Frjáls verslun - 01.04.1973, Side 55
viðjum hinnar efnahagslegu ein-
angrunar.
Síðustu tvö árin hafa orðið
mjög verulegar breytingar á ut-
anríkisstefnu okkar og efnahags-
málastefnu líka, eins og menn
um allan heim hafa fylgzt með.
Bandaríska þjóðin hefur hagað
gerðum sínum eftir breyttum
kringumstæðum.
Ef við lítum fyrst á efnhags-
lega stöðu Bandaríkjanna, ligg-
ur ljóst fyrir, að í mörg ár þurft-
um við að búa við greiðsluhalla,
en innan hæfilegra takmarka þó,
og var það vel þegið af öðrum
ríkjum. Vöruskiptajöfnuður
okkar var hagstæður um veru-
legar f járhæðir og í því efni ríkti
stöðugleiki. Á fyrri helming sjö-
unda áratugarins var vöru-
Skiptajöfnuðurinn að meðaltali
hagstæður um 5.4 milljarða doll-
ara á ári.
SYRTIR f ÁLINN
Á seinni helmingi síðasta ára-
tugar tók að syrta í élinn. Út-
gjöldum vegna Víetnam-striðs-
ins var ekki mætt með auknum
sköttum og þjóðin varð að glíma
við meiri og langvinnari verð-
bólgu en áður hafði þekkzt á
ævi einnar kynslóðar. Hækk-
andi verðlag á bandarískum vör-
um gerði innflutta framleiðslu
greinilega meira aðlaðandi.
Áhrifa verðbólgunnar gæt'ti í
framleiðslukostnaði á banda-
rískum vörum til útflutnings og
þar af leiðandi urðu þær ekki
almennilega samkeppnishæfar.
Framleiðniaukning hjá banda-
rískum framleiðendum varð
hægari en hjá nokkrum af
helztu keppinautum okkar á ára-
bilinu 1965—1970, og verð á út-
flutningsframleiðslu okkar
hækkaði meira en hjá flestum
keppinautunum.
DOLLARINN LENGI SKRÁÐ-
UR OF HÁTT
Lítt sveigjanlegt alþjóðlegt
fjármálakerfi var heldur ekki
til að bæta úr skák. Margir hag-
fræðingar telja, að dollarinn
hafi lengi verið skráður of hátt.
Allavega varð hann það eftir
slælega frammistöðu í viður-
eigninni við verðbólguna seint
á sjöunda áratugnum og
snemma á þeim áttunda. En á
sama tíma voru aðrar þjóðir að
lækka gengi gjaldmiðla sinna,
eins og Frakkar og Bretar. Þetta
þýddi, að við þyrftum að berjast
harðri baráttu til að viðhalda
samkeppnishæfni okkar.
Menn ætla því, að gengisfell-
ingar dollarans, sem gerðar voru
síðar, muni hafa áberandi áhrif
til að leysa vandann. Ennfremur
hefur tekizt að sporna við
verðbólgunni heima fyrir og tvö
síðustu árin hefur verðbólga
vaxið minna en í nokkru öðru
ríki meðal iðnaðarvelda heims.
ÁHRIFA GENGIS-
BREYTINGA GÆTIR EKKI
STRAX
Árangurinn af þessum tíma-
bæru ráðstöfunum hefur þó lát-
ið á sér standa. Vöruskiptajöfn-
uðurinn var óhagstæðari árið
1972 en nokkru sinni fyrr, eða
um rúma 6 milljarða dollara.
Það er kunn staðreynd, að á-
hrifa af breyttu gengi gætir ekki
til fulls fyrr en að tveim árum
liðnum að minnsta kosti og einn-
ig er skýringar á hinum óhag-
stæðu viðskiptum að leita til
þess, að dollaraverð innfluttrar
vöru hefur lækkað. Breytingar
til bættrar stöðu hafa líka verið
hægari fyrir það, að á fyrstu
þremur ársfjórðungum 1972 var
mikil gróska í efnahagslífinu í
Bandaríkjunum þegar aftur á
móti skæðustu keppinautar okk-
ar á viðskiptasviðinu voru á mis-
munandi hröðu undanhaldi.
Þessi munur á aðstæðum hefur
orðið hvati að aukinni eftir-
spurn eftir innfluttum vörum í
Bandaríkjunum en dregið úr
sölu á bandarískum vörum er-
lendis.
Viðskiptajöfnuðurinn batnaði
til muna i desember og janúar
síðastliðnum, kannski vegna
þess að áhrifa gengisfellinganna
var farið að gæta nokkuð og
líka vegna óvenjugóðrá. mark-
aðsskilyrða. Samt var hallinn á
viðskiptunum óviðunandi.
TÆKNIBÚNAÐUR
Horfurnar á meiri framförum
eru góðar, svo lengi sem við get-
um haldið kaupgjaldi og verð-
lagi í skefjum. Ef litið er til ann-
arra þátta málsins má greina
mjög jákvæða þróun í utanrík-
isverzlun Bandaríkjanna. Á ár-
unum 1960—1970 jókst heims-
verzlun með háþróaðan tækni-
búnað meira en með nokkra
aðra framleiðslu. Við erum
fremstir í framleiðslu og út-
flutningi þess konar vöru, og
meðan við erum að notfæra
tækni og vísindi í þágu fjöld-
ans getum við átt stóran hluta
af markaðinum.
MIKIL AUKNING í
KORNVÖRU
Við eigum líka því láni að
fagna að standa mjög vel að vígi
Engin þjóð hefur náð lengra en Bandaríkjanienn í því að nota
tækniundur nútímans í hinum ýmsu störfum í daglegu lífi almenn-
ings. Tölvur ei-u orðnar sjálfsagður hlutur á skrifstofum flug-
félaga til dæmis.
FV 4 1973
55