Frjáls verslun - 01.04.1973, Síða 70
PL. 480 er efnahagsaðstoð
í formi láns
Rætt við Fredrick Irving sendiherra Bandaríkjanna á íslandi.
hér, sem varðar sambúð ísl-
ands og Bandaríkjanna. Efna-
hangs- og viðskiptadeildin sér
um að skýra bandarískum
stjórnvöldum frá öllum meiri-
háttar efnahagsmálum á ísl-
andi, cg sér einnig um að efla
viðskipti milli landanna
tveggja, og notar hún til þess
ýmsar leiðir, sem m.a. miða að
því að koma íslenzkum inn-
flytjendum og kaupendum í
samband við bandaríka fram-
leiðendur
Raeðismannsdeildin hefur
það hlutverk að gefa út vega-
bréfs áritanir (visa), og gæt-
ir auk þess hagsmuna banda-
rískra ríkisborgara, sem bú-
settir eru á íslandi, eða eru
hér á íerðalagi; auk þess greið-
ir hún götur íslendinga, sem
heimsækja Bandaríkin.
Sendiherrann er sérlegur
fulltrúi Bandaríkjaforseta hér
á landi, og hefur verið viður-
kenndur umboðsmaður hans af
íslenzkum stjórnvöldum, en
höfuð skylda hans er að halda
við hinu góða sambandi og
samskiptum milli ríkjanna.
Mörg málefni skjóta upp koll-
inum á hverjum tíma, sem hafa
áhrif á__samskiptin, og það er
því verkefni sendiherrans að
sjá um að hið góða samband
haldist óskert. og að það sé
byggt á gagnkvæmu trausti,
virðingu og skilningi.
ER PL-480
EFNAHAGSAÐSTOÐ
BANDARÍKJAMANNA?
— íslenzk stjórnvöld hafa
uin langt árabil fengiS hið
svonefnda PL-480 lán (Public
Law 480) frá Bandaríkjunum.
Hvert er eðli lánsins; hve hátt
er það hverju sinni; og mynd-
uð þér segja að það sé efna-
hagsaðstoð frá Bandaríkjunum.
— PL-480 er áætlun, sem
miðar að því að selja ákveðn-
ar bandarískar landbúnað-
arafurði til annara landa, en
hingað er keypt hveiti og tó-
bak, en til skamms tíma var
einnig keypt spenufóður. þess-
í tilefni þess að Frjáls verzl-
un gefur nú út sérstakt hefti,
sem að mestu fjallar um sam-
skipti íslands og Bandaríkj-
anna, ræddi fréttamaður FV
við bandaríska sendiherrann á
íslandi, Fredrick Irving, um
málefni sendiráðsins, og önnur
mál sem varða milliríkjavið-
skipti Islands og Bandaríkj-
anna.
— Sendiherra. hvernig
rnynduð þér lýsa starfssemi
bandaríska sendiráðsins í
Reykjavík; og hverjar eru
helstu skyldur yðar?
— Sendiráðið skiptist í ýms-
ar deildir, sem annast dagleg-
an rekstur, og þar má fyrst
nefna stjórnmáladeildina, sem
er tengiliður milli ríkisstjórnar
Bandaríkjanna og íslenzkra
stjórnvalda. Stjórnmáladeild-
in sendir skýrslur til utan-
ríkisráðuneytisins í Washing-
ton, um stjórnmálaþróunina
Fredrick Irving sendiherra.
70
FV 4 1973