlantshafsströnd Bandaríkj- anna vestur að Mississippi. A þeim slóðum hófst fyrsti kafli landnáms Evrópubúa í Nýja heiminum. Þaðan lögðu frum- byggjarnir líka upp í ferðir sín- ar vestur á bóginn, sem lauk með landnámi alls meginlands- ins, stranda á milli. • Náin snerting við söguna Ferðamaðurinn sér ekki að- eins sögu Bandaríkjanna á þess- um minjasöfnum, heldur finnur hana — kemst í snertingu við líf fólksins eins og það var áð- ur fyrrum. Gestirnir geta jafnvel lagt sig í rekkjur, gerðar úr strám og fjöðrum, og þeir geta fengið að hjálpa til við dagleg hússtörf í Plimoth, landbúnaðarbænum í Massachusetts. Áhugamenn um sjómennsku geta skoðað náið þilför og reiða stórra seglskipa í Seaport í Connecticut, þar sem flest er umhorfs eins og það var á dög- um hvalveiðaranna í Nýja Eng- landi. Sælkerarnir geta bragðað á hnetusúpu og villibráð í Willi- amsburg í Virginíu eða smakk- að bakkelsi í Winkler’s-bakaríi í Salem í Norður-Karólínu. Unnt er að virða fyrir sér lifs- venjur fyrirfólksins í Suðurríkj- unum fyrr á tímum með því að vera viðstaddur árleg hátíðahöld í Natchez, Mississippi, þegar tækifæri gefst til að heimsækja nokkur íburðarmestu húsakynni heldrafólksins, meðan það var og hét. í Salem, Illinois, fá ferðamenn að sjá bjálkakofann, sem Abra- ham Lincoln ólst upp í áður en hann varð forseti Bandaríkj- anna. Það er hægt að aka í kerr- um, sem uxum er beitt fyrir á 19. aldar götum Sturbridge í Massachusetts. Handverksmenn í viðeigandi búningum vefja vindla fyrir uppskeruhátíðina í St. Augustine í Florída, þeir búa til vendi í Cooperstown í New York-ríki og tízkuhárkollur í Williamsburg. í flestum þessara bæja er bíla- umferð bönnuð. Mjög er því kyrrlátt yfir öllum bæjarbrag og fólk fær óneitanlega mjög kær- komna hvíld frá ys og þys nú- tíma lifnaðarhátta. Aðgangseyr- ir og tími, sem fólk verður að ætla sér til að skoða hin ein- stöku söfn, er nokkuð mismun- andi. ® í landi pílagrímanna Það er mjög viðeigandi að hefja skoðunarferð um minja- söfnin í Massachusetts. í þessu litla ríki eru margir endurreistir bæir, þar á meðal þeir frægustu eins og Plimoth, í nágrenni Ply- mouth-borgar, sem liggur úti við strönd. Þarna starfa karlar í 17. aldar klæðnaði við bústörf, rækta korn og huga að búpen- ingi. Plimoth er eins konar end- urútgáfa af umhverfi landnem- anna í Nýja Englandi. Leiðsögumennirnir í Plimoth benda réttilega á, að landnem- arnir, sem kallaðir voru píla- grímar, hafi stofnað þarna ný- lendu, þar sem þeir vildu lifa nýju lífi. Það var ekki fyrr en hálfri annarri öld seinna, að afkomend- ur þessa fólks urðu borgarar nýrrar, sjálfstæðrar þjóðar. Ýmsar hættur steðjuðu að fyrstu landnemunum, þar á með- al hungursneyð. Helmingurinn af fyrsta skipsfarminum, 102 landnemum, dó strax fyrsta vet- urinn. Þeir, sem eftir voru, þraukuðu aðeins vegna vinsemd- ar Indíána í nágrenninu. Þakk- argjörðardagurinn, 22. nóvem- ber, er haldinn hátíðlegur í Pli- moth og er þá minnzt góðvildar Indíánanna. Menn eru iðnir í Plimoth. Starfsmenn þar gera þök, rækta korn, baka og vefa. Gestum er boðið að taka þátt í þessum störfum og fá börnin að gefa hænsnunum eða sækja vatn og foreldrarnir geta hjálpað til við matargerðina. í borginni Plymouth er eftir- líking af skipi pílagrímanna, Mayflower, sem opin er gestum. ® Menningarsetrið Williamsburg í Williamsburg í Virginíu-ríki er ferðamaðurinn kominn nær samtímanum. Þar ríkir sannur 18. aldar bragur. Williamsburg var miðstöð stjórnmálastarf- semi, menningar og mennta, og það var hérna sem landstjóri brezku krúnunnar byggði sér höll til að gera „hryllilega út- legð“ sína í Nýja heiminum bærilegri. Nýlendubúarnir stofnuðu fyrsta háskóla sinn á þessum stað og kusu þar líka fulltrúa á fyrstu löggjafarsam- komuna, sem var fyrirrennari bandaríska þjóðþingsins. Marg- ir fremstu stjórnmálamenn Am- eríku á 18. öldinni störfuðu í Williamsburg. Það orð lá á. að hvergi væri jafnmikið um dýrðir, og sam- kvæmislíf jafnfjölbreytt og í Williamsburg. Þar hittust plant- ekrueigendur, yfirvöld nýlend- unnar og fulltrúar erlendra ríkja auk auðmanna annarrra, sem komu þangað í leikhús eða á dansleiki. Ólíkt því sem gerist með flest önnur minjasöfn af þessu tagi, Löngu horfnir kynþættir Indíána bjuggu fyrr á öldum í fjölbýlis- húsum að þessari gerð. Húsin eru á ferðamannaslóðum í Suð- vesturríkjum Bandaríkjanna. FV 4 1973 45
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Frjáls verslun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.