Frjáls verslun - 01.04.1973, Síða 85
tankana, sem síðan eru tæmdir í
mjólkurtankbíla án þess að
mannshöndin komi þar nokkurn
tíma nærri. Kælitankana er líka
hægt að nota án mjaltakerfis-
ins og er mjólkinni þá hellt i
þá úr brúsum eða mjaltafötum.
Tankarnir eru með kælikerfi í
botninum og kælist mjólkin nið-
ur um leið og hún kemur í tank-
inn. Einnig eru fáanleg með
þessum tönkum þvottatæki, al-
sjálfvirk, frá sama framleið-
anda. Þvo þau tankana með há-
þrýstiúðara án þess að maður-
inn þurfi að snerta þar á.
Dráttarvélar h.f. hafa umboð
fyrir kanadíska fyrirtækið Mass-
ey-Ferguson, er hefur höfuð-
stöðvar sínar í Toronto. Hingað
hafa þó dráttarvélar og vinnu-
tæki frá þeim verið keypt frá
dótturfyrirtæki þeirra í Eng-
landi þar sem framleiðsla á
þeim fer fram. Massey-Fergu-
son er risastórt fyrirtæki með
fjölda útibúa víða um heim, m.
a. í Bandaríkjunum og taldi Arn-
ór ekki óhugsandi að eftir síð-
ustu gengisskráningu dollarans
væri hagstæðara fyrir okkur að
kaupa vélar þessar þaðan en frá
Evrópu.
IBIVl á íslandi:
Fjarvinnsla í skýrsluvélum
fyrir Borgarspítalann
Bandaríska fyrirtækið Inter-
national Business Machines,
eða IBM, eins og það er venju-
Iega kallað, rekur útibú hér á
landi að Klapparstíg 25, og hef-
ur í sinni þjónustu 40 starfs-
menn, en útibússtjóri er Ottó
A. Michelsen.
Raunar er það dótturfyrirtæki
bandaríska fyrirtækisins sem
rekur útibúið, IBM World Trade
Corporation, en það annast alla
starfsemi IBM utan Bandaríkj-
anna. Tengslin eru í aðalatriðum
fólgin í því, að útibúið leggur
fyrir IBM fjárhagsáætlun til 2ja
ára í senn, sem er í samræmi við
settar starfsreglur frá fyrirtæk-
inu. Þegar IBM hefur svo sam-
þykkt áætlunina starfar útibúið
mjög sjálfstætt innan þess
ramma sem áætlunin og reglurn-
ar segja til um. FV hitti að máli
fyrir stuttu þá Jóhann Gunnars-
son og Jón Marinósson deildar-
stjóra hjá IBM á íslandi og
fræddu þeir okkur um starfsemi
útibúsins.
Á 3. HUNDRAÐ TIL ÞJÁLF-
UNAR
IBM á íslandi leigir út tölvur
og annast innflutning á öllum
rekstrarvörum til þeirra og sér
um viðgerðarþjónustu á tölvun-
um. Nú eru hér á landi milli 10
og 20 IBM tölvur af ýmsum
stærðum. Má nefna að á síðasta
ári fluttu þeir inn gataspjöld
fyrir tölvur frá Bandaríkjunum
fyrir um 10 milljónir ísl. króna.
Þá annast IBM á íslandi þjálfun
starfsfólks sem við tölvurnar á
að vinna, og er talið að á milli
2 og 3 hundruð manns komi ár-
lega til mismunandi langrar
þjálfunar í stöðvar útibúsins á
Klapparstígnum. Þar hefur IBM
tvær tölvur og á þær annast fyr-
irtækið bókhald og hvers kyns
úrvinnslu fyrir fjöldamörg ís-
lenzk fyrirtæki.
Sjálfar tölvurnar eru yfirleitt
ekki bandarísk smíði. Þær eru
að langmestum hluta smíðaðar
í einhverju útibúa IBM World
Trade Corporation. Söluumboðs-
skrifstofur þess eru alls 451 í
126 löndum í fjórum heimsálf-
um og fer framleiðsla þeirra
fram í 22 verksmiðjum í 13 þess-
ara landa. Aðalstöðvarnar eru í
New York.
MEÐAL 10 STÆRSTU FYRIR-
TÆKJA HEIMS
IBM er nú eitt af 10 stærstu
fyrirtækjum heimsins og til
fróðleiks má geta þess að brúttó-
tekjur þess voru á síðasta ári
9.500 milljónir dollara. Starfs-
menn eru alls um 250 þúsund
talsins. Langstærsta fram-
leiðslusviðið er smíði rafreikna
eða tölva en einnig framleiðir
IBM, eins og flestum er kunn-
ugt, skrifstofuvélar svo sem rit-
vélar, Ijósritunartæki, hljóðrit-
unartæki svo og öll hjálpartæki
og annað sem þarf til notkunar
á þessum tækjum. IBM starf-
rækir 22 rannsóknar- og þróun-
ardeildir, þar sem stöðugt er
unnið að endurbótum og endur-
nýjun og er eytt til þess hundr-
uðurn milljóna dollara á ári.
BYRJUÐU MEÐ KJÖT-
VINNSLUVÉLAR
IBM hóf starfsemi um 1914
með framleiðslu á kjötvinnslu-
vélum, vogum og klukkum en
fljótlega var farið að framleiða
skýrsluvélar með gataspjöldum.
Fyrirtækinu tókst að halda starf-
seminni gangandi á kreppuárun-
um og var þess vegna unnt að
anna eftirspurn eftir skrifstofu-
vélum þegar kreppunni lauk og
viðskiptalíf tók að blómgast.
Áður en Ottó A. Michelsen
stofnaði útibúið árið 1967 hafði
hann um árabil verið umboðs-
maður IBM, sem eigandi Skrif-
stofuvéla h.f., og flutt inn frá
þeim skrifstofuvélar og fyrstu
tölvurnar, sem komu hingað
Unnið við IBM-kerfið hjá
Skýrsluvélum ríkisins og
Reykjavíkurborgar.
85
FV 4 1973