Frjáls verslun - 01.04.1973, Blaðsíða 80
1600 og Cortina „XL“ 1600.
Ford-umboðið Sveinn Egils-
son h.f., hefur einnig á boðstól-
um Ford Escort, margar gerð-
ir af amerískum bilum, en
þeirra vinsælastur hér er Mer-
cury Comet og ekki má gleyma
Ford Branco jeppanum.
Toyotaumboðið h.f., Höfða-
túni 2. Toyota er eitt nýjasta
bílamerkið á íslandi og hefur
verið eitt hið vinsælasta hér
um nokkurt skeið. Toyota-bílar
eru framleiddir af japanska
bílafyrirtækinu Toyota Motor
Co., en á undanförnum áratug
hafa japanskir bílar náð veru-
legum vinsældum í Afríku,
Asíu, Norður- og Suður-Ame-
ríku og nú síðast í V-Evrópu.
Hér á landi leggur umboðið
megináherzlu á sölu á gerðun-
Toyota — eitt nýjasta bílamerkið og vinsælasta um skeið.
um Toyota Corona MK 2 2000,
þá Carina 1600 og Corolla 1200.
Bílarnir kosta nú frá kr. 470.-
000. Mikill styrkleiki er í und-
irvagni og yfirbyggingu. Þá er
lagt mikið upp úr öryggisbún-
aði og kraftmiklum en spar-
neytnum vélum. Viðgerðar-
þjónusta er hjá bílaverkstæðinu
Ventili h.f., Ármúla 23.
Tékkneska bifreiðaumboðið á
íslandi h.f., Auðbrekku 44-46,
býður íslenzkum bifreiðakaup-
endum hagstæðan sportbíl,
Skoda 110R coupe, sem kallað-
ur er hér „guli pardusinn" fyr-
ir kr. 377.000. Sportbíllinn, sem
er 2ja dr., er með 63 ha. vél,
„bucket“ stólum og „rally“ út-
færslu að innan. Þessi snotri
bíll er neyzlugrannur og eyðir
um 8,5 1. á 100 km. Af auka-
hlutum má nefna: fjögurra
hraða þurrkur, tveggja hraða
miðstöð og rafmagnsrúðu-
sprautur. Guli pardusinn er 5
manna sportbíll.
Af öðrum Skoda tegundum
má nefna Skoda 100, 5 manna
fólksbíll með 48 ha. vél og
Skoda 100 Deluxe með 53 ha.
vél, auk þess Skoda 110LS með
62 ha. vél.
Veltir h.f., Suðurlandsbraut 16,
hefur umboð fyrir Volvo frá
Svíþjóð. Undanfarin ár hefur
sala á Volvo bílum hér á landi
stóraukist og eru þeir nú með-
al vinsælustu fólksbíla í stærri
flokknum. Af Volvo-bílum má
fyrst nefna Volvo 142-1241
Evrópa, sem er 2ja dr., með
4 strokka 90 ha. SAE vél. í
bílnum er 4ra gíra alsam-
hæfður gírkassi, tvöfalt þrí-
hyrnings - hemlakerfi með
hjálparlofti, þriggja póla
öryggisbelti og 15“ felgustærð.
Bílinn kostar frá kr. 639.000.
Volvo 145-1341, deluxe station,
er með mjög svipaðan útbúnað
og kostar frá kr. 768.000. og
sama er að segja um Volvo
144-1341 deluxe, sem er 4 dr.,
5 manna, fólksbíll, en hann
kostar frá kr. 705.700.
Auk þess hefur Veltir á
boðstólnum Volvo sendiferða-
bíl, vörubíla af ýmsum stærð-
um, langferðabíla og strætis-
vagna.
80
FV 4 1973