Frjáls verslun - 01.04.1973, Blaðsíða 69
500 MANNA STARFSLIÐ
Nú starfa hjá U.S. News
and World Report um 500
manns. Öll vinna við efni og
frágang fer fram í Washington
en blaðsíður eru sendar með
eins konar símmyndatækjum til
Dayton í Ohio, þar sem blaðið er
prentað. í hverri viku er blaðið
gefið út í tveim miiljónum ein-
taka og er talið, að þrír menn
að meðaltali lesi hvert eintak.
Frá Dayton, sem er nokkuð mið-
svæðis í Bandaríkjunum, berast
blöðin á fáeinum klukkustund-
um til póstmiðstöðva um gjör-
vallt landið, þaðan sem þau eru
send út. Einnig eru blöðin send
til Amsterdam í Hollandi, til
dreifingar til áskrifenda í
Evrópu.
Það eru starfsmenn U.S.
News and World Report, sem
sjálfir eiga tímaritið. Um 15%
af kaupi hvers starfsmanns, sem
náð hefur 30 ára aldri og starf-
að hefur meira en eitt ár við
blaðið, renna í sameiginlegan
sjóð, sem á meirihlutann í blað-
inu. Á móti kemur svo eignarað-
ild elztu starfsmannanna og
einnig þeirra yngri, sem fá visst
magn af hlutabréfum i sinn hlut
fyrir hver fimm ár, sem þeir
starfa hjá U.S. News and World
Report.
Útbreiðsla tímaritsins hefur
farið mjög vaxandi hin síðustu
ár. í hverri viku birtast í því
úrvalsgreinar í stuttu máli t. d.
um stjórnmálaþróunina í Banda
ríkjunum og erlendis, fjármál,
framfarir á sviði tækni og vís-
inda, viðskipti, verkalýðsmái,
og margt fleira.
Samkvæmt stefnu sem David
Lawrence mótaði er hlutverk
blaðsins túlkað þannig, að það
haldi uppi „tveggja rása miðl-
un“. Annars vegar skýrir það al-
menningi frá því hvað stjórn-
völd hafast að og hins vegar
stjórnvöldunum frá því, hvað al-
menningur segir og hugsar um
málin.
NÝIR HÖGGDEYFAR FRÁ
meira öryggi
aukin þcegindi
betri encSing
f yrir flestar
gerðir bifreiða
FV 4 1973
69
Auglýsingastofan FORM