Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1973, Page 83

Frjáls verslun - 01.04.1973, Page 83
innlendra aðila eins og hér á landi. Stofnandi og fyrsti for- stjóri Coca Cola hér var Björn Ólafsson en núverandi forstjór- ar eru þeir Pétur Björnsson og Kristján Kjartansson. Coca Cola í Bandaríkjunum framleiðir ýmsar tegundir gos- drykkja undir vörumerki Coca Cola en verksmiðjan Vífilfell hefur auk kóksins aðeins sett á flöskur hér drykkinn Fresca en framleiðir hins vegar nokkrar fleiri tegundir drykkja fyrir kælitanka með krana sem þeir selja, en úr þeim má fá fleiri en eina tegund svaladrykks. Þessir tankar eru aðallega notaðir á matsölustöðum og veitingastöð- um og í einstaka verzlunum. Á annað hundrað slíkir tankar eru nú í notkun hér og er áherzla lögð á aukna sölu þeirra. Verk- smiðjan Vífilfell selur einnig nokkuð af sjálfsölum og kæli- kössum fyrir gosdrykki. Mör- landinn hefur eins og áður er sagt tekið miklu ástfóstri við kókið því að við drekkum sem svarar 66 þúsund flöskum á dag og mun það heimsmet miðað við fólksfjölda. GRUNDVÖLLUR FYRIR FLÖSKUFRAMLEIÐSLU Mikil rýrnun hefur orðið í glerflöskunum undan kókinu og vildi Pétur Björnsson halda því fram að lágt endursöluverð þeirra á undanförnum árum ætti einna mestan þátt í því. En ný- lega var endursöluverðið hækk- að og virðist það ætla að bera mjög góðan árangur. Flöskurn- ar eru keyptar frá Belgíu en að- spurður sagði Pétur að hann teldi að hér á landi væri kominn grundvöllur fyrir glerverk- smiðju sem framleiddi flöskur og þ. á. m. kókflöskur. Hjá verksmiðjunni Vífilfell h.f. starfa nú um 100 manns. SÍS og Dráttarvélar h.f.: Umfaisverð aukning Banda- ríkjaviðskipta hugsanleg Sambandsmenn voru bjart- sýnir á viðskipti við Bandarík- in á þessu ári vegna hagstæð- rar gengisskráningar fyrir inn- kaup þaðan, er FV ræddi við þá Jón Þór Jóhannsson, fram- kvæmdastjóra Véladeildar SÍS, og Arnór Valgeirsson, fram- kvæmdastjóra Dráttarvéla h.f., sem er dótturfyrirtæki SÍS, um innflutning frá Bandaríkjun- um. Véladeild Sambandsins flutti inn vörur frá Bandaríkjunum fyrir um 1 millj. dollara á síð- asta ári og gerir Jón Þór sér vonir um allmikla aukningu á þessu ári. Stærsta bandaríska fyrirtækið, sem SÍS hefur um- boð fyrir, er General Motors. Frá þeim flytur véladeildin inn bifreiðar, aðallega fólksbifreið- ar en einnig nokkuð af vörubif- reiðum. Ódýrustu fólksbifreið- arnar frá G.M. eru Chevrolet, undirflokkurinn Vega, sem í dag kostar 615.000 krónur. Chevrolet hefur auk þess marga aðra undirflokka, sem eru dýr- ari á markaði hérlendis. Auk þess framleiðir General Motors tegundirnar Pontiac, Oidsmob- ile, Buick og Cadillac, sem Sam- bandið flytur allar inn. Allmörg ár eru þó síðan nýr Cadillac hefur komið til landsins. Vöru- bifreiðarnar eru af gerðunum GMC og Chevrolet. ÞUNGAVINNUVÉLAR AF MÖRGUM STÆRÐUM Auk þessa hefur Sambandið umboð fyrir International Harv- ester i Bandaríkjunum og frá þeim eru fluttar inn þunga- vinnuvélar, svo sem jarðýtur í fjölmörgum stærðum, Farmall- dráttarvélar og tæki í sambandi við þær og Scout jeppar. Farm- all-dráttarvélarnar haf þó hing- að til verið keyptar frá útibúi International Harvester í Eng- landi en ekki taldi Jón Þór ólík- legt að eitthvað yrði keypt af þeim frá Bandaríkjunum á næst- unni, ef gjaldeyrismálin héldu áfram að þróast eins og þau hafa gert undanfarið. Westinghouse—heimilistæki hefur Sambandið flutt inn lengi, en þegar gengisskráning varð ó- hagstæð innflutningi frá Banda- ríkjunum sneru Sambandsmenn viðskiptum sínum til söluskrif- stofu Westinghouse í Danmörku, sem útvegar Westinghousetæki frá verksmiðjum staðsettum á Ítalíu, en Jón Þór taldi einnig líklegt að þau yrðu bráðlega flutt inn frá Bandaríkjunum. Þá er að nefna Hobart Manu- facturing Corporation en þaðan kaupir SÍS Kitchen-Aid hræri- vélar og uppþvottavélar fyrir heimili og hefur einnig keypt frá þeim stærri einingar af því tagi fyrir brauðgerðarhús, mat- sölustaði og veitingahús. Auk þeirra stóru umboða, sem nefnd hafa verið, hefur Sambandið umboð fyrir mörg smærri bandarísk fyrirtæki, sem það flytur inn ýmis konar smærri vélar og tæki frá. MJÓLKURTANKAR FYRIR $ 91000 Dráttarvélar h.f. dótturfyrir- tæki SÍS flytur inn mjólkurkæli- tanka fyrir bóndabýli frá Banda- ríkjunum og hefur innflutning- ur á þeim stóraukizt á síðustu árum. Að sögn Arnórs Valgeirs- sonar, framkvæmdastjóra, er líklegt að sú aukning haldi á- fram á þessu ári. Það er fyrir- tækið Paul Mueller í Spring- field, Missouri, sem framleiðir þessa kælitanka og eru þeir fá- anlegir í mörgum stærðum. Al- gengustu stærðirnar hér eru 800—1000 lítra tankar. Minnsta stærðin tekur 400 lítra og kost- ar um 130 þúsund krónur. Drátt- arvélar h.f. fluttu þessa tanka inn á síðastliðnu ári fyrir um 91 þúsund dollara. MANNSIIÖNDIN KEMUR IIVERGI NÆRRI Mjólkurtankarnir eru oft- ast tengdir við mjaltakerfi í fjós- um, þannig að úr kúnni fer mjólkin beint í leiðslur í fjós- inu. Flytja þær mjólkina í kæli- FV 4 1973 83

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.